1. maí - Reykjavík - 01.05.1934, Qupperneq 13
Drengur, sem sér til ferða „sendiherr-
ans“ og hlær að nafninu, er dæmdur af
Eggert Claessen, sem þá er orðinn út-
vörður „laga og réttar í landinu", í 14
daga fangelsi fyrir að hafa hlegið að
hinu „Þjóðlega leigjendafélagi sjálf-
stæðra verkamanna“.
Fasisiarnir hefna sín
á jafnaðarmönnum í Ausiurriki.
Fyrir skömmu síðan byrjuðu réttar-
höldin yfir meðlimum varnarliðs jafnað-
armanna Austurríkis, sem tóku þátt í
vörn verkamannaheimilanna í Austurríki,
í síðastliðnum febrúarmánuði.
Réttarhöld þessi voru framkvæmd ein-
göngu af dómurum, sem vitað er að til-
heyra fasistaflokknum.
Fyrsti maðurinn, sem dæmdur var, er
32 ára ganíall atvinnulaus verkamaður
frá Simmering.
Hann hafði á engan hátt stjómað
vörninni og hann var ekki einu sinni á-
kærður fyrir að hafa hleypt af skoti.
Samt var hann dæmdur í 6 ára fang-
elsi fyrir uppreisn.
I sambandi við dóm þennan er vert að
athuga, að Dolfuss marg endurtók, að
um enga hefnd mundi verða að ræða og
vægt mundi verða tekið á þeim, sem
ekki hefðu verið leiðtogar.
Við áður umtalað réttarhald sannaðist
það, að hinn ákærði hafði fleygt riffli
sínum um nóttina 13. febr., en að Dol-
fuss kanzlari hafði degi seinna lofað
frelsi öllum þeim, er hættu að berjast
fyrir hádegi næsta dag.
Þannig efna fasistar loforð sín við
verkamenn.
Ef þér þurfið að kaupa
IÍINDABJÚGU,
MIÐDAGSPYLSUB,
YÍNARPYLSUR eða
IÍJÖTFARS,
þá inunið að þessar vörur
eru beztar og ódýrastar
í KJÖT ÖG FISKMETISGERIN,
Grettisgötu 64, sími 2667,
eða KEYKHÚSINU,
sínii 4467.
Annar dómur.
Maður nokkur að nafni Placek var
dæmdur 26. marz í 18 mánaða fangelsi
fyrir að hann sagði: Ég er hermaður
jafnaðarstefnunnar, ég hefi gert skyldu
mína.
13