Valsblaðið - 01.01.1939, Page 2
2
VALSBLAÐIÐ
bíða okkar mikil og margvísleg
verkefni, er aðeins verða leyst
með sameiginlegum átökum og
einbeittum vilja. Verkefni, er
lyfta munu félaginu til meiri vegs
og virðingar og göfga sjálfa oss
og gleðja, ef við aðeins vinnum
að þeim af alúð og drenglund.
Á þessu ári befir Val, ásamt
knattspyrnufél. Vikingur verið
boðið að senda til Þýskalands 20
manna flokk til að keppa þar
4—5 leiki við úrval úr nokkrum
borgum á Vestur-Þýskalandi. Er
þegar afráðið, að af þessum 20
mönnum verði 13 frá Val, en 7
írá Víking. Er að þessu virðing
mikil fyrir félag vort, en veg-
semdinni fylgir vandi nokkur, því
slíkir flokkar eru ekki aðeins full-
trúar félags síns, heldur og allr-
ar þjóðarinnar.
Þá er von á, að hingað komi
góður skoskur eða enskur knatt-
spyrnuflokkur á vegum K.R., en
honum er ætlað að keppa við ein-
stök félög og úrvaislið. Og loks
er að verja þá titla og gripi, sem
unnust s.l. sumar, og auka við þá
eftir mætti.
Ætti þetla að vera knatt-
spyrnuiðkendum okkar nægileg
bvöt til að sækja vel æfingar og
leggja sig af alúð fram til þess
að sýna enn betri og drengilegri
leiki en nokkru sinni fyr .
Til þess að fé'Iagíið láti ekki
sitt eftir liggja, að keppendum
okkar megi auðnast að Jiá svo
góðum árangri sem unt er, hefir
félagið ákveðið að ráða til sin, á
næsta sumri, fyrsta flokks erlend-
an knattsjjyrnukennara, er starfi
bér mánuðina apríl—ágúst. Ekki
er emi ráðið hver verður fyrir
valinu, en félagið stendur í bréfa-
skriftum við knattspyrnusam-
böndin í Danmörku, Þýskalandi
og Englandi um það mál. Þar sem
það er mjög dýrt að lialda slik-
an kennara, þá treystum við þvi
að knattspyrnumenn okkar geri
sitt ítrasta til að notfæra sér þann
fróðleik, sem hann hefir upp á
að bjóða. Meðal annars með því
að byrja nú þegar að sækja æf-
ingar félagsins og lialda þvi á-
fram fram á sumar.
Af öðrum áhugamálum okkar
vil ég nú aðeins nefna eitt, sem
við jafnframt vonum að nái að
rætasl þegar á næsta sumri, en
það er bygging skíðaskála. Vegna
siaukins áhuga innan félagsins
fyrir því, að félagið eignist eigin
skíðaskála, á góðum stað, ekki
allt of langt frá Reykjavík, þar
sem starfandi Valsmenn einir
liafa aðgang að, þá réðist stjórn-
in i að stofna sérstakan sjóð í þvi
augnamiði. Hefir sjóður þessi
aukist og er nú um 1000 krónur.
Með sameiginlegum átökuin og
brennandi áliuga megnum við að
reisa slíkan skála, á fögrum stað,
þegar á þessu ári.
Ef þessi áhugamál okkar, á-
samt ýmsum öðrum, sem ofar-
lega eru í hugum okkar, eiga að
ná fram að ganga, verða allir fé-
lagsmenn að standa saman sem
einn maður og stuðla að þeim á
allan hátt. Til þess að létta okk-
ur þessi störf og efla og treysta
bræðabönd okkar og vináttu, höf-
um við ráðist í að gefa út innan-
félagsblað það, er með þessu liefti
hefur göngu sína. Ég vona, að þið
lakið því allir opnum örmum og
látið það tengja ykkur enn traust-
ari böndum við félagið.
Ólafur Sigurðsson.
K. F. U. M. 40 ÁRA.
Fimtud. 5. þ. m. bélt K.F.U.M,
í Reykjavík hátíðlegt 40 ára af-
mæli silt, með fjölmennum og
mjög hátíðlegum Aðaldeildar-
fundi í húsi félagsins, en stofn-
dagur er 2. jan. 1899.
Saga Iv.F.U.M. liér á landi er
öllum Valsungum svo kunn, að
óþarft er að rekja hana liér, enda
verður það ekki gert í svo stuttu
máli. liins vegar hefir starfsemi
þess haft svo djúptæk áhrif á alla
æsku þjóðar vorrar og bæjarfé-
lags, og þá ekki sist á þá grein
Iv.F.U.M., sem við skipnm sér-
staklega, að við getum eigi látið
hjá líða að þakka það nokkuð.
Valur er ekki aðeins stofnaður
af nokkrum ungum mönnum úr
K.F.U.M., heldur innan vébanda
þess og sem sérstök deild í þvi.
Félag vort fékk Jjví i vöggugjöf
það besta, sem slíku félagi gelur
hlotnast, góða og kristilega upp-
alda meðlimi og handleiðslu göf-
ugra manna, er skyldu gihli
knattspyrmmnar til lilítar. Hefir
starfsemi Vals og öll framkoma
Valsunga markast af þessu æ síð-
an, enda notið sömu handleiðslu
og skilnings alla tíð.
Valur þakkar því K.F.U.M., og
séra Friðrik sérstaklega, af alliug
tilveru sína, skilning hans á hinu
sanna gildi knattspyrnunnar og
góða og göfgandi handleiðslu í
rúm 27 ár.
Það er og ósk Vals til handa
K.F.U.M., og alþjóð, að bless-
un guðs bvíli yfir starfsemi þess
og hún megi aukasl og eflast um
aldir.
sooíiöooíiíííioííísísöoísísooooíiooooöttoíioooíieoíiíiöoíittoooooísoöíiísosísoísöísíiíittíiíiíiísíiottísísttöoíiísíioíiíioöíiíiöoqí;
íí
ni!
MUNIÐ
ö
«5
o
Vátryggingarskrifstofu Sigfúsar Sighvatssonar
LækjargÖtu 2.------------------------------
«
«
«
«
%
Söottöööttoísottttttöttöttöoöttottttoöottöottooíttooööttöööottttööooooöttöottottoöööoottoöööoooööoöttttttoottöttoos
Sími 3171.