Valsblaðið - 01.02.1940, Qupperneq 1
r JVa 149079 |
VALS
1
TBL.
BLAÐIÐ
2. ÁRG. — FEBRÚAR 1940
árum
1 tilefni þess, að á síðastliðnu
sumri voru 20 ár liðin frá því
Valur vann fi/rsta knattspyrnu-
mót sitt, birtum vér hér mynd af
sigurvegurunum.
Á mótinu, sem jafnframt var
fyrsta knattspyrnumót, sem hald-
ið var fyrir II. aldursflokk hér
á landi, var keppt fyrsta sinni um
fagran bikar gefinn af íþrótta-
frömuðunum A. V. Tulinius og
Agli Jacobsen. Bikar þennan vann
Valur til eignar 1922, og er það
fyrsti verðlaunagripurinn, sem
Valur eignast. ÖIl félögin hér,
Fram, K. R., Víkingur og Valur,
tóku þátt í mótinu, en Valur bar
sigur úr býtum á öllum leikun-
um, samkvæmt ársskýrslu Vals
þetta ár. Ársskýrsla þessi virðist
þó ekki ábyggileg, enda ónákvæm,
öfugt við skýrslur félagsins fram
að þeim tíma. Hinsvegar er að
finna allnákvæmar upplýsingar
nm mót þetta í bókum K.R. og
hefir Sigurður Ólafsson góðfús-
lega leyft okkur að birta þær hér.
— FÉLAGSBLAÐ KNATTSPYRNUFÉLAGSINS V A L U R —
Fyrstu sigurvegarar Vals, II. fl. 1919.
Samlcvæmt þeim kepptu fyrst
Fram og K.Ii. (3:2) og Víkingur
—Valur (5:2), en báðir þessir
leikir dæmdir ógildir, vegna þess
að einn maður reyndist of gam-
att í þrem félögunum, Fram, K.R.
og Víking, og mótið því byrjað
af nýju. Fóru leikar þá sem hér
segir: Fram—K.R. 1:1, Valur—
Víldngur 1:1, Valur—Fram 2:0,
K.R.—Víkingur 1:1, Fram-Vík-
ingur 2:1, ValurK.R. 1:0.
Keppendur í þessari sigursælu
sveit eru, tatið frá vinstri: Aft-
asta röð: Pétur Kristinsson, Hall-
dór Árnason, Daníel Þorkelsson,
Hannes Pálsson, Gunnar Guðjóns
son. Miðröð: Magnús Guðbrands-
son, formaður fél., Aðalsteinn
Guðmundsson, Ingi Þ. Gístason,
Sigurður Haukdal, Óskar Bjarna-
son og síra Friðrik Friðriksson.
Fremsta röð: Angantýr Guð-
mundsson, Marínó Erlendsson og
Markús Helgason.
Sigur þessi er félaginu ckki
síður minnisstæður fyrir það, að
hann er hinn fyrsti sýnilegi vott-
ur um blessun þá, sem félagið
átii eftir að njóta af stofnun
yngri deildar félagsins, sem þá
var stofnuð fyrir þrem árum, i
þeirri trú, að hún gæti orðið „góð
uppeldisstofnun fyrir unga drengi
í knattsparki". Hann er og tal-
andi vottur þess, að þá aðeins er
framtíð eins knattspyrnufélags
trygð, að það eigi og htúi að ung-
tinga- og drengjaflokkum sínum
af fremsta megni, en það er ein-
mitt með stofnun „Yngra-Vals“,
eins og II. fl. fél. þá var nefnd-
ur, að viðgangur og vöxtur fé-
lagsins lxefst, sem síðan hefir lyft
því á æðsta beklc, meðal bestu
íþróttafélaga þessa lands.