Afturelding - 01.01.1938, Page 8

Afturelding - 01.01.1938, Page 8
AFTURELDING. IMMANUEL MINOS Ferðasaga svertingjaclrengs. Eftir Gunneríus Tollefsen. Formáli. A ferðum okl;ar hjónanna ásamt Immanúel litla hefi ég oft verið beðinn að gefa upplýsinga.r um drenginn ckkar. Þetta hefi ég gert með ánægju. En í gegnum við- tnl við fólk hefi ég sannfærst um, að marga fleiri, en ég hafði hugmynd uni, langar til að heyra eitthvað um hann. Til j.essara mörgu er nú bók skrifuð, og er það ósk mln og von, að sérstaklega æskulýðurinn og sunnudaga- skólarnir I landinu fái áhuga fyrir þessari frásögu um drenginn frá frumskógum Afríku. Osló í janúar 1934. lliii'undiirinii. Síðan ég kyntist Immanúel Minos og fósturforeldrum lians, á ferð minni I Noregi 1936, hefi ég haft hug á að kynna íslensku börnunum þennan frábæra dreng, sem ef- laust er yngsti prédikarinn á Norðurlöndum. Prátt fyrir það, að hann er kominn alla leið frá svartmyrkri heiö- indómsins í Afríku, og þrátt íyrir það að hönd hans er dökk »af ljósi sólar«, er sál hans björt og hrein og tær og leitast við að endurspegla mynd Frelsarans, sem Imm- anúel litli elskar og tilbiður. Um það vitnar lika þessi a.'fintýralega saga hans, sem birtist hér lauslega þýdd úr norsku. — Pað hefir komið til mála, að Immanúel heimsækti Is- land næsta sumar, og verður hann þá vonandi búinn að cignast marga vini meðal lesanda »Aftureldingai’«, sem f.igna komu hans. Kristíu SæmuiHls. Um fjögur fyrstu ár Immanúels, áður en hann kom til okkar, er í raun og veru ekki mikið að segja. Luvungi-þorpið, þar sem hann fæddist 11. júní 1935, var um það leyti að verða til. Það er aö segja að belgisku stjórnarvöldin í landinu höföu ákveðið að nýji bílvegurinn milli Tanganika og Kivuvatnanna skyldi ekki liggja gegnum hið gamla Luvungi. Þorpið átti að leggjast í eyði, þrátt fyrir cll múrsteinahúsin, sem ríkið áður hafði byggt, þar. Þorpið lá nefnilega of langt úr alfaravegi, og er hinar iífshættulegu »Kimbutu«flugur höfðu kom- ist inn í húsin, ákváðu menn að yfirgefa þorpið. Faðir Immanúels, sem var grískur kaupmaður IMMANÚEL MINOS og giftur innlendri konu, vax meðal hinna fyrstu, er byggðu hið nýja Luvungi. Hann lagði stund á smáverzlun, ásamt nokkrum arabiskum kaupmönn- um, er verzluðu við landsmenn. Þarna fæddist nú Immanúel, og þarna, eyddi hann sínum fyrstu ár- um ásamt börnum Arabanna. Eins og von er til, man Immanúel ekki mikið eft- ír sér frá þessum árum. Einstaka hlutir hafa þó fest sig í minni hans. Þannig minnist hann þess, að hann oft var veikur, sennilega af malaria. Luvungi er allt annað en heilnæmur staður, þaö liggur hér um bil beint undir miðjarðarlínunni. Hita- veikin hefir sjálfsagt hindrað framför drengsins, það var því veikbyggð jurt, sem okkur var fengin til varðveizlu. Hann hafði auðvitað lil'að á sama fæði og hinir innfæddu Afríku-búar og þaö er nti svona og svona. Þegar ég sá hann fyrst, var hann lítill og feimnis legur.Hann var í einum náttfötum, skólaus og húfu- laus. Þarna stóð hann í búð föður síns og horföi á okkur spurnaraugum. Ég gleymi því aldrei. Vió h.iónin vorum á leið til Oviru, sænsku trúboðsstöðv- rainnar. Þegar við komum til Luvungi, hittum. við föður Immanúels, og hann bauð okkur heim til sín. Meðan við vorum að tala saman, spurði hann okkur, hvort við vildum taka drenginn hans. Þessu gátum við auðvitað ekki svarað svona allt í einu, en konan mín bað um að fá að sjá hann. Dreng- urinn kom eins og hann var, óhreinn og svartur, í náttfötunum sínum. Þótt undarlega megi virð- ast, leist, konunni minni strax vel á hann. Skæru gáfulegu augun hans ljómuðu í langri fjarlægð og báru vott um óvanalega rmikla hæfileika og þá má ekki gleyma dökka hrokkna hárinu hans. 8

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.