Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1916, Blaðsíða 8

Æskan - 01.06.1916, Blaðsíða 8
48 ÆSRAN SIIÆLKI. Maðurínn: »Mér finst kaffið vera svo bragðvont hjá þér núna, elskan niín«. Konan: »Það er ekki að furða, þó þér finnist það; þú dýfir kleinunum ofan í blekbyttuna í staðinn fyrir kaffibollann#. ♦ ♦ ♦ í Ameríku-blaði einu stóð þessi skrítla: »Ef þú vilt fá þér góða og ódýra skemt- un, þá skaltu bjóða heim til þín öllum kunningjastúlkum þínum, sem ganga í liaft-pilsum. Svo þegar þær eru komnar inn I stofuna, þá skaltu sleppa einni eða tveimur lifandi rnúsuni á gólfið, — og skemtunin byrjar þegar í stað!« ♦ ♦ ♦ Fluga datt ofan í blekbyttu ritstjóra nokkurs, sem skrifaði mjög illa. Lítill drengur, sonur ritstjórans, bjargaði henni upp úr blekinu og lét liana á pappírs- blað á borðinu. Flugan skreið eftir blað- inu og lét eftir sig hlykkjótta blekslóð þar sem hún fór yfir. Drengurinn horfði á þetta nokkra stund og hrópaði svo frá sér numinn af undrun: »Mamma! Komdu og sjáðu. Hérna er fiuga, sem skrifar alveg eins og hann pabbi!« ♦ ♦ ♦ Kaupslaðarstúlkan (sem dvelur í sveit og hefir haltinn sinn alþakinn rósum og öðrum blómum, kemur hlauþandi til bónd- ans með allar kýrnar á eftir sér): »Hjálpið mér! hjálpið þér mér fljótt! Kýrnar ætla að ráðast á mig. Getið þér sagt mér, hvernig á því stendur?« Böndinn: »Ójá, það held ég nú. Kýrn- ar eru óvanar að sjá svona mikinn mat saman kominn á einu mannshöfði og vilja gjarnan fá að smakka á honum«. ♦ ♦ ♦ Drengur kom inn í brauðbúð og bað um 12 aura fransbrauð. Hann sá, að brauðið var ekki nögu stórt og sagði: »Petta brauð er áreiðanlega of lítið«. »Láttu þér vænt um þykja«, sagði bak- arinn, »því þú hefir þá því minna að bera«. Drengurinn tók brauðið, lagði 10 aura á borðið og gekk til dyranna. »Petta cru of litlir peningar!« kallaði bakarinn á cftir honum. »Gott fyrir yður«, sagði drengurinn, »því þá hafið þér því minna að telja!« ORÐSENDINGAR. 1. júlí eiga allir að vera búnir að borga Æskuna. Nýju bókina »Æsku- gaman« fá þeir um leið og þeir borga. Bréfspjöld og íleira þess konar, sem ýmsir hafa beðjð um að senda sér, verð- ur því að eins sent að borgun fylgi pönt- uninni, eða senda megi með póstkröfu, þegar um lítið þekta menn er að ræða. M. (}.! Greinin um »Upphaf ritaldar- innar« kemur í blaðinu í sumar. ,,í föðurleit“. Enn vantar nokkra út- sölumenn að þeirri góðu og ódýru sögu. Verð 40 aurar. Sölulaun 20 au. af krónu. Gamlir árgaugar Æskunnar -eru beztu og skemtilegustu barnabækur. Fá geta menn fengið sér senda út urn land gegn póslkröfu eða borgun fyrirfram. Ráðningar á dægradvöl í sfðasta blaði. 1. Þegar myndinni er snúið öfugt, sést bif- reiðarstjórinn standa vinstra megin við stóra tréð á miðri myndinni og snýr baki að því. Hann er með stór, dökk gleraugu. 2. Sól — ar — höll — sólarhöll. QOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO O ÆSKAN q kemur i'it oinu sinni í raánuði, og auk þcfis o skrautlegt jólaliefti, 112 blaðsiður alls. Koatar O 1 kr. 20 a. árg. og borgist fyrir l.júli, Sölulaun q ’/* Ö eintökum minst. O Útsendingu og innheimtu annast Sigurjón O jónsson. Afgroiðslustofa á Laugavegi 19 opin q kl. 8-8 daglega. Talsími 604. O Utaná8krift til blaðsins með póstum: o ÆSKAN. PóBthólf 12. Kvik. oooooooooooooooooooooooooooö Útgefendur: Adalbjöru Stofáussou og Sigurjón Jónssou. PrentKmiðjan Gutenberg,

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.