Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 2

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 2
98 BJARMI Kirkjufundurinn almenni. 23.-25. júní 1935. Margar voru spárnar og ólíkar þegar verið var að undirbúa kirkjufundinn. »Við berjum það í gegn«, sögðu prestahatarar um samsteypufrumvarpið í vetur sem hið. »Ætli það sje til nokkurs að malda í mó- inn?« sögðu hugdeigir menn. »Vjer skul- um reyna að semja og- ganga að einhverri fækkun«. — Svartsýnir bættu við: »Pað koma ekki nema sárfáir á þenna kirkju- fund, —- og þá er ver farið en heima setið«. En þetta fór allt á annan veg. Aldrei hefir verið haldinn jafnfjölmennur kirkju- málafundur á þessu landi og enginn kjark- leysisandi ljet þar á sjer bera. Fundurinn hófst með guðsþjónustu í dómkirkjunni kl. 11 árd. sunnud. 23. júní. Var kirkjan meira en fullsett. Sra Eiríkur á Útskálum flutti stólræðu en sra Garðar í Hafnarfirði var fyrir altari. Kl. 2 síðd. var svo fundur settur í húsi K. F. U. M. og var fundarsalurinn helst til lítill, vegna þess fjölmennis, er kom þangað. — Gísli sýslumaður Sveinsson formaður undirbúningsnefndarinnar setti fundinn. Voru síðan fundarstjórar, ritarar og ýms- ar nefndir kosnar. I>á flutti Gísli Sveinsson inngangserindi um prestakallaskipun. Urðu um það mál fjörugar umræður á eftir, er stóðu til kl. 7, að fráteknu stuttu hljei til kaffidrykkju. Ræðumenn, 14 alls, voru allir alveg á móti samsteypufrumvarpinu, að einum frátekn- um, Arnóri Sigurjónssyni fyrrverandi skólastjóra, kvaðst hann eiga mestan þátt í frumvarpinu og reyndi þá auðvitað að verja það, en fjekk svo eindregin andmæli, að hann hvarf brátt af fundinum. Sra Friðrik Rafnar flutti erindi í dóm- kirkjunni um þetta sama mál kl. 8-J un> kvöldið. Morguninn eftir hjeldu fundarhöldin á- fram. Morgunbænir annaðist sra Friðrik Hallgrímsson og á eftir fluttu þeir Ásm. Guðmundsson prófessor og ölafur Björns- son, kaupm. á Akranesi, erindi um sam- starf presta og leikmanna. Urðu um það miklar og fjörugar umræður. Komu ræðumenn víða við, en yfirleitt voi’u ræðurnar fullar af alvörumiklum trú- aráhuga, og þótti mörgum áheyrenda eft- irtektarvert, hvað nokkrir kennarar og bændur lögðu góðan skerf til í þeim efn- um. — 15 manna nefnd var sett til að und- irbúa tillögur í þesu máli. Seinni hluta dags flutti nefndin, sem sett hafði verið í prestakallamálið þessar tillögur: Almennur kirkjufundur í Rvík 23.—25. júní 1935 lýsir yfir því: 1) Að hann er mðtfallinn frumvarpi því um skipun prestakalla, sem fram er komið á Alþingi frá milliþinganefnd 1 launamálum, og telur að yfirleitt beri alls eigi að fækka prestum frá því sem nú er, né heldur að sameina prestaköll landsins frekar en gildandi lög (frá 1907) gjöra ráð fyrir. 2) Að þær breytingar, sem til greina gætu komið á núverandi skipun prestakaila, eða kirkna og sókna, hvort sem er til sameiningar eða að- skilnaðar í einstökum tilfellum, eigi því aðeins að fara fram, að þær verði að teljast samkvæmar eðlilegri þróun kirkjumálanna og hlutaðeigandi söfnuðir æski þeirra. 3) Að loks gæti komið til greina, ef almenn- ingsvilji reyndist að vera fyrir þvl, að lögin utn skipun prestakalla nr. 45, 16. nóv. 1907 yrði end- urskoðuð 1 heild með það ákveðna markmið fyrir augum, að lagfæra það, sem ábótavant þykir, svo að kristni og kirkju landsins verði enn bet- ur borgið en nú er. Getur þá eins vel lcomið til mála, að fjölga verði prestum á ýmsum stöð- um í landinu, svo sem í Reykjavik og' víðar, setn er aðkallandi, svo og að fela þjónandi prest- urn nokkur kennslu- og skólastörf um leið og kjör þeirra yrðu bætt. Fyrsta og önnur tillag'an var samþykkt með öllum atkvæðum, og sú þriðja með öll- um atkvæðum gegn tveimur. Kirkjunefnd og sóknarnefnd dómkirkj- unnar annaðist kaffiveitingar handa fund- armönnum um kl. 4 síðd. og var þangaö boðið skáldkonunni frá Ameríku, frú Jak-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.