Ísland - 29.08.1936, Blaðsíða 1
Hðskíla Islaads sjnd sníTirðiQg.
Sigurdur Einarsson verður skipaður prófessor í guðfrœði.
Búast má við öílugum mótmœlum kennara og nemenda gegn
yiirgangi ríkisstjórnarinnar í garð Háskólans.
Hinir marxistísku undirmálsmenn hafa alla tíð sýnt
Háskólanum beinan f jandskap. Þeir rændu hann 100
þús. kr. af ágóða happdrættisins og hótuðu að leggja
skólann niður, væri því ekki tekið möglunarlaust.
Hvert gerræðið í garð hans hefir rekið annað, og nú
ætla þeir að svívirða minningu Jóns Sigurðssonar með
því að gera Sigurð Einarsson að prófessor í guðfræði.
Ríkisstjórnin ætlar ekki að
gera það endasleppt með of-
beldið gegn Háskóla Islands.
Það er heldur engin von til þess,
að ráðherrarnir, sem játa hina
marxistísku trúarjátningu, beri
hlýjan hug til Háskólans, því
að hann er, eins og kunnugt er,
stofnaður til minningar um
þjóðhetjuna Jón Sigurðsson.
Marxisminn er menningar-
fjandsamleg skrílstefna, og um
hann safnast hinir óþjóðlegu
undirmálsmenn, sem nú hafa
völdin í landinu.
Og Háskólinn, þessi frjáls-
lynda menntastofnun, sem ætl-
að var það göfuga hlutverk, að
vera vörður hins íslenzka þjóð-
ernis, fékk fljótt að kenna á
hatri og þröngsýni hinna menn-
ingarsnauðu marxista.
Veturinn 1935 ákvað ríkis-
stjórnin og liinn marxistíski
meirihluti á Alþingi, að ræna
Háskólann ágóðanum af happ-
drætti hans, sem nam hvorki
meira né minna en 100 þús.
krónum.
Fyrir þetta fé átti að byggja
rannsóknarstofnun Háskólanum
algerlega óviðkomandi, og sem
hann hafði engin ráð yfir. Þetta
gerræði marxista mætti öflugri
motspyrnu innan Háskólans,
bæði meðal prófessora og
stúdenta. Jafnvel hinir vit-
grönnustu fylgjendur ríkis-
stjörnarinnar meðal stúdenta
sáu, að með þessu var sjálf-
stæðri tilveru Háskólans stefnt
í voða og lögðust af alhug gegn
arðráni stjórnarflokkanna.
En ríkisstjórnin ..barði alla
mótspyrnu niður með harðri
hendi og beitti árangurslaust
áhrifum sínum til að fá form.
Félags þjóðemissinnaðra stúd-
enta rekinn úr skólanum. Hann
hafði haft forustuna í bárátt-
unni gegn „lögum og rétti í
landinu“!
Næsta ofsókn marxista gegn
Háskólanum var jafn svívirði-
leg en miklu lúalegri.
Hinum þjóðkunna og
víðsýna fræðimanni Ólafi
Lárussyni prófessor var
opinberlega hótað stöðu-
missi fyrir að leyfa birt-
ingu íyrirlestrar eftir sig
í Mjölni, sem gefinn er
út af þjóðernissinnuðum
stúdentum.
Þessi ruddalega og ósvífna
framkoma hinna marxistísku
undirmálsmanna varð aðeins til
að þjappa öllum frjálshuga
menntamönnum enn fastar
saman um hag og heill Háskól-
ans.
En ofsóknum ríkisstjórnar-
innar gegn sjálfstæði Háskólans
og minningu Jóns forseta var
ekki þar með lokið.
Fyrir skömmu átti að skipa
prófessor í lagadeildina. Ríkis-
stjórnin hafði að Háskólanum
forspurðum sent ungan mann
til nokkra mánaða náms í Kaup-
mannahöfn, en þá hafði verið
erlendis á vegum Háskólans
efnilegur lögfræðingur, til að
fullnuma sig og búa sig undir
að taka við kennslu við Háskól-
ann.
