Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1935, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.07.1935, Blaðsíða 3
B J ARMI 99 obínu Johnson, er ávarpaði fundinn og flutti kveðjur að vestan. Var henni vel fagnað. Um kvöldið flutti Vald. Snævarr skóla- stjóri erindi um safnaðafræðslu. Þriðjudagsmorgun kl. 9,45 hófst fundur að nýju með morgunbænum, sem Kn. Zimsen, fyrv. borgarstjóri, annaðist. Að þeim loknum tóku við fjörugar um- ræður, sem heita mátti að stæðu hvíldar- lítið allt til kl. 8 síðd., þótt nokkurt hlje væri gefið til miðdegisverðar og kaffi- drykkju síðdegis, þar sem Kvenfjelag fri- kirkjusafnaðarins í Rvík veitti fundar- mönnum ókeypis gcða hressmgu. Frá samvinnunefnd komu þéssar tillög- ur, er samþykktar voru í einu hljóði: 1) Kirkjufundurinn kýs sjö manna nefnd úr öllum landsfjórðungum og' aðra sjö til vara til þess að undirbúa næsta almenna kirkjufund ár- ið 1937, og hafi nefndin jafnframt með höndum milli funda yfirstjórn mála, sem varð'a samvinnu presta og leikmanna, til eflingar kristni lífi, svo og framkvæmdir þar að lútandi. 2) Kirkjufundurinn felur undirbúningsnefnd- inni að beita sjer fyrir því, að prestar og leik- menn ferðist um landið, flytji guðsþjónustur og erindi um andleg efni og veki og glæði í söfn- uðunum samstai-f að kristindómsmálum. Jafn- framt skorar fundurinn á kirkjustjórnina að veita fje í þessu skyni. 3) Fundurinn telur æskilegt, að árið 1936 verði haldnir í öllum landsfjórðungum sameigin- legir fundir presta og fulltrúa leikmanna og hafi undirbúningsnefndarmennirnir forgcngu, hver í slnum fjórðungi. 4) Fundurinn heitir á presta og kennara að efla og treysta samvinnu sin á milli til glæð- ingar trúarlífi og siðgæði barna og unglinga á kristilegum grundvelli. I þessa undirbúning’snefnd voru þeir all- ir endurkosnir, er undirbúið höfðu þenna fund: Gísli Sveinsson, sýslumaður, Ásmund- ur Guðmundsson, prófessor, sra Friðrik Rafnar, Ölafur Björnsson, kaupmaður, Sigurbjörn Á. Gíslason, ritstjóri, sra Sigur- geir Sigurðsson, prófastur, og Vald Snæv- arr, skólastjóri. En til vara voru kosnir: Sra Guðbrandur Björnsson, prf., Hofsós, sra Jakob Einarsson, próf., Hofi, sra Hall- dór Kolbeins, Stað, Sigurður Halldórsson, húsasmíðameistari, Rvík, Sigfús Sigur- hjartarson, kennari, Rvík, Frímann Ölafs- son kaupmaður, Rvík., og sra Björn Magn- ússon, Borg. Ennfremur voru samþykktar þessar tillögur, er flestallar höfðu farið um hendur allsherjarnefndar: 1) Fundurinn skorar á kirkjustjórnina að aug- lýsa Þingvallaprestakall í Árnesprófastdæmi laust til umsóknar nú þegar. 2) Hinn almenni kirkjufundur í Reykjavik skorar á presta landsins að vinna að bindindis- starfsemi 1 sóknum sinum. 3) Fundurinn telur brýnustu þörf á hæli til hjálpar og viðreisnar ofdrykkjumönnum og skor- ar á ríkisstjórn og' Alþingi að gera nauðsynleg- ar ráðstafanir til þess að slíkt hæli verði reist eins fljótt og unt er. 4) Hinn almenni kirkjufundur í Reykjavík skorar á fræðslumálastjórnina, að sjá um að prestar skipi sem víðast formannssæti í skóla- nefndum landsins. 5) Fundurinn telur æskilegt, að prestarnir, hver I sxnu kalli, heimsæki barnaskólana og fylgist með' kristindómsfræðslunni, svo sem þeir hafa tíma til. — Ennfremur væri æskilegt, að prestar hafi sem oftast fundi með kennurunum í kristnum fræðum eða samræður við þá um þau mál. 6) 1 sambandi við framkomnar tillögur lýsir fundurinn yfir, að hann telur óleyfilegt að aðrir en þeir, sem liafa kristilega lífsskoðun, gegni barnakennara- eða prestsembættum og heitir á söfnuði landsins, að þola slíkt ekki hjá sjer. (Tiliagan var frá Jóni Arasyni og Filippusi Ámundasyni). 7) Kirkjufundurinn beinir þeirri ósk til kirkjuráðs, að J>að hlutist til um, að fyllri kröf- ur sje gerðar til mer.ntunar kirkjuorganleikara, en nú tíðkast, og jafnframt sje þeim sjeð fyrir þóknun fyrir starfa sinn, er samsvari hinu I)ýð- ingarmikla starfi Jjeirra i Jjjónustu kirkju og kristnihalds. Umræður urðu fremur litlar um flest- allar þessar tillögur; voru þær allar sam- þykktar í einu hljcði, nema sú næstsíðasta — 4 eða 5 atkvæði gegn henni. Allan þorra tímans ræddu menn um samstarfið, þótt stundum væri talað nokk- uð á víð og’ dreif. Voru allir á einu má)i um að h.jeðan af skyldu kirkju- og kristin- dómsvinir standa þjett saman til sóknar

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.