Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.1935, Page 8

Bjarmi - 01.07.1935, Page 8
104 BJARMI lunda og verður mörgum minnisstæð. —- »Þessa daga verður rituð mannkynssaga hjer í Haslev«. Það voru upphafsorð að ræðu dr. Buchmans í trúboðshúsinu þar sem alþjóðlegt »house-party« þeirra hófst. Gestirnir voru komnir úr ýmsum löndum, sumir með ílugvjelum, aðrir með »elding- arlest« og enn aðrir í bifreiðum og hjól- reiðum. Þar eru greifar og biskupar, — einn frá Persíu, — bændur og verkamenn, skólapiltar og gamlir prófessorar, barónar og vinnukonur o. fl. o. fl. Gleðin skín úr augum þeirra, það er brosað og hlegið. Bróðurlegur samfjelagsandi virðist hafa gagntekið allt þetta ólíka fólk,. sem á þao sameiginlegt, að Guð er því raunveruleiki og lífið ekkert tilgangsleysi. Maður verður ósjálfrátt gagntekinn við að sjá einlægn- ina og eðlilegu alvöruna. Lífið á að breytast, það er aðalboðoroið. Bylting- á að verða í hjarta hvers manns. »Jeg þekki ekki nema tvær »stjettir«,« segir Buchman, »breytta menn og ó- breytta«. Hver sem eyra hefir, heyri hróp- ið er hljómar um alla jörð. »We want a guidance«, »Vjer þui’fum handleiðslu«. Þegar hver einstakur á í baráttu við sjálf- an sig', þegar heimilin eiga í höggi við sundrandi öfl innan fjölskyldunnar, þeg- ar löndin skjálfa undir fótum hersveit- anna, þá kemur Oxfordflokkurinn og ætlar að skapa nýjan heim, með því að fá alla ólíka einstaklinga til að leita sömu hand- leiðslu, hlusta kyrrláta stund daglega í ná- vist Guðs, stunda bróðurlega sálgæslu og keppa að þessu fernu: Fullkomnum hreinleika, fullkominni óeigirigirni, fullkominni einlægni, fullkomnum kærleika. Hvað fer nú eiginlega fram við þessar heimasamkomur? Oxford-menn kalla það »sharing«, menn »skiftast á« skriftamál- um, leiöbeiningum og andlegum gjöfum. Á hverjum ílokksfundi er fundarstjóri, en ræðumenn eru margir og flytja stuttar persónulegar ræður, vitnisburði um trúar- reýnslu, en utan funda er talað við ein- staklinga, skriftað á báðar hliðar, beðið saman, og þar eru aðaláhrifin. Á morgn- ana er talað með túlk í tveim flokkum í trúboðshúsinu, og túlklaust í menntaskóla- salnum svo eru samtöl og biblí samlestrar, en almennar samkomur seinni hluta dags og á kvöldin. Meira. ------------- Theoclor Jóhannsson. 1860—1935, Mörgum góðum bændum íslenskum kynntist jeg árið 1918 vestan hafs, en fáa man jeg betur en þann mann, sem hjer verða rituð um nokkur minningarorð. — Hefði Bjarmi flutt þau fyrri, ef jeg hefði ekki beðið eftir ýmsum upplýsingum og sjerstaklega eftir mynd hans, sem ])ó var ófáanleg; — enda hafði hann sjálfur hafn- að því, er jeg' bað hann einu sinni um mynd til birtingar. »Jeg kæri mig ekki um að láta sýna mig, en enn minna um allt blaðalof,« skrifaði hann. — En hvernig má minnast góðs vinar án þess að tala vel um hann? Það mun hafa verið sr. Fr. Hallgríms- son, sem útvegaði Bjarma fyrstu ár hans 2 ágæta útsölumenn í prestakalli sínu á Baldur og Glenboro í Manitoba. Báðir eru þeir hættir nú, en Theodor Jóhannss. studdi lengur og- mest munaði blaðið um hann. Var áhugi hans á málefnum þess svo ein- lægur, að hann gjörði það, sem enginn hef- ir fyr gjört, ánafnaði því gjöf í arfleiðslu- skrá sinni, sem væntanlega næg'ir til þess, að útgefandinn þurfi ekki þetta ár að borga fje fyrir að fá að vinna ókeypis að útgáfu blaðsins! Brjef Th. Jóh. eru mörg og' góð, en þó svo mikið einkamál, að úr þeim verður ekkert birt. En vel má geta um ein til-

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.