Íslensk endurreisn - 11.05.1933, Side 1
I. árg., 1. ttol
Reykjavík, fimtudaginii 11. maí 1933
Einkunnarord: „Verdi gróandi þjédlíf meÖ Jiverrandi tár, sem Jjrcskast á guösrikis braut“,
F
Ritstjóri: Eiður S. Kvaran. — Útgefendur: Nokkrir
Þjóðernissinnar i Reykjavík. — Afgreiðsla: Ingólfshvoli,
2. hæð.
íslensk Endurreisn kemur út vikulega. -
ins 6 krónur. Verð í lausasölu 15 aurar.
Fjelagsprentsmiðjan.
Verð árgangs-
- Prentsmiðja:
Ávarp
til Islendinga T
íslendingarl Konur og mennl
Þegar Framsóknarflokkurinn tók við völdum hér
á landi fyrir tæpum sex árum síðan, þá hjet hann
j)jóðinni „gulli og grænum skógum". Fje ríkisins
skyldi spara'ö, engin ný lán tekin, útgjöldin stórlega
lækkuð, embættum fækkað o s. frv. Ný og betri öld,
öld friðar, rjettlætis og velsæmis átti að renna yfir
þjóðina.
í sex ár samfleytt hafa Framsóknarmenn haft
tíma og tækifæri til þess að efna loforð sín. 1
sex ár samfleytt spyr íslenska þjóðin þessa
menn: hvar eru efndirnar. Landinu hafa þeir
sökt í botnlausar skuldir. Árlega verður íslenska
ríkið að greiða 3 >/2 miljón króna í vexti og af-
borganir einar; m. ö. o. á herðar hvers íslensks
mannsbarns er lagður skuldabaggi er nemur
350 kr. árlega. Stórlán hafa verið tekin með hin-
um óhagstæðustu kjörum. Fé ríkisins hefir
verið eytt af hinu mesta fyrirhyggjuleysi. Em-
hættum, ýmist lítt þörfum eða alóþörfum hefir
dgnt niður yfir fylgismenn stjórnarinnar. Sam-
tímis hafa verið lagðir óhóflegir skattar á
landsins þegna, sem þeir fá eigi risið undir leng-
Ur. Ástandið versnar dag frá degi. Hundruð,
Jafnvel þúsundir manna hafa orðið atvinnulaus-
ir í landi með ótæmandi auðsuppsprettum. Og
valdhafarnir horfa á aðgerðalausir og hreyfa
hvorki legg né lið. Þannig er högum lands og
Þjóðar komið eftir sex ára stjórn þessara
Wanna.
Nú rísa þeir upp og æpa í sífellu: „Ástandið
er kreppunni að kenna, við erum saklausir,
það er kreppan, sem ætlar okkur alveg að
drepa.“ Kreppan er það hálmstrá, sem þeir
grípa nú í dauðahaldi og hyggja, að bjarga
muni pólitísku lífi sínu. Kreppan á að afsaka
allar þeirra pólitísku stórsyndir. Henni kenna
þeir um alla eyðsluna, óhófið og alt bitlinga-
farganið. Og þó er það staðreynd, að kreppan
^kali ekki yfir þjóðina fyr en valdhafarnir voru
húnir að koma málum hennar í hið mesta öng-
þveiti.
Ástandið er því ekki kreppunni að kenna, ekki
ytri aðstæðunum, heldur mönnunum sem með
óverjandi fyrirhyggju- og ábyrgðarleysi hafa
stjórnað landinu undanfarin ár.
Jafnframt þessu láta valdhafarnir það við-
gangast, að erindrekar erlends ríkis vaði hér
uppi með ópum og yfirgangi.
í skjóli núverandi stjórnar
fá Kommúnistar að svívirða alt sem öðrum
mönnum er helgast, alt frá guðshugmyndinni
til þjóðernistilfinningarinnar.
í skjóli núverandi stjórnar
etja þeir manni gegn manni og stétt gegn stétt.
I skjóli núverandi stjórnar
vinna þeir að því, að kollvarpa því þjóðskipu-
lagi, sem hún er fulltrúi fyrir!
