1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Síða 2

1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Síða 2
Tveiv vegir. Hver maður sem lesið hefur nokkuð í veraldarsögu mun fást til þess að játa það, að allt fram undir síðustu aldamót hafi um verulega framþróun verið að ræða, stig af stigi; og eftir að samtök verka- manna komu til sögunnar, þá haíi þessi framþróun orðið enn stórstígari en dæmi voru til áður. Og engum blandast sjálf- sagt hugur um það, að þær framfarir eru því einu að þakka, að með þátttöku verka- mannasamtakanna fékk framþróunin í lið með sér skipulagsbundna, starfandi flokka úr alþýðustétt, en hafði áður eingöngu stuðst við einstaka hugsjónamenn. Mis- munurinn hefur því orðið sá, að með hin- um einstöku hugsjónamönnum hvarf oft og einatt starf þeirra, er þeir kvöddu þennan heim, en innan verkamannasamtak- anna virðist umbótastartið eiga nóga erf- ingja til að halda baráttunni áfram, án til- lits til einstaklinga. Með bjálp þessara sam- taka höfum við öðlast margt það, sem okk- ur virðist ómetanlegt til fjár. í þeim löndum þar sem samtök verka- manna eru með fullum blóma, hafa allir mál- og ritfrelsi, engum manni er þar hægt að halda í fangelsi án þess að rann- saka mál hans. En í þeim löndum, þar sem samtök verkamanna hafa verið upp- leyst hefir enginn fullkomið mál- eða rit- frelsi, og öll fangelsi eru full af föngum, sem aldrei verða leiddir fyrir neinn rétt til að sanna sakleysi sitt. Með komu fazismans hafa þær ógnir borist yfir löndin, sem engan mun hafa dreymt um. Á eihum einasta degi hafa verið þurkuð út lög og réttindi, sem oft og tíðum tók aldir að skapa. Og reynzl_ an sýnir, að íhaldsflokkar þeirra landa, þar sem þetta hefir átt sér stað, hal'a ekki gert minnstu tilraun til að koma í veg 2 fyrir þetta. Samt sem áður munu vera til þeir menn, sem trúa því, að Sjálfstæðis- flokkurinn hérna sé einskonar útvörður hins íslenzka lýðræðis! Eg vel hér af handahófi hluta úr skýrslu enskrar rannsóknarnefndar, frá árinu 1842. Nefnd þessi var skipuð til að rannsaka ástandið í kolanámunum, aðbúnað þeirra sem þar unnu, og síðast en ekki síst vinnu barna. 1 Derbyshire byrja mörg börn að vinna í kolanámunum fimm ára gömul, nokkuð fieiri 5—6 ára og flest 7 ára. í West Kiding Yorkshire er það ekki óþekkt, að 5 ára gömul börn séu send í námurnar. í Halifax og nágrenni byrja börnin að vinna námuvinnu 6 ára gömul, og eru látin fara á fætur klukkan 4 að morgni. Víða í námunum er svo mikið vatns- rennsl að fólkið vinnur í öklavatni allan daginn. Á öðrum stöðum aftur á móti er svo mikill leki ofanfrá að verkafólkið verður á stuttum tíma gegndrepa, og verð- ur að þola það hvern dag, sem það vinn- ur. I North Wales, eru gangarnir í mörgum námanna þröngir og dimmir, loftið er fúlt og rykugt. Þangað kemst aldrei neinn sól- argeisli og loftræstingin er alveg ófullnægj- andi. Barnið, eins og það kemur okkur fyrir sjónir, hefir belti bundið um mittið, og við beltið er fest keðja sem liggur milli fóta barnsins, og er bundin í lítinn vagn. Barn- ið verður þessvegna að skríða á fjórum fótum, og keðjan liggur á milli þess, sem við verðum í þeirri stellingu að kalla aft- urfætur. Og í þessum stellingum verður barnið að skríða eftir göngum, sem eru ekki rýmri en venjuleg skólpræsi eru hér almennt. Á einum stað austarlega í Skotlandi hitt- um við sex ára gainla stúlku. Hún bar

x

1. maí - Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.