1. maí - Akureyri - 01.05.1946, Síða 1

1. maí - Akureyri - 01.05.1946, Síða 1
'IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIimillllllllllllllllld Engan her landinu! ^iifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiimiiiiii Útgefandi: Fulltrúaráð verklýðsfélaganna •MMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMII * ( Reisum ( veglegt 1 Alþýðu- hús • iimmiiiimimmimmmmmmiiimmiim Avarp Enn einu sinni er 1. maí, hátíöis- og baráttudagur verkalýösins, runninn upp. Enn einu sinni ber íslenzki verkalýðurirm fram kröfur sínar um bættan hag og betri aöstööu í þjófélaginu, og jafnframt lítur hann til baka og minnist þeirra sigra, sem unnizt hafa á liönum árum. Sú barátta, sem launþegasamtökin í landinu hafa háð fyrir fullu jafnrétti viö aðrar stéttir þjóðfélagsins er þegar orðin löng og hörð. í þessarri réttindabaráttu sinni hefir verkalýðurinn jafnan átt við ramm- an reip að draga og mætt harðvítugri mótspyrnu. En hann hefir aldrei látið undan. Hann hefir ætíð sótt á brattann, hversu torfær sem Ieiðin hefir virzt, og hversu mjög sem á móti hefir blásið. Og hægt og hægt hefir miðað í áttina. Alþýða landsins hefir unnið hvern sigurinn á fætur öðrum. Yfirráðastéttirnar hafa stöðugt orðið að láta, undan og viður- kerma réttindi hertnar. Kröfunni um átta stunda vinnudag hefir þegar fengizt framgengt, og fjölmörgum öðrum réttarbótum hefir samtökum alþýðunnar tekizt að koma í kring. A þessum hátíðisdegi verkalýðsins, 1. maí 1946, getum við því, þrátt fyrir allt, litið íagnartdi yfir farinn veg. En engu að síður verðum við að horfast í augu við þá staðreyrtd, að ennþá er margt óunnið. Verkalýður Islands á ennþá harða baráttu fyr- ir höndum. Baráttu, sem ekki verður lokið fyrr en harm hefir öðlast fullkomið jafnrétti við aðrar stéttir þjóðfélagsins, tryggingu fyrir ör- uggri atvinnu og mannsæmandi lífskjörum. Að þessu marki verðum við að keppa á næstu árum, og ef við verðum nógu ákveðin og samtaka, mu nokkur reynast það auðvelt. Samtök verkalýðsins mega ekki láta neina irmbyrðis sundrung tor- velda leiðina að settu marki. Og mirmugur þess, að „sameinaðir stönd- um vér, en sundraðir föllum véf“, lyftir íslenzkur verkalýður merkjum sínum í dag og leggur ótrauður út í lokabaráttuna. FULLTRÚARÁÐ VERKLÝÐSFÉLAGANNA. Nýtt AlþýÖuhús Eitt af þeim áhugamálum, sem eru ofarlega á dagskrá hjá verklýðs- félögunum í bænum, er bygging al- þýðuhúss. Sennilega hefir aldrei verið meiri þörf en nú, að leysa þetta mál, því að húsnæðisvand- ræði þau, er félögin eiga við að stríða, _er og hefir verið hemill á á eðlilegri þróun verklýðssamtak- anna. Úr þessu þarf að bæta hið bráð- asta, því að starfsemi verklýðssam- takanna hér er orðin svo víðtæk og margþætt, að stóraukinn húsakost- ur er henni hin mesta nauðsyn. — Undanfarin ár hefir Fulltrúaráð verklýðsfélaganna haft forgöngu um málið, og fjársöfnun í því augnamiði, bæði haust og vor, þetta fjáröflunarstarf hefir gengið vel til þessa, en betur má ef duga skal, öil- um verkamönnum er löngu ljóst orðið, hve aðkallandi það er fyrir verklýðsfélögin, að koma upp nægi- lega stóru og hentugu húsi, sem fullnægt gæti þörfum félaganna á komandi árum. Enda hafa margir af hinum framsýnustu og fórnfús- ustu meðlimum félaganna, lagt mikið af mörkum, og greitt fyrir málinu á marga lund. Að koma upp stóru og vönduðu húsi, er mikið átak, og miklum erfiðleikum bund- ið vegna fjárskorts o. fl. En slíkt yrði tiltölulega auðvelt að yfirstíga ef allir væru samtaka um að láta þá hugmynd verklýðssamtakanna vcrða að veruleika, og sjá þeirra eigið hús rísa af grunni stórt og fag- urt. Ágóði af 1. maí-hátíðahöldunum að þessu sinni, sem áður, rennur óskiptur í hinn sameiginlega hús- byggingarsjóð félaganna, merki verða seld á götunum allan daginn og samkomur verða um kvöldið, og vænti eg þess að allir velunnarar verklýðssamtakanna taki virkan þátt í fagnaði dagsins, með því að sækja samkomur þær er Fulltrúaráð verklýðsfélaganna stendur að, og stuðli