Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 16

Bjarmi - 01.07.1935, Qupperneq 16
112 BJARMI Illð ('vangol. li'itlici'Ska kiik.iiif.ic'aK Islendinsa í Vesturheimi ntti 50 ára afmæli í f. m. Var undirbúningur mikill vestra að kirkjuþing- ið yrði haldið hið veglegasta að þessu sinni. Hófst þingið 19. júní að Mountain I Norður-Dskota. stofnfundur fjelagsins var þar haldinn I jan. 1885. Föstudaginn 21. júní hjeldu þingmenn til Winnipeg og hjeldu þar fundum áfram í 1 daga. í Winnipeg var fyrsta fsl. kirkjuþingiö haldið í júnf 1885. - Nánari fregnir eru ókomn- ar þegar þetta er ritað. Biskup fslands sendi þinginu kveðjuúvarp, birt í Kirkjuritinu, og júníhefti |iess rits er helgxð kirkjufjelaginu að miklu leyti. Forsetamynd- irnar, sem eru f þessu tbl., lánaðar þaðan. - Sím- skeyti voru send hjeðan að heiman, líklega mörg, til að samfagna Kirkjufjelaginu. Veit sá, sem þetta ritar um 2, er fóru að nokkru leyti um hans hendur, annað frá sóknarnefnd dómkirkj- unnar, og hitt frá kirkjufundinum í Reykjavík. Var það allt sjálfsagt og gott, »það, sem það náði«, en aðalatriðið vantaði: enginn fulltrúi var sendur frá þjóðkirkjunni til »dótturkirkjunnar« að óska henni til blessunar. Mun það einsdæmi, að nokkur »móðurkirkja<: láti slíkt hjálíða á öðrum eins fagnaðar- og þakk- ardegi »dðttur« sinnar í Ameríku. Pað er afsakað með fjeleysi! Er svo sem trú- legt að rfki og einstaklingar geti styrkt allskonar fólk til að fara í tugatali á allskonar erlendar stefnur, cf »stefnan« er ekki kennd við kirkju eða kristindóm, en »megi ómögulega« sjá af fargjaldi handa einum presti til 50 ára hátlðar fsl. kirkjufjelags vestra! En er nú öll sökin hjá þröngsýnni ríkisstjórn? Er hún ekki líka nokkur hjá úrræðalítilli kirkju- málastjórn? Ætli það hefði orðið mikill vandi að fá far- gjaldið hjá vinum kirkjunnar, ef þeim hefði verið sagt frá neitun ríkisstjórnar í tfma? Jeg hygg ekki. Krlstlllhoðsf.ielilg Dnnn hjelt ársþing sitt í Skjern á vesturströnd Jótlands 14. 15. maí s. I. Komu þangað um 1100 fulltrúar smáfjelaganna um alla Danmörku þar af voru um 150 preslar, og fengu allir ókeypis gistingu. Skjern er smá- bær, en fólkið er gestrisið, og sveitirnar um- hverfis hjálpuðu bæjarbútim og sóttu marga gesti í bifreiðum. Sra Axel Busch, er verið hefir ágætur for- maður fjelagsins síðan 1904, sagði nú af sjer störfum fullra 80 ára gamall. Er hann samt enn við svo góða heilsu að hann gat flutt tvær »ógleymanlegar« ræður á þinginu, og bauðst til að verða »umferðaprjedikari« kristniboðsfjelags- ins, er hann nú sleppti sfjórnarstörfum.' Sá, sem nú var kosinn formaður, heitir S. H. Sörersen, prestur í Kaupmannahöfn. Annars eru 5 preslar og (i leikmenn í aðalstjórninni. 2 konur rg einn læknir eru í þeim hóp. Undanfarin 2 ár hafa útgjöld farið talsvert fram úr tekjum. hjá fjelaginu. Hafa þó gjafir og útgjöld - önnur en gengistöp staðið í staö. Króna hefir fallið svo mjög að því hefir fjelagiö tapað yfir 100 þús. kr. þessi 2 ár. Varasjóður var því tómur orðinn og nokkur skuld komin. Til að bæta úr því lögðu fundarmenn og bæjar- menn »aukagjöf á altarið« við guðsþjónustu i kirkjunni i Skjern og í trúboðshúsi bæjarins þai sem samtimis var samkoma. Komu þá inn sama kvöldiö 61,900 kr. frá fulltrúum og vinum heima fyrir, »er báðu þá fyrir aura«. Morguninn eftir bættist enn við, svo gjöfin varð varð alls yfir 62,000 kr. »Stærsta gjöf til kristindómsmála á einu kveldi í Danmörku«, segja blöðin. Venjulega safnast 10 tfi 12 þús. kr. á þessum árþingum kristniboðsins. — Á árs- þingi heimatrúboðsins danska í vor voru gefnar 4000 kr. til þess starfs. Hjnlpi'ivðlshei'iiin á íslandi átti 40 ára afmæli 11. maí s. 1. og i sambandi við það var ársþing Hersins haldið í maí. Möklebust ofursti, aðal- ritari Hersins I Noregi, stjðrnaði því. Degar þeir Eriksen og Þorsteinn Davíðsson, fyrstu leiðtogar Hersins á Islandi, fóru að starfa hjer í Reykjavík, þá vöktu þeir afarmikla eftir- tekt og misjafna dóma. — Það var svo margt nýtt, sem þeir komu með: Samskot og hljóð- færaflokkur á trúmálasamkomum, prjedikanir á götum úti, einkennisbúningar og virðingaheiti úr hernaði, en þó fyrst og fremst skorinorðar trúvakningaræður, er alveg voru ókunnar á Is- landi um þær mundir, nema þá hjá Lárusi Jó- hannssyni, fyrsta umferðaprjedikara hjerlendis. Fjölmargir erlendir starfsmenn, frá Norður- löndum og Skotlandi, hafa síðan komið hingað á vegum Hersins, og ýmiskonar líknarstarf og ódýr gistihús hafa orðið árangurinn, en áhang- endur, einkum foringjar, orðið sárfáir stöðugir. Nú taldir um 200 »hermenn« á Islandi for- ingjar 25. — En óbeinu áhrifin hafa verið tölu- verð. Margur »vaknaði«, sem ekki staðnæmdist i Hernum, og margt lærðu aðrir trúaðir af rð komnum »hermönnum« fyrstu árin, ekki slst um skipulagsbundna llknarstarfsemi. Liknarstaif- ið ættum vjer að geta annast sjálfir nú orðið, og það betur en útlendingar, en við trúmála- starfið, »vakningarnar«, væri meir en nóg að gjöra fyrir þessa 25 foringja enn þá. Ritstj.: S. Á. Gíslason. - Prentsm. Jóns Helgasonar.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.