Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1935, Side 4

Bjarmi - 01.07.1935, Side 4
100 BJARMI og varnar gegn öllum ytri árásum gegn kirkjunni, hvort sem þær kæmu frá opin- skárri guðleysisstefnu eða »mammons« og hrokastefnu, sem teldi sig »of fína« til kirkjurækni, þótt »trúrækni væri fullgóð fyrir »smælingjana«, að hennar dómi. Hinsvegar kom um hríð greinilega í ljós, að skoðanamunur var allmikill um trúmál- ih sjálf — eins og allir vissu áður. — En þar sem reynslan hefir alstaðar sýnt, að svæsnar guðleysis-árásir gegn kirkjunni færa alla góða vini hennar nær Kristi (gera þá »pósitivari«), og við sjálfboða- starf í söfnuðum eða kristilegum fjelögum vinna þeir einir saroan til lengdar, sem treysta vel hverjir öðrum, þá gátu menn vel sameinast um þessar tillögur. Einhver fann að því, að prestarnir tækju hvergi nærri eins mikinn þátt í umræð- unum og leikmenn, en prestar svöruðu því, að þeim væri það mörgum svo mikil ný- lunda og góð, að heyra leikmenn úr ýms- um áttum tala svo ákveðið um trúmálin, að þeir vildu ekki taka ræðutímann frá þeim. Enda kom það greinilega í ljós, er fór að draga að fundarslitum, að fund- artíminn var allt of stuttur. En það þykir raunar flestum þeim, er marga fundi hafa setið, miklu heppilegra, að menn hugsi við fundarslit: »Jeg vildi að við hefðum setið lengur!« — heldur en hin hugsunin: »Pað var þó gott að þetta tók enda!« Þegær umræðurnar höfðu staðið talsvert lengur en ætlað var í fyrstu, flutti Gísli Sveinsson sýslumaður snjallt kveðjuávarp til fundarins og á eftir endaði Sig. P. Sívertsen vígslubiskup fundinn með bibl- íulestri, stuttri ræðu og bæn, og voru þá sem fyrri sálmar sungnir. Altarisganga var í dómkirkjunni kl. 9 um kveldið; tóku um 40 fundarmenn þátt í henni. Alls voru skráðir 140 fulltrúar safnaða og 45 prestar, og af báðum þeim hópum voru ekki nema 33 úr Reykjavík. En ýmsir fleiri bæjarmenn voru áheyrendur, og mundu þó hafa orðið miklu fleiri, ef fund- arsalur hefði verið stærri. Urðu oftast margir að standa vegna fjölmennis. Talsvert var fundarsókn ólík úr pró- fastsdæmunum. Flestir komu úr Kjalar- nesprófastsdæmi: 7 prestar og 34 fulltrú- ar safnaða, úr Rangárvallapróf.d. 6 og 17, Árnespróf.d. 4 og 15, Skagafjarðar 3 og 12 o. s. frv. Enginn prestur kom úr Mýra- prf.d., N. Þing. S. Múla og A. Skafta^ells- próf.d. og enginn leikmaður úr Stranda, Barðastrandar, N. Þing. og N. Múla og A. Skaftaf.prófastsdæmi. Heill hópur fundarsamþykkta frá safn- aða og hjerðasfundum bárust fundinum — og fóru allar í sömu átt að andmæla samsteypufrumvarpinu. Bar mjög á því að það frumv. hafði aukið fundarsókn meira en lítið, og því sagði einhver eftir fundinn, að það hefði í rauninni átt að samþykkja þakkarávarp til aðalhöfnndar þess fyrir »aðstoð« hans við fundinn! Allir þeir, sem fundinn sátu og jeg hefi heyrt á hann minnast, eru sammála um að telja hann harla heillavænlegan, og ýmsir eru þegar farnir að hlakka til »fjórð ungsfundanna« að ári — og vona að nú fari betri tímar í hönd fyrir kristnihald þjóðar vorrar. Var reglulega ánægjulegt að sjá og heyra marga, sem aldrei höfðu áður kynnst, kveðjast sem bestu vini í fundarlok, og vita að það var trúin á Jesú Krist, krossfestan og upprisinn, sem var vináttu bandið þeirra á milli. S. A. G. Gjaflr afli. rltstjðra Bjarma sfðnn í jainiar. Til kristniboðs: Sra óf. Vigf. 15 kr., E. M. Kálfatjörn 10, G. G. 20, I. Bjd. 25 kr. V. J. o. fi. 10, Skagf. kona 20, D. »til minningar um pabba og mömmu« 50 kr. Kr. A. St. 5,00. 1 jölakv.sjöð: Skólabörn I Borgarfirði eystra 5 kr. 50 aura. TII Elllhclinilisins: Sra óf. Vigf. 15 kr. Til Bjarma: Kristniboðsfjelag Akureyri 26 kr. Bestu þakkir.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.