1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Síða 9

1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Síða 9
grenni bæjarins og útbúi stað til sólbaða fyrir almenning, að bær og ríki taki iðnskólann í sínar hendur og reki hann með hagsmuni iðn- nemanna fyrir augum, en ekki sem gróða-* fvrirtæki, eins og hann er rekinn nú af einstaklingum. að bærinn styrki ráðningarskrifstofu verklýðsfélaganna. Slíkar ráðstafanir sem þessar, ásamt skarpara eftirliti með heilsu barnanna, vinnutíma o. þ. h. mundu ólíkt þarfari en hjálmakaup handa lögreglunni, og verða almenningi til meiri bóta. Baráttan fyrir þessum kröfumi æsku- lýðsins verður að vera tengd daglegri hagsmunabaráttu alls verkalýðsins, en engu af þessu má hugsandi verkamaður né kona tapa sjónum af. Munum öll að vörn okkar gegn kúgun og árásum auðvaldsins, er samfylking vinnustéttanna innan vébanda sinna fé- lagslegu samtaka, undir forustu Alþýðu- sambands Tslands. Herðum dægurbaráttuni! Allir eitt, unz sigri er náð! Guðjón B. Baldvinsson. Er ávali byrgur af úrvals salifiski. Sími1456 9 Hafliöi Baldvinsson, Hverfisgoíu 123 1. mai k að vera þjóðháííðardagur Islendinga í dag er hátíð verkalýðsins. Og vegna þess, að vinnustéttirnar eru þjóðin, þá á 1. maí fyrir sér að verða þjóðhátiðardagur íslendinga, þegar réttur skilningur á gildi verklýðssamtakanna er oiðinn almennings eign. Á íslandi hetir frá fyrstu tíð búið sterk þjóð. Víkingsblóð, frelsisþrá og stál- sleginn vilji heíir hjálpað henni til þess að sigrast á þeim mörgu örðugleikum, sem fylgja því að nema land torsóttra gæða. Oft hefir á misjöfnu gengið fyrir Islend- ingum, jafnvel þeim hluta þeirra, sem sat við hinn betri kost á þjóðveldistímanum og hafði örlagaþræði þjóðarinnar í hönd- um sínum. Ráðsmenska landsins var grip- in úr höndum þeirra af erlendu konungs- valdi. Hér skulu ekki raktar ástæður fyrir því að svo fór, en aðeins getið til þess að þeir menn, sem nú kunna að hall- ast að einveldi mættu minnast þess, að einveldistímabilið á Islandi er svartasta niðurlægingartímabilið í sögu þjóðarinnar. Á þeim tíma gekk þjóðin gegn um meiri hörmungar en nokkru sinni fyr eða síðar. En þrátt fyrir margra alda kúgun og er- lenda harðstjórn hélt þjóðin einkennum hins norræna kynstofns. Um þann hluta þjóðarinnar. sem vann og vinnur og leitaði hinna torsóttu gæða landsins, má segja með fullum rétti, að ætið hafi hann orðin afskiftur, þegar landsnytj- um og starfsarði hefir verið skift. Jafnvel í dag er vinnulýður landsins ekki nærri kominn að því marki að njóta þeirrar við- urkeningar, sem hann á kröfu til, en hún er fólgin í því að hann einn ráði óskorað yfir niðjum landsins og tækjum til þeirr- ar framleiðslu, sem liér er möguleg. Um 80°/0—90% aí Islendingum er verkalýður. 9

x

1. maí - Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.