Háskólinn óskaði eftir sam-
keppni milli þeirra um stöðuna,
en skjólstæðingur ríkisstjórnar-
innar treysti sér ekki til þess.
Hin menningarfjandsamlega
ríkisstjórn skipaði samt í stöð-
una þann manninn, sem enga
kunnáttu gat sýnt, og braut
með því lög og reglur Háskól-
ans og venjur allar í veitingu
embætta við hann.
Hún ber sýnilega ekki hag
Háskólans fyrir brjósti með
þessari ráðstöfun, heldur er hún
að ræna hann sjálfsákvörðunar-
réttinum og brjóta niður þau
þjóðlegu menningaröfl, sem í
skólanum ráða.
Fyrir nokkrum dögum sendi
Alþýðusamband Islands út á-
skorun til allrar alþýðu og vinn-
andi manna á íslandi, um að
hefja samskot til styrktar
marxistum á Spáni. Svo djörf
eru þessi ómenni, sem kalla sig
forvígismenn hins íslenzka
verkalýðs, að þeir voga sér að
bera fram sem ástæðu fyrir
þessu athæfi sínu, að hina
spönsku skoðanabræður þeirra
skorti vopn og eiturgas, til að
drepa samlanda sína.
Hvenær kemur röðin að þér,
íslenzki verkalýður ? Hvenær
krefjast þessir sömu menn að
þú látir líf þitt og limi á víg-
vellinum ?
En íslenzk alþýða er friðsöm,
hún þekkir ekki annað stríð en
lífsbaráttuna og það heyir hún
með sæmd.
Bölvaður veri sá, sem verður
þess valdandi, að leiða hana inní
deilur og blóðsúthellingar stór-
þjóðanna, sem koma henni ekki
við.
Góðir Islendingar! Þið sjáið
Allir kennarar Háskólans
með tölu hafa líka birt opin-
berlega eindregin mótmæli gegn
þessu gerræði ríkisstjórnarinn-
ar og gera þá réttmætu kröfu,
að skólinn ráði sjálfur sínum
málum framvegis sem liingað
til.
En það er ekki öll nótt úti
enn. Ofsóknirnar gegn æðstu
menningarstofnun þjóðarinnar
eru aðeins að hefjast.
Nú sem stendur er einn kenn-
arastóll í guðfræði laus, þar eð
prófessor Sigurður Sívertsen
lætur af embætti í haust.
Háskólinn tekur til starfa um
miðjan næsta mánuð og verður
ávöxt stéttastríðsins á Spáni,
þið sjáið samúð íslenzkra vald-
hafa með stríði og morðunum
þar.
Allt stríð, í hvað tilgangi, sem
það er háð, er jafn andstyggi-
legt. Lýsið fyrirlitningu ykkar
á stríði með því að gefa ekki
einn einasta eyri til eiturgas-
samskota Alþýðusambandsins,
— og með því að snúa baki að
þeim mönnum, sem með hræsni
vilja gera ykkur að þátttakend-
um í villimennsku stríðsins.
Segið þeim að gefa sitt eigið
fé til blóðsúthellinga á Spáni,
því það ert ekki þú, íslenzkur
verkalýður, sem átt að blæða
fyrir marxistana á Spáni.
Mitt á meðal okkar sjálfra
eru verkefni, sem bíða úrlausn-
ar. Við skulum vinna að því, að
gera ísland að fyrirmynd frið-
ar og réttlætis og að brúa bilið
milli stétta og einstaklinga, Það
er að vera friðarhugsjóninni
trúr. — Það er að vera sannur
Islendingur, — sannur íslenzk-
ur þjóðernissinni.
Helgi S. Jónsson.
Gegn stríði og marxisma.
Fullkomins hlutleysis ber að gæta gegn
styrjöldinni á Spáni. Umsvifalaust ber að
banna samskotin til eiturgaskaupa handa
spönsku marxistunum.