Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1925, Qupperneq 2

Æskan - 01.09.1925, Qupperneq 2
66 Æ S K A N 7 ^ Falleg saga. (Sannir viöburöir). b 7 fci miðbik 16. aldar bjó auð- ;ur kaupmaður, Dobson að ifni, í Lundúnaborg. Hann k verzlun sína á mörgum stöðum, en einkabústaður hans, sem var skrauthýsi mikið, stóð á bakka Thems- árinnar svo framarlega að bylgjur hennar freyddu upp um gluggana á neðstu hæð hússins. Að þessu leyti var húsið hvorki ánægjulegur né eftirsóknarverður bústað- ur; en húsið var ættareign Dobsons og hann gat varið það fyrir raka og kulda með kostbærri upphitun, svo þess gætti ekkert inni, þó húsið væri alþakið ís og hrími að utan. Dobson kaupmaður var ekkjumaður og átti dóttur eina barna, átta ára að aldri. Hún hét Betsy og var einstaklega falleg stúlka með blá augu og glóbjart hár. Þessari dóttur sinni unni hann mjög heitt og sá ekki sólina fyrir henni. Það var föst regla hjá hinum alvarlega kaupsýslumanni, er hann kom heim af skrifstofu sinni á kveldin, að taka Betsy litlu á kné sér og dilla henni þar og jafnframt að segja henni sögur og æfin- týri. Svo bar til seinni part eins sunnu- dags, að Betsy litla sat við glugga á efri hæð hússins. Fyrir neðan gluggana ólg- aði og svall Themsáin með óvenjulegum gný. Bylgjurnar risu og freyddu kolmó- rauðar i háa loft og hinir risavöxnu bakkar fljótsins nötruðu undan föllum þeirra. Betsy horfði á öldurótið með duldum ótta og henni virlist eins og dimmur skuggi hefði lagst yfir ána, og hvítu máfarnir, sem svifu gargandi yfir öldunum, virtist henni vera englar, sem væru að leitast við að lægja ofsann í náttúruöflunum. Dobson var einmilt að segja henni frá hinum mörgu skipum, er færust á sjón- um í slíku ofviðri sem þessu, þegar þjónninn kom inn og sagði, að einn verzlunarnemendanna, Osborn að nafni, væri kominn. »Láttu hann koma inn!« sagði kaup- maður. Að vörmu spori kom Osborn inn. Hann var laglegur piltur og vel vaxinn, fjórtán ára að aldri og átti að fermast að tveimur mánuðum liðnum. Dobson kaupmaður hafði tekið hann að sér, því hann var bæði föður- og móðurlaus og Osborn endurgalt fóstrið með einstakri ástundun og trúmensku. Honum var líka oft trúað fyrir mikilvægum störfum. Að þessu sinni kom hann með all- stóra fjárupphæð, sem hann hafði tekið út úr Lundúnabanka og kaupmaðurinn ætlaði einmitt að fara að lofa nákvæmni drengsins og áreiðanleik, þegar þeir heyrðu angistaróp í herberginu og hann fór að gæta að hvaðan það kæmi. Hann þaut í ofboði upp af stólnum og varð mállaus af skelfingu. Staðurinn i glugganum, þar sem Betsy hafði setið, var auður. Glugginn skeltist til og frá opinn og brimúðinn lék um náfölt andlit kaup- mannsins, eins og hann vildi gera gys að harmi þeim, er sveið í hjarta föðurs- ins. Betsy litlu hefir sennilega brugðið við og orðið hrædd, er glugginn hrökk upp, mist jafnvægið og fallið úr þessari ógn- arhæð ofan í hvæsandi djúpið fyrir neðan. Dobson ætlaði að fara að kalla á bjálp, en í sömu svifum, sem alt þetta gerðist, var honum hrundið frá og var það Os- born, sem með tindrandi augum og llaksandi hár þaut upp í gluggann og steypti sér niður í fljótið og hrópaði há- stöfum um leið: »Guð hjálpi mér nú!« Hann fór á bólakaf í ána sem belgd var upp af froðu og þangi. Fall hans var svo hátt og hart, að hann sökk nærri því til botns; en ákall hans um aðstoð Guðs varð ekki árangurslaust,

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.