Afturelding - 01.01.1938, Page 10

Afturelding - 01.01.1938, Page 10
AFTURELDINC Endurminningar frá Stokkhólmi 1937 Sumarið 1937 varum við um tíma í Stokkhólmi og- nutum t*'6ös hjá trúuðum vinum okkar. Fyrst vorum við írestir safnaðarins í suðurhluta borgar- innar og bjuRgum þá á gistihúsi, sem var eign trú- systkina. Ásamt okkur bjuggu þar um þessar Ericson og fjölskylda. mundir sjö svertingjar frá Ameríku, sem voru að ferðast um Svíþjóð og halda söngsamkomur. Þeir sungu nefnilega 5-raddað, og var yndislegt að heyra til þeirra. Sumir þeirra voru börn hinna svörtu þræla, sem uppi voru í Ameríku, áður en frelsis- Orðsending til lesendanna. Þar eö við vitum, að margir hafa úhuga fyrir útbreiðslu blaðsins, þá viljum við gefa slíkum mönnum kost á að fvrir litla, upphæð gefa vinum sínum og kunningjum góða gjöf, sem kemur til þeirra. heilt ár. Ef þið sendið kr. 5,00 og nöfn fimm manna, sem þið vilji.ö gefa, blaðið, þá send- um við það beint til þeirra í hvert skifti sem það kemur út. Ef þið viljið gefa fleirum, þá bætist við kr. 1.00 fyrir hvern. Þetta er þó aðeins þegar um nýja áskrif- endur er að ræða og ekki færri en fimm. y>Lappicátor«. Kofar Lappanna í Norðar- Svíþjóð. stríðið hófst. Þesisir menn höfðu frelsast frá lífi í synd og e.ymd og ferðuðust nú víða um og sungu og vitnuðu um náð þá, sem Drottinn hefði auðsýnt þeimi. Við töluðum oft við þá, og litla stúlkan okk- ar, Inger, hafði oft gaman af, er þeir voru að reyna að tala við hana og gefa henni gcðgati. En hún skildi auðvitað ekki enskuna, sem þeir töluðu. Sunnudag einn, er við vorum í Stokkhólmi, sungu þeir á útisamkomu í Haga skemtigarðinum. Þar voru mörg þúsund manna samankomin til að njóta gúða veðursins og koma um leið á kristilega. s,am- komu. Margir höfðu mat meðferðis og voru svo þarna kyrrir k milli samkomanna. Við gátum ekki verið þar nema fyrripart dagsins, því við áttum að tala á öðrum stað um kvöldið. Héldum þá fyrir- lestur um Island, og var því vel tekið. Svíar hafa hin síðustu ár fengið rneiri löngun til aó fylgjast með því, sem gerist á Lslandi. 1 Stokkhólmi búa nokkuð margir Islendingar, meðal annara ein kona, sem túlkaði fyrir mig, er ég kom fyrst hingaö til Islands. Hún var þá í Vestmannaeyjum hjá þýska konsúlnum, sem var mjög vinveittur starfi okkar og tók málstað hvítasunnuhreyfingarinnar, þegar ýmsir menn þar reyndu að hindra Guðs verk. Hún hefir mikinn á.huga fyrir starfinu á Islandi og bið- ur til Drottins, fyrir því. Seinna skiftið vorum við gestir Filadelfiusafn- aðarins og bjuggum þá á hvíldarheimili þeirra íyi- ir trúboða,. Þegar við vorum þar, voru þar líka hjón frá Spáni, og höfðu þau fengið leyfi stjórnarinn- ar á Spáni til að fara til Svíþjóðar ag síðan til Mexiko sem trúboðar. Það var mjög hryggilegt aö heyra þau tala um þjáningar og erfiðleika, sem Spánverjar eiga við að stríða. Það eru þrenging- artímar, sem eru að fara í hönd á ýmsum stöðum, og munu halda áfram, þar til Kristur kemur og tekur við völdum. Það var dýrmætt að fá að vera með á hinum miklu samkomum, sem haldnar voru í Filadelfiu. 10

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.