Valsblaðið - 01.01.1939, Síða 3
V A L S B L A Ð I Ð
3
KNATTSPYRNAN.
Fáar iþróttagreinir liafa rutt
sér eins til rúms og knattspyrnan.
Engar íþróttagreinir fáeinsmarga
áhorfendur og knattspyrnan, og
þátttakendur eru sennilega fleiri
þar gn í öðrum greinum. Frá
sjónarmiði þeirra, sem iiafa orð-
ið fyrir álirifum frá knattspyrn-
unni,kynnst henni ogleyndarmál-
um hennar og þeim eiginleikum,
sem hún liefir fram yfir aðrar
íþróttir, eru ekki undrandi á
þeirri staðreynd, sem nefnd var,
að knattspyrnan er einhver vin-
sælasta íþróttin, sem iðkuð er.
Hvenær knattspyrna liefir ver-
ið fvrst iðkuð, er ekki gott að
segja. Enskir knattspyrnusagna-
ritarar halda þvi fram, að eins-
konar knattleikir hafi verið leikn-
ir á hinum forn-ólympisku leikj-
um, og knattleiki er viða minst
á i sögunni, en ekki geta þess-
ir sagnaritarar hent á orðið knatt-
spyrna, fyr en um 1553, þar sem
það er skýrt fram tekið, og er
það i Englandi.
Á þessum árum, og það fram
yfir 1700, áttu leikar þessir mjög
erfilt uppdráttar, vegna þess að
stöðugt voru að koma fram kon-
unglegar hannfæringar við því,
að leika þennan leik, og lágu
þungar refsingar við. Kvað svo
ramt að þessu, að lalið er, að á
18. öld hafi leikurinn verið næsl-
um því dáinn úl þar. Þó liggja
fyrir sannanir um ])að, að leikar
fóru fram af og til á þessum tíma
og er þeirra sannana helst að
leita i sögum rithöfunda og rétt-
arhókum. I byrjun 19. aldar fer
knattspyrnan svo að fá fastara
form, og eru það ensku skólarn-
ir, sem liafa forgöngu í því, og
1850 er fyrsta félagið stofnað, sem
sögur fara af, og hét „The Forest
Club“.
Ákafar deilur urðu um þær
reglur, sem |nota ætti, en d'eil-
urnar enduðu með því, að full-
trúar frá öllum félögum í Eng-
landi mættu á fundi og stofnuðu
„Knattspyrnusamband Englands“
26. okt. 1863, og upp úr því verða
til fyrstu greinar þeirra reglna,
sem enn þann dag i dag er leik-
ið eftir. Stöðugar breytingar og
viðhætur urðu þó á reglunum,
sérstaklega fram undir aldamót-
in 1900, og allt fram á þennan
dag er verið að gera breytingar á
þessum reglum. Frá Englandi
liefir knattspyrnan svo borist um
allan heim í sinni núverandi
mynd. Til íslands mun hún hafa
komið rétt fyrir síðustu aldamót.
Að knattleikur ]iessi hefir þeg-
ar í upphafi verið vinsæll, sésl
hest á því, að hann skyldi ekki
alveg deyja út, eftir að þrír eða
fjórir konungar Englands höfðu
bannað hann. Þegar lika er tek-
ið tillit til þess, að engar reglur
voru og leikurinn villtur, sætir
það undrun, hversu vinsæll hann
hefir verið. Nútima knattspyrna
hefir fengið á sig menningarbrag
og hefir verið gerð þannig úr
garði, að hún er bæði skemmtileg
lil þátttöku og til að horfa á. Hún
hefir verið gerð að list, þannig,
að þeir iðkendur hennar, sem
lcngst komast, eru þjóðhetjur, um
i
Málarinn
býður yður á öllum tímum árs:
DistempermálninKu, mattar olíu-
málningar og alla aðra innan- og
utanhúsamálingu — og svo kem-
ur bráðum veggfóður frá HANSA.
Bankastræti 7. Símar 1496/1498.
Vesturgötu 45. Sími 3481.
leið og þeir eru listamenn í með-
ferð knattarins, en sú list getur
ekki fullkomnast, nema með
tamningu líkama og huga, þjálf-
un. Listin er einmitt i þvi fólg-
in, að geta náð sem mestu valdi
yfir sjálfum sér, ráðið við hverja
liugsun, liverja hreyfingu, hversu
fljótt sem hana ber að. Geta mót-
að skapgerðina þannig, að liinn
sanni iþróttamaður komi æfin-
lega fram, hvort sem það er í
sigri eða ósigri.
Ilafi einstaklingurinn náð að
þroska þessa eiginleika, hefir
hann náð miklum árangri, ár-
angri, sem getur komið lionum
að góðu lialdi siðar í lífinu.
Knattspyrnuflokkur er skip-
aður 11 mönnum, sem verða
að leysa 11 mismunandi lilutverk,
sem þó verða að vera það ná-
tengd, að þeir vcrða að skapa
eina heild. Þarna kemur fram
hinn félagslegi kostur hennar,
sem ekki er tekið eins mikið til
lit til og vera her. Staðreyndir
hafa sýnt,aðþví meira semfélags-
lyndið i flokknum er, þvi meiri
og hetri árangur og skemmti-
legri leikir. Fyrir líkamann er
knattspyrnan góð þiálfun, og að
ýmsu leyti eðlileg. Á ég þar við,
að þessir stöðugu stuttu sprettir,
sem knattspyrnunni fylgja, séu
eðlilegir fyrir hæði öndun og
starfsemi hjartans, vöðva o. s. frv.
Árangur sá af iðkun knatt-
spyrnu, sem ég hefi talað um,
næsl þvi aðeins, að æfingarnar
séu stundaðar með kostgæfni, séu
stundaðar reglulega, og með full-
kominni alvöru og vilja á ])vi að
ná sem mestri fullkomnun. Þeg-
ar þessu takmarki er náð, ])á get-
ur knattspyrnumaðurinn komið
frám félagi sínu til gagns og
sóma, orðið íþróttinni sannur
fulltrúi, og þjóð sinni nýtur son-
ur. —
Frímann Hrlgason.
VnÉsmmn:
Munið að búningar og Vals-
merki fást í Verzl. Varmá,
Hverfisgötu 84.