þannig að því, að árangur há- tíðahaldanna verði sem allra glæsi- legastur. Félagar! Gerum nú allt sem í okkar valdi stendur til þess að efla hússjóð félaganna þennan dag, því fyrr verður takmarkinu náð. Jón Ingimarsson. íslendingar! Sföndum vel á verði um frelsi og sjálfsfæði þjóðarinnar Á landsfundi sambandsstjórnar AÍþýðusambands fslands, sem haldinn var í Reykjavík um mánaðamótin október og nóvember síðastliðið haust, var einróma samþykkt eftirfarandi ályktun í sjálfstæðismálum íslenzku þjóðarinnar: „Fundurinn ályktar að lýsa J)ví yfir í nafni íslenzkrar aljjýðu, að hann telur fullkomið sjálfstæði íslands höfuðskilyrði fyriir efnahagslegu og menningarlegu sjálfstæði vinnandi Ifólks í landinu, og n'auðsynlegra nú en nokkurn tíma fyrr að alþýðan skilji hve atvinnulegt öryggi og hag- sæld í framtíðinni eru órjúfanlega tengd sjálfstæði landsins. Vegna þessa lýsum við öruggum stuðningi samtaka vori-a við hvert það spor, sem stigið er til þess að tryggja sjálfstæði landsins og teljum J>að bezt gert með eftirfarandi aðgerðum: 1. Að sameina öll þjóðleg öfl til að vinna að J>eirri nýsköpun atvinnu- veganna, sem núverandi ríkisstjóm heíir á stefnuskrá sinni, svo að ís- land megi verða efnahagslega sjálfstætt gagnvart öðrum þjóðum. 2. Að einskis sé látið ófireistað til Jiess að ísland geti sem fyrst gerzt frjáls aðili að bandalagi hinna sameinuðu þjóða. 3. Að staðið sé trúlega á veaði gegn hvers konar tilburðum erlendra ríkja og innlendra erindreka þeiiTa til íhlutunar, áhrifa eða sérstöðu hér á landi. Vér munum líta á hverja slíka málaleitun, hvaðan sem hún kann að koma og í hvað'a mynd sem hún birtist, sem ógnun við sjálfstæði vort og tröðkun á yfirlýstum vilja hinna sameinuðu þjóða um að virða sjálfstæði og ákvörðunarrétt smáilíkjanna, og telja J>að ótvíræða skyldu valdhaJfa landsins, þings og stjórnar að svara hverri slíkri móðgandi áleitni með hiklausri neitun. Vér teljum það fyrstu skyldu alþýðusamtakanna að styðja að fram- gangi ofangreindra ráða til að tryggja sjálfstæði landsins, og beita öllu því afli og valdi, sem þau búa yfir til varnar hverri hættu, sem steðja kann að sjálfstæði íslands og frelsi þjóðarinnar.“ Þannig markaði Alþýðusambandið stefnuna á síðastliðnu hausti, og þessi orð eiga vissulega erindi til þjóðarinnar enn í dag. Því verður ekki með rökum neitað, að sjálfstæði þjóðarinnar er nú í hættu statt, og því ríður á, að vér séum vel á verði og vísum á bug öllum þeim, sem vilja ganga á rétt vorn. — 17. júní 1944 er oss enn í fersku minni. Þann dag rætttist hjartfólgnasti draumur allra frelsisunnandi ís- lendinga. íslenzka þjóðin lýsti yfir fullu sjálfstæði á sínum helgasta stað, Þingvöllum við Öxará. En vér fengum ekki frelsi vort fyrirhafnarlaust. Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar var löng og hörð. Hún kostaði ævistarf margra hinna beztu og dugmestu manna, sem ísland hefir alið. En Jm> að sjálfstæði vort sé enn ungt að árum, er erlent stórveldi þegar tekið að seilast til yfirráða hér. Bandaríki Norður-Ameríku hafa hér hér- stöðvar og hafa farið fram á að fá að hafa þær áfram. Við slíkum mála- leitunum eigum vér aðeins eitt svar: NEI og aftur NEI. Og hvenær sem erlend ríki kunna að fara J>ess á leit, að vér afsölum oss fullum yfirráðarétti yfir fósturjörð vorri, íslandi, skulum vér minn- ast Jóns Sigurðssonar og þingfulltrúanna á Kópavogsfundinum 1851 og taka undir með þeim: VÉR. MÓTMÆLUM ALLIR. n i Beztu tækifærisgjafirnar eru handsmíðaðir gull- og silfurmunir. Gullsmíðavinnustofa Sgtryggs Helgasonar og Eyjólfs Árnasonar, SkijDagötu 8. Skófatnaður: LANDS80KASAFN I Jv'í 165172 f SJBANDS Kvenna Barna Unglinga Karlmanna Skófatnaður í miklu úrvali RAUPFELAG EYFIRÐINGA Skódeild W><h><h><h><h><h><h><h><h><h><b><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><h><

x

1. maí - Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Akureyri
https://timarit.is/publication/395

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.