Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 7

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 7
BJARMI 103 drengi og stúlkur, og mælist til þess, að Kirkju- ráðið undirbúi ])að mál fyrir næsta Alþingi I samvinnu við Barnaverndarráð Jslands«. »Prestastefnan telur brýna nauðsyn á stofnun drykkjumannahælis, og skorar á ríkisstjórnina að framfylgja nú þegar ákvæðum áfengislaganna I þvl efni«. »Prestastefnan mælir með því, aö prestar helgi kristniboðsmálinu a. m. k. eina guðsþjónustu á ári, og telur eðlilegt að við þá guðsþjónustu sje safnað fje til kristniboðs«. Allt samþykkt í einu hljcði. Um ld. 71 síðd. sagði svo biskup sýnódus slitið, þeirri 19. og fjölmennustu presta- stefnu sem haldin hefir verið síðan hann tók við. Vegna veikinda á heimili biskups gat hann ekki boðið fundarmönnum heim til sín, eins og áður hefir verið siður, en í þess stað buðu þjónanoi pre^tar í Rvík og há- skólakennai ar guðfræðideildar sýr.ódus prestum til samsa'tis í húsi K. F. U. M. um kvöldið. Oxfordmenn í Danmörku. Dönskum blöðum hefir orðið m ög tíð- rætt um Oxfordhreyfinguna undanfarið, engu síður en norskum blöðum fyrri hluta vetrar. Komnar eru út í Noregi einar 2 bækur þar sem norskum blaðagreinum er safnað saman og seljast örar en nokkrar skáldsögur. Sennilega koma Danir með svipaðai- bækur bráðlega, því að af nógu er þar að taka og áhugi manna á þessari hreyfingu engu minni þar en í Noregi. 1 þetta sinn flytur Bjarmi grein úr viku- blaðinu Folkerösten frá 30 apríl. Er það blað besta kirkjulega frjettablaðð danska, gefið út af grúndtvígskum presti, sra A. M. Bárris í Starup við Kolding. Kostar það 10 kr. 40 aura árgangurinn. Greinin, lítið eitt stytt, er á þessa leið: Fjórtán daga í röð streymdu Hafnar- búar að samkomum Oxfordflokksins. Þótt stundum væru 3 samkomur á dag að morgni, hádegi og að kvöldi var jafnan fjölmenni þar sem dr. Buchman og 200 manna flokkur hans ljet til sín heyra. Að þessum dögum liðnum hjelt flokkur- inn til Haslev,*) til að halda þar »heima- samkomur«**) »house-party« páskavikuna. »Ringsted Folketidende« og »östsjæl lands Folkeblad« eru heimildir að því sem hjer segir: Járnbrautarstöðin í Haslev fjekk á sig alþjóðablæ daginn, sem 650 Oxford-menn og gestir þeirra komu þangað. Skrafandi á mörgum tungum, hlæjandi á góöri dönsku, risavaxinn »knattspyrnuflokkur«, fremur en alvörugefinn söfnuður fyllti stöðina. Járnbrautarstjórinn sendi hrað- lestina (»Lyntoget«) nýju frá Höfn til IJaslev viðkomulaust. — 65 mínútur á leið- inni! Haslev varð upp með sjer. Enginn varð samt »knattspyrnan« við- fangsefnið var nokkuð annað. Samkomur voru haldnar daglega á fjórum stöðum, stundum samtímis; í kirkjunni, trúboðs- húsinu, stærsta gistihúsinu og lærða skól- anum, alstaðar troðfullt daglega. Laugar- dagskvöldið gengu 900 til altaris í Haslev- kirkju. — Altarisborðið er þar vel sótt hvern helgan dag árið um í kring, en 900 manns í einu á virkum degi, það var ný- *) Fremur lítill bær á Suður-Sjálandi, en skóla- bær mikill, einir 7 skólar á vegum heimatriV boðsins, flestir I rúmgóðum húsakynnum, og þess hafa gestirnir notið. Þetta »heimasamkomu«-nafn stafar af því, að á meðan flokkurinn var lítt kunnur, hjelt hann fámenna fundi á rúmgóðum heimilum vina sinna; dvöldu menn þar saman nokkra daga við guðræknisiðkanir. Venjulegast voru fleiri vel- komnir en »Oxfordmenn«, gestum beinlínis boð- ið, til að hafa trúaráhrif á þá. — Siðustu árin er aðstreymið svo mikið, að »heimasamkomurn- ar« eru farnar að heiman og haldnar í stærstu gistihúsum stórborga eða í heilum bæ. En »Houseparty« kalla þeir það samt, þegar það er aðallega sama fólkið, er saman dvelur og fundi og sálgæslu annast marga daga i röð.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.