Valsblaðið - 24.12.1958, Síða 5
JÓLIN 1958
11. TÖLUBLAÐ
VnLSBLHÐIÐ
Útgefandi: Knattspymuíélaglð Valur. - Félagsheimill, iþróttahús og leikveliir að Hlíðarenda við Lauíásveg. - Ritstjórn: Einar Bjömsson, Frímann Helgason og
ólaíur Sigurösson. - Auglý8lngu8tjorar: í'riójon Guoujomsson og Hermann Hermannsson. - Ísaíoldarprentsmiðja h.f.
SÉRA FRIÐRIK FRIÐRIKSSON:
(jleiilecf jcl!
Hér um bil 700 árum fyrir fæðingu
Krists kom orð Guðs til Jesaja spámanns.
Hvort hann sá þafi í sýn, eöur þaS var
boðskapur í orðum, vitum vér eigi. Og
spámaðurinn varð hrifinn og naut þar
sinnar jólagleði, án þess að hann vissi,
að svo væri. Boðskapurinn, sem þá
hljómaði út yfir byggðir Júdeu, hljóðaði
þannig hjá spámanninum: „Bam er oss
fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum
skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans
skal kallast undraráðgjafi, guðhetja, ei-
lifðarfaðir, friðarhöfðingi. Mikill skal
höfðingjadómurinn verða og friðurinn
engan enda taka á hásæti Davíðs“.
Þessi orð rættust 7 öldum siðar. Þá bar
svo við, að bam fæddist í Betlehem, og
nú hljómaði fyrir hirðunum á Betlehems-
völlum hinn skýri boðskapur engilsins:
í idag er yður frelsari fæddur, sem er
Drottiwn Kristur i borg Daviðs. Og sam-
tímis var hjá englinum fjöldi himneskra
hersveita, sem lofuðu Guð og sungu: ...
Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður
á jörðu með þeim mönnum, sem hann
hefur velþóknun á.
Og þetta barn, sem fæddist i Betlehem,
var það, sem spámaðurinn sá i anda,
sonurinn, sem var oss gefinn. Og hann
ólst upp og gekk um kring i Galíleu og
lcallaði sjálfa/n sig mannssoninn. Hann er
gjöf til allra manna, sem vilja taka á
móti honum og fylgja honum i trú, svo
að allir þeir, sem vilja, geti eignazt, hlut-
deild í honum. En þjóð hans útskúfaði
honum, og í staðinn fyrir að hljóta há-
sæti Davíðs forföður hans, var hann
hafinn upp og negldur á kross. En yfir
krossinum stóð að ráðstöfun Guðs sem
yfirsknft og sakargift: Jesús frá Nazar-
et, konungur Gyðinga.
Og harni var lagður í nýja gröf, en á
þriðja degi reis hann upp frá dauðum.
Steig siðan upp til himna og settist til
hægri handar Guði föður. Þar er lcon-
ungshásæti hans nú. Og allir þeir, sem
á hann trúa eru þegnar hans, og hann er
hinn eilifi konungur þeirra. Og alla tíð
■ síðan á dögum Jesaja spámanns fram til
vorra daga hefur hann reynst öllum sín-
um sem undirráðgjafi, guðshetja, eilifð-
arfaðir, friðarhöfðingi. Og þeir, sem i
sannleika vilja fagna jólunum í minningu
um fæðingu frelsarans, eignast öll þau
gæði, sem spámaðurinn og guðspjalla-
mennimir hafa kunngjört oss. Og þú.
ungi, kæri Valsmaður, átt þess kost á
þessum jólum að eignast það, sem spá-
maðurinn spáði um, þú átt þess kost, að
jólabarnið verði þér sá undraráðgjafi,
sem leiði þig á öllum þinum framtíðar-
brautum til þess að öðlast hina réttu
hetjudáð í leik þínum og lifi, svo að
friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi
haldi huga þinum og hjarta i samfélagi
við föður eilífðarinnar, Drottinn vom,
Jesúm Krist. Svo óska ég þér, áð þessi jól
verði þér hamingjusöm og blessunarrik.