í skjóli núverandi stjórnar
svívirða þeir fána vorn, fána vorn, sem ekki er
að eins tákn um sjálfstæði vort, heldur einnig
tákn margra alda sjálfstæðisbaráttu vor íslend-
inga, baráttu, sem allir okkar bestu menn —
frá Jóni Arasyni til Jóns Sigurðssonar — hafa
helgað alt sitt líf.
Vjer íslenskir Þjóðernissinnar getum ekki
þolað þetta lengur. Vér getum eigi þolað það
lengur, að erlend leiguþý fái óhindrað að traðka
á öllu því sem íslenskt er, og sópa burtu þúsund
ára íslenskum venjum og íslenskri menningu.
Vjer fáum eigi þolað lengur stjórn, sem er bæði
dáðlaus og rög! Hér er ekkert brúk fyrir menn,
sem hugsa um bein og bitlinga en ekki um
þjóðarheill! Hér er ekkert brúk fyrir þing, þar
sem sjöttihver maður er bankastjóri!Hérerenn-
fremur ekkert brúk fyrir stjórn, sem heldur
verndarhendi yfir landráðaskríl! Fyrir föður-
landssvikara er hjer enginn staður — annars-
staðar en í steininum! Ef oss tekst eigii að vinna
bug á þeim óheillaöflum, sem nú um hríð hafa
unnið að tortíming ríkis og þjóðar
þá er ný Sturlungaöld í aðsigi, þá er
sjálfstæði vort í veði.
Afleiðing Sturlungaaldarinnar forðum var
missir sjálfslæðis vors. Afleiðing Sturlungaald-
ar þeirrar, er nú vofir yfir þjóðinni mun verða
hin sama, ef hún þekkir eigi skyldu sina...
Vér íslenskir Þjóðernissinnar höfum nú haf-
Vakna.
Valma, unga íslands þjóð.
Upp með fána frjálsrar þjóðar,
fána okkar kæra lands.
Finn í æðum ólga blóð,
yngt af sumri sólarglóðar,
sigiireldi vorhugans.
Upp með fána frjálsrar þjóðar,
fána oklcar kæra lands.
Vakna, unga Islands þjóð,
ættjörð kallar, krafta leysið,
krafta æskuvilja og þors,
syngið vorsins sigurljóð.
Sóley byggið, ræktið reisið,
ríki skapið blóma og vors. 1
Ættjörð kallar, krafta leysið,
krafta æskuvilja og þors.
Vakna meðan vorið skín.
Vertu lands þíns stoð og styrkur,
stefndu á markið bjart og hátt.
Glæddu visku sólar sýn,
sannleiksþjóð ei þolir myrkur,
þú átt lífsins unga mátt.
Vertu lands þíns stoð og styrkur,
stefndu á markið bjart og hátt.
K j a r t a n Ó 1 a f s s o n.
ist handa. Vér viljum reisa úr rústum, það sem
valdhafar síðustu ára hafa rifið til grunna. Vér
viljum taka oss íslenska endurreisnarmenn til
fyrirmyndar, bæði í hugsun og verki. Arfur-
inn, sem eftir þá liggur er mikill og dýr. Vjer
viljum hlúa að honum og gæta þess, að hann
glatist aldrei. Vjer viljum samstilling allra ís-
lenskra krafta að einu marki: Heill og ham-
ingju þjóðar vorrar. Starfið, sem fram undan
oss liggur, er bæði mikið og margt, en vjer
munum ekki leggja hendur í skaut, fyr en því
er lokið. Vjer væntum þess, að hver sani\ur
tslendingur, sem ann landi sínu og þjóð, fylki
sjer undir merki vort.
Ættjörðin á heimting á, að þjer sjeuð
við, þegar annars vegar er verið að leiða
hana í glötun og hins vegar verið að
bjarga henni frá glötun.
Baráttan gegn „íslands óhamingju“ er hafin
og henni verður haldið áfram, uns yfir lýkur.
„Verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem
þroskast á guðsríkis braut“.
Lifi ísland, þjóð og ríki!