Afturelding - 01.01.1938, Síða 12

Afturelding - 01.01.1938, Síða 12
AFTURELDIiNG. Elgadýr. mig- ekki. Kálfarnir voru hér um bil hálfsmánaðar gamlir, en þeir stukku í kringum móðurina og sugu hana á milli þess, sem þeir hlupu út að ströndinni og fóru út í vatnið til að synda, en móðirin var þar á gangi í ró og næði og var að bíta gras. Mjög óskaði ég þá, að ég hefði haft myndavél með mér, því þaö var mjög fagurt að sjá þetta. Par var hinn n i'kli kyrrláti skógur og hiö spegilslétta stöðuvatn og svo þetta yndisfagra fjölskyldulíf villidýranna á þessum fagra sumardegi. Þar eö þið ekki feng- uð að sjá þau, vil ég lofa ykkur að sjá eitt elgs- dýr úr dýragarðinum. Svo skulum við fara og skoða fuglana. Þeir eru í umfangsmiklum búrum. Stórt skógarsvæði meó trjám og öllu saman er girt bæði um kring og að ofan með vírneti. Par eru allskonar sænskir fugl- ar, hver syngjandi með sínu nefi. Sumir hátt uppi í trjánum, sumir niðri á jörðinni, ,sumir á eggj- um í hreióruti sínum og sumir syndandi á vatn inu. En fugla hafið þið séð, svo við skulum heldur fara að skoða apana. Pað er afar- skemmtilegt, skal ég segja ykkur. Þeir eru inni í stóru húsi í mórg- um herbergjum með mörgum búrum í hverju her- bergi. Þeir stökkva til og frá og klifra upp og nið- ur eftir vírnetinu eða í reipum, sem hanga niður úr þakinu. Þeir eru alltaf að sníkja góðgæti hjá fólkinu, sem kemur til að sjá þá. Peir fá hnetur og brjóstsykur, banana og því um líkt. Stundum ei' I>eim gefið þetta í bögglum, og þá eru þeir að flýta sér að slíta sundur bögglana og ná í það, sem er í þeim. Stundum eru þeir plataðir og gefn- ir tómir pakkar. En þá verða þeir svo reiðir, að maðurinn verður að gæta sín, því þeir þekkja hann vel, og svo kasta þeir bögglinum beint framan í manninn. Á þessum stað eru líka allskonar páfa- Bjamdfjr. gaukar og aðrir fuglar, margir ljómandi fallegir. Hér eru líka skjaldbökur og krókódílar, slöngur og m. fl. En nú býst ég við að þið séuð farin að þreytast, svo við skulum fara að hugsa um að íara héðan. En fyrst verðið þið að fá ykkur dálítinn reiðtúr á fílnum, sem er hérna. Það kastar aðeins 10 aura ao ríða spölkorn. Þið eruð þá 6—8 krakkar í einu, 4 hvoru megin á baki fílsins í stórum sætum. Svo fer fíllinn af stað með ykkur og þið eruð auðvitað mjög hrifin af að fá að ríða. En ekki fara þeir hart, svo ég kysi heldur að ríða. á fallegu, sterku og léttfættu íslenzku hestunum. Já, nú erum við þá búin að vera á þessum stað í meira en 5 klukkutíma. — Hefir ekki Guð skapaö margt fallegt handa okkur mönnunum? Við verö- um því að vera honum þakklát fyrir allt saman. Einnig hér á Islandi er fallegt og got.t, að búa, svo þið skuiuð lofa Skaparann fyrir það. Og svo megiö þið ekki gleyma mestu gjöfinni, sem Guð hefir gefið okkur, og- við höfum nýlega haldið hátíð til minningar um. Þessi gjöf er Jesús Kristur, Frels- ari heimsins, ,sem kom hingað tdl þess að frelsa synduga menn. Hann er nú farinn burt, til að búa okkur stað á himni. Þar verður allt miklu fallegra, já miklu fallegra en hið fegursta á jörðinni. Elsku börnin mín. Áður en ég enda, þá viJ. ég hvetja ykkui- til að fara, og hlusta á Guöis orð og fara í sunnudagaskóla, ef þið eigið kost á því. Og minnist þess, að Jesús elskar ykkur og langar til að þið elskið hann aftur á móti. IJm kvöldið vorum við á samkoanu. Þar voru rnörg börn, sem elskuðu Jesú, og senda kveðju sína t,il íslenzku barnanna. E. E. 12

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.