Valsblaðið - 01.01.1939, Blaðsíða 5

Valsblaðið - 01.01.1939, Blaðsíða 5
VALSBLAÐIÐ 5 NOTIÐ SNJÓINN. Yeturinn er sá timi ársins, sem knattspyrnumennirnir verða að leggja knöttinn lil iiliðar og láta hann bíða vorsins. Það er þvi ekki furða, þó að þeim leiðist þessi árstími og biði vorsins með mikilli óþreyju og eftirvæntingu, svo bægt sé að byrja æfingar á vellinum. Veturinn verður ekki umflú- inn, en þar með er ekki sagt, að knattspyrnumennirnir eigi að leggja árar í l)át og biða vorsins með hendur i vösum. Nei, þvert á móti er það skylda þeirra að nota vetrartímann og það, sem lionum fylgir, á sem bestan bátl til að halda sér i þjálfun og vera vel undir sumarið búnir. Þetta er bægt að gera á ýmsa vegu, og er nánar rætt um það á öðrum stað bér i blaðinu. En það er eitt, sem ég vil sérstaklega benda á i þessu augnamiði, það eru skiðaferðir. Nú á siðustu árum hefir skíða- íþróttin náð mikilli úlbreiðslu meðal Reykvíkinga og á eflaust eftir að aukast mikið enn. Það er engin tilviljun, að svo er komið, þvi það er í fyllsta samræmi við gildi og gagnsemi þessarar íþrótt- ar fvrir eldri sem yngri. Þeir, sem reynt hafa, hve lieillandi það er og skemmtilegt, að ganga á skíð- um um fjöll og firnindi, og bruna niður brekkur i beilnæmu fjalla- lofti, telja ekki eftir lítilsbáttar erfiði, sem samfara er skiðaferð- um, eða peningana, sem fara í útbúnað og fargjöld. Með tilliti til þess, sem að fram- an er sagt, er það gleðiefni, að allmargir Valsmenn hafa undan- farna vetur iðkað skíðagöngur, en samt eru margir, sem hafa látið það dragast að byrja. Nú fer færið að koma, og þá er ekki eft- ir neinu að bíða. Ef áliugi félags- manna reynist mikill fyrir skíða- ferðum, verður þess eflausl ekki lengra að bíða, að skiðaskáli Vals vei'ði reistui', en næsta sumars. Það hefir þegar vei'ið bafinn undirbúningur til að lirinda mál- inu í framkvæmd, og verða fé- lagsmenn vonandi fljótir til, er til þeirra verður leitað í þessu augnamiði. Gagnsemi eigin skíða- skála yrði félaginu ómetanleg, cr fram líða stundir, bæði til að efla og bæta félagslífið, og ekki sið- ur til að auka tækifæri félags- manna til að búa sig undir sum- arstarfið með þróttaukandi og heilnæmum skiðaferðum. Valsmenn, yngri sem eldri! Á meðan ekki er bægt að æfa á vell- inum, þá notið skíði og snjóinn til að .auka þrótt ykkar og þol! ‘ Si. f Islands og Reykjavíkurmeistarar VflLS 1938. Talið ofan að frá vinstri: Frímann Helgason, Grímar Jónsson, Jóhannes Bergsteinsson, Hrólfur Benediktsson, Sigurð- ur Ólafsson, Hermann Hermannsson, Gísli Kjærnested, Guðm. Sigurðsson, Magnús Bergsteinsson, Egill Kristbjörnsson, Björgólfur Baldursson, Ellert Sölvason, Þórarinn Þorkelsson, Bolli Gunnarsson og Sigurpáll Jónsson.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.