Afturelding - 01.01.1938, Qupperneq 5

Afturelding - 01.01.1938, Qupperneq 5
.AFTLRELDING AÐEINS EITT BILAO Lestu grein pessa með athygli. Kvöld eitt gengur háöldruð kvaðarkona, örþreytt lieim frá vinnu sinni í Stokkhólmi. Þegar hún kemur á hlið váð afgreiðslu »Evangelii Hároíd« — þaö er blað Hvítasunnuhreyfingarinnar í Svíþjóð — , hugsar hún með ,sér: »Skyldi það vera til nokk urs, að ég taki með mér nokkur blöð til þess að reyna að selja á leiðinni heim.«. Henni fannst þreyt- an svíða í hverri taug líkama síns. En s.vo var liitt, — hún nafði lofað Frelsara sínum ])ví, að nota hvert tækifæri til þess að koma vitnisburð inum um hanr, til vegvilltra sálna. Það var nóg — teningnum va.r varpað. Hún gengur inn á afgreiðsl- una og biður um. nokkur blöð og hverfur síöan út. Aldurinn var hinn sami, slitnu fötin einnig hin sömu, þegar hún kom út með blöðin í hendinni. en augun ljómuðu af innra starfandi lífi -- hún var komin í þjónustu Meistarans mesta. — »Má ég i)iðja yður að gera svo vel og kaupa E. H.?« spuröi hún einn og annan, sem hún mætti. Flestir sinntu því alls engu, og litu naumast við. Það voru hátíð leg tilsvör, ef sagt var: »Nei, þökk fyrir«. Fleiri op; fleiri götur, fleiri neitanir — fleiri ómaksspor og vonbrigði. — Þarna sér hún fram undan sér í fólksstraumnum háan og tígulegan mann, sem margir líta með virðingu til. Þessum manni er ekki til neins að bjóða blaðið, hugsar hún með sér. Þó er eins og eitthvað lokki athygli hennar að manni þessum,. Hann kemur nær og nær. Hún lítur niður á slitnu hversdagsfötdn sín: »Nei, það ei'u víst nógir til að bjóðá blaðið, þó ég lofi honum að ganga hjá«. »En hvað er þetta annars,?« varð henni stirax að hugsa. »Ber mér að hræðast nokk- urn mann, ég, sem er í þjónustu Drottins?« — »Gott, kvöld, herra, má ég bjóða yður eitt. eintak af E. H.?« »Hvaða blað er það?« Hún skýrir frá því, og kemur um leið vitnisburði að um Frelsara sinn. llpp úr því hófst. hrífandi. samital, ,svo bæði gleymdu stéttamismuninum. Ökunni maðurinn var nógu skarpskygn til ]>ess að sjá, að þarna mætti hann meira, en aðeins varajátningu. Að síðustu kaupir hann blaðið, og hvort gengur sína leið — heim. Þegar gamla konan kemur heim til sín, segir hún við sjálfa sig, um leið og hún leggur blöðin fra ,sér: »Aðeins eitt blað selt, þetta hefir ekki borgað sig«. Maðurinn komi einnig heim til sín þetta sama kvöld. Strax og hann er kominn inn á skrifstofu sína, sezt hann niður í hægindastól og dregur blaðið upp úr vasa sínum og fer aö lesa það. Furðulegt! Hann mætir þarna svo að segja sama sannfærandi, brennandi vitnisburðinum, sem hjá konunni. Blaðið les hann frá fyrstu síðu til síðustu. Orðin smugu sem beittar örfar inn að innstu hjartarótum hans, og virtust taka allan frió og ró frá honum. Hvort sem hann ætlaði aó setja sig niður við skriftir eða lestur næstu daga, gat hann á engan hátt bundið hugsunina við það. Hann var upptekinn af einu umhugsunarefni: Kon unni og blaðinu, blaðinu og konunni. Hann vegur vitnisburð gömlu konunnar ásamt lesmáli blaðs- ins, hvaö eftir annað á vogarskálum ískaldrar gagnrýni og leggur á móti bókmenntaþakkingu sína. En því oftar, sem hann gerir það, því léttari veiður vogarskálin hans. Eftir margra daga stríö við sjálfan sig, hringir han,n í síma til ritstjóra blaðsins, er hann hafði séð að var Lewi Pethrus, og óskar eftir sam.tali: við hann, ef hann vilji gera svo vel og koma heim til sín. — Pethrus kemur og þeir tala sarnan í fleiri klukkustundir. Að lok- um krjúpa þeir báðir og biðja til Krists, •— og þar írelsast hinn víðkunni, sænski rithöfundur, Sven Lidman. Næsta ár — og lengur, er Sven Lidman maður- inn, sem stendur við veginn og virðir fyrir sér meö hverjum hann skuli ganga. Hann óar við þvi ad ganga inn í söfnuð Hvítasunnumanna, því að ein- mitt þá stóð styrinn sem hæst þar í landi um hreyfinguna. Að vísu sá hann og kannaðist við frelsið og gleðina, ,sem einkenndi þetta, fólk frarn yfir margflesta aðra tr.úaða. Af þessu hreifst nann og fannst þá, ínörgum. sinnum, sem hann væ.ri bein af þeirra beinum. En þá var það bók- menntaheiður hans. — Hann var í veði, áleit hann, ef hann gengi inn í eldinn til Hvítasunnumanna. Á sama tíma gekk hann á samkomur til annara frjálsra safnaða, sá og heyrði, gagnrýndi og vóg. En eftir því sem hann hlustaöi oftar á aðra 'öfnuöi, var því líkt, sem seguhnögnuð áhrif drægju hann aftur að því, sem hann var að flýja. Um stund hverfur Sven Lidman á bak við tjald- ið, svo að segja, en það er ekki lengi. Áður en nokk- urn varir, er ný bók komin á bókamarkaðinn eftir hann, sem. heitir: »Huset med de gamla fröknarna«. í'leiri ritdómendur skrifa um bókina, þar á meðal Fredrik Böök, prófessor í bókmenntum, og' einn með allra skörpustu ritdómendum Svia. Hann 5

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.