Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1907, Blaðsíða 6

Æskan - 01.04.1907, Blaðsíða 6
(52 Æ S K A N einn spurði hann, hvorl hann hrædd- ist »kerlinguna« eða »vöndinn« eins og krakki; annar kvaðst ekki meta mikils þann mann, sem ekki hefði þrek til að stjórna kvenfólki og krökkum og vera húshóndi á heimili sínu; sá maður væri hlátt áfram aumíngi. Svo tóku þeir að gorta af aga þeim, er þeir hefðu á sínu heimili og af óttanum, er kona og krakkar hefðu af þeim. Jóhannes var í raun og veru ekki slæmur maður, eins og áður er sagt, en hann var þreklaus og því fljótur að láta undan ástríðum og ginningum. Petta vissi kona hans, því hún þekti nákvæmlega lyndiseinkunnir mans sins. Hún reyndi að lialda öllu í réttu horfi á heimilinu eftir mætti, þótt illa gengi stúndum, því vikukaupið var ekki mik- ið, en þó hefðu þau vel getað komist af, hefði ekki helmingur þess og stund- um meira farið í veitingahúsið. Margt tárið feldi hún yfir því, og margri gleðinni rændi ástríða föðurs- ins börnin. Þá er Jóhannes þenna morgun var farinn, átti hún aðeins eilt athvarf. Hún hað Drottinn að snúa huga manns sins frá veitingahússlífinu og óheilla- félögunum, svo hann yrði að betri manni. Hildur, sem var sex ára að aldri fylgdist með í bæninni eftir mætti, og litli hnokkinn sat uppi í rúminu og sagði i hálfum hljóðum: »pahbi, pabbi«. Sem betur fór hafði hann litla hugmynd um breyskleika föður síns, en honum þótti vænt um pabba sinn og vissi að þetta var honum að einhverju leyti viðkomandi. Móðurinni óx þrek og kraftur við bænina og það var sem hjá honum vaknaði óljós von um að þessi dagur yrði byrjun betri tíma fyrir heimilið, og' brást sú von ekki. Þá er að kvöldi leið og verki skyldi hætta, bað hún Hildi litlu um að fara á móti pahha sinum. Hún stökk á stað, þó þunnklædd væri og frost og kuldi úti lyrir. Þeg- ar langt i burlu kom hún auga á föð- ur sinn, er kom á móti henni ásamt einum samverkamanna sinna. Hann sá hana einnig og varð allkynlega, við er hann veitli því eftirtekt, hve ver hún var klædd en önnur börn, er úti voru í vetrarnæðingnum. Ætli henni sé ekki ógnarlega kalt? Skyldi hann aldrei hafa efni á að gefa lienni vetr- arkápu? Þegar þeir komu móts við veitinga- húsið, slóðu þeir við og töluðu saman í ákafa; Jóhannes andmælti því að verða samferða inn. Samstundis liljóp Ilildur litla lil þeirra og kallaði: »gott kveld pabhi!« Félagi hans leit til lians háðslega og mælti: »Jæja, ællarðu þá að koma með mér inn, eða þorir þú það ekki fyrir krakkaanganum þeim arna ? Reiðin sljófgaði aftur ásetning' hans, svo við sjálft lá að hann færi inn, bara lil þess að sýna að hann væri sjálfum sér ráðandi og hræddist engann. Verlu mér nú samferða lieim, cg hefi beðið guð fyrir þér, farðu því ekki inn

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.