Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1916, Side 3

Æskan - 01.07.1916, Side 3
Æ S K A N 51 lijá kálfuuum þarna út frá, en nú liggur liann þarna«, svaraði hún. Já, þarna lá hann reyndar, hann Sveinn. En sú Guðs mildi! Hann var alveg ómeiddur, því að grasið, sem liann kollsteyptist ofan í, var bæði mikið og lungamjúkt. I-Ielena varð nú að segja föður sín- um upp alla söguna og sjma honum húsið og komu þá allir hvolpanir á móti honum gjálfrandi og gellandi. Hann tók þegjandi í hendina á Hel- enu og leiddi hana heim; var henni þá harðbannað bæði af móður sinni og kenslukonunni að fara nokkurn tima leyfislaust út fyrir garðinn. Um kvöldið kom ráðsmaðurinn lil fundar við Svein og færði honum peninga frá föður Helenu fyrir það, að hann liafði bjargað naulamann- inum; en um leið sagði hann hon- um, að hann þyrfti ekki að koma þangað framar, því að lians þyrfti nú ekki lengur við. þetta var nú í rauninni sama sem hann væri rekinn úr vistinni ódrengi- lega, enda fann Sveinn það fyllilega sjálfur. Grátandi kvaddi hann húsið sitl litla, þar sem hann hafði leikið sér svo ofl og ált svo marga glaða daga. Hann lók tvær fjalir og lagði fyrir dyrnar og liugsaði ekkert um, hvað yrði um það, sem þar var inn- anslokks; grátandi gekk hann svo út grundirnar og grátandi kom liann heiin lil móður sinnar. Þegar Sveinn sagði móður sinni farir sínar, þá varð hún eigi síður angurvær en hann. En í sömu svif- unum bar þar að kofanum vagn einn fagran, er nam slaðar úti fyrir dyr- unum. í vagninum sal roskinn heldri maður, sem þau þeldu ekki. Hann litaðist um í svip, eins og hann væri á báðum áttum, en svo gaf hann Sveini bendingu, því hann var kom- inn út i dyrnar. »Gelurðu sagl mér til vegar til Lyngbæjar, sonur?« spurði herra- maðurinn. »Já, reynt get ég það, en það er langt þangað«. »Mig grunaði nú hálfl um hálft, að ég liefði vilst«, sagði maðurinn. En það er þó víst ekki lengra þangað en svo, að ég komist þangað áður en svartnættið er komið«. »Þegar ég var hjá lienni ömmu minni í fyrra, þá náðuin við aldrei heim fyrir myrkrið«, mælti Sveinn og hristi höfuðið. »Já, vinur minn«, sagði maðurinn og deplaði gletnislega augunum, »þar kemur nú tvent til greina: í fyrsta lagi, hvenær þið fóruð þaðan að deginum og svo hve rösk hún amma þín var lil gangs«. »Ja, það var hún ekki meira en í meðallagi, því hún gengur við tvær hækjur«. »Á! var það svo? Þá vænkasl nú heldur ráðið fyrir mér, þvi að hvor- ugur hesturinn minn slaulast áfram á hækjum, og svo eru þeir ferfættir, en amma þín gengur áreiðanlega ekki nema á tveimur fótum. Jæja, segðu mér þá til vegar«. »Já«, svaraði Sveinn, og gerði sér nú auðsjáanlega far um að segja reglulega greinilega til vegar. »Fyrst farið þér beina leið niður að húsinu hans Jens Benks; þá beygið þér af til vinstri handar og lialdið spölkorn áfram eftir veginum, alt þangað sem hann Óli Jensen datt í fyrra og fót- brotnaði; þá beygið jiér af til hægri og haldið svo áfram veginn, þangað til þér komið að bænum hans Mads Hansens; þar farið þér fram hjá; þá beygið jiér enn af og farið fram hjá skólanum, fast hjá smiðjunni, og ef þér svo að öðru leyti farið veginn, þá getið þér ekki farið afvega«. (Frh.).

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.