Afturelding - 01.03.1938, Page 7

Afturelding - 01.03.1938, Page 7
AFTURELDING Hinn eldgamli kross. I<ag: Segertoner nr. 417. Upp á afskekktri hæð stendur eldgamall kross, sönn ímynd af háði og smán. ó, ég elska þann kross, sem mín einustu hnoss, því inn við hann fann ég mitt lán. Kór: Ég vil elska hinn eldgamla kross, 1 hans krafti ég sigurmn vinn. Ég vil heiðrai þann heilaga kross hér, unz eilífðarkransins er minn. ó, hinn eldgamli kross var sem annarlegt lag, er örviltan dró mig til sin! ó, þú Kristur, minn Guð, sem þú kvaldist þann dag, er krossinn þú barst vegna, mln! Við hinn eldgamla, kross, við hans blóðstökkta: baðm mér birtist Guðs íórnandi ást. ó, þú eilífi Guð, með þinn útbreidda faðm, þar einkunn þíns kærleika, sást! Vegna’ þíns eidgamla kross mun ég' æfilangt sæll, þola atyrði, píslir og smán. Ég er konungsins barn, ekki keisarans, þræl.l. Og krossinn er hrós mitt og lán. ásíi). Elríksson þýddl. HINN ÞYRNIKRÝNDI KONUNGUR VOR Mark. 15, 1.—39. Lestu kailann í biblíunni. 1 þessum versum kemur í ljós, hve ákafir menn geta orðið, er þeir berjast fyrir málefni, sem þeim finnst vera rétt. Æðstu presitarnir með öldungun- um og fræðimönnunum hugsuðu ekki mjkið um svefn þessa nótt, því þeir höfðu ákveðið að fara burt með Jesúm og framselja hann Pílatusi. Og þó voru þetta landar Jesú, hans eigin þjóð, sem vildi ekki láta Jesúm ganga lengur á meðal þeirra og gera góðverk. Af hverju? Af þvi að þá vantaði sjálfa þann kraft, sem hann .hafði. Þegar þeir því ekki gátu fengið sínu framgengt, fóru þeir að bera sín eigin verk saman við verk Jesú, og í stað þess að leita Drottins í auðmýkt og viðurkenna vanmátt sinn, þá vaknar öfundin hjá þeim, sem fer svo langt með þá, að þeir dæma Jesúm til krossfest- ingar. En sjáið hve undrafögur og dýrmæt, mynd af kærieika Krists kem,ur þar fram. Hver eítir annan kemur fram og ber ljúgvitni á móti Jesú. En Hann svaraði alls ekki framar. Þó hafði Hann ekkert illt aðhafst, og svik voru ekki fundin í Hans munni. Hví mótmælir Hann þá ekki? Hví ver Hann sig ekki? Hví notar Hann ekki mátt sinn til þess aö hreinsa sig af þessum sakargiftum? Það er ai pví, að Hann kemur þar fi am til að taka á sig sekt mannanna. Hann þegir því eins og lambið, sem leitt. er til slátrunar. »Það voru vorar þjáningar, sem Hann bar, og vor harmkvæli, sem Hann á sig lagði«. Það eru sérstaklega tvær spurningar, sem Píla- tus kom með, sem ég vil taka fram. Iivorn viljið Ix-r að ég gefi yður lausan, Krist eða Barrabas? Og hvað á ég að gera? Fólkið fékk að svai-a fyrir sig og Pílatus fyrir sig, þótt hann spyrði um það. Sama er að segja um okkur. Enginn getur svarao fyrir annan. Og það er ekki aðeins að velja á milli Krists og Barrabasar. Það nær dýpra. Það er að velja á milli Hans, sem gekk um kring, græddi sjúka og prédikaði Guðs orð, og' morðingjans og ræningjars, sem hér stendur sem ímynd sálna- óvinarins, sem er kominn til að stela, slátra og eyða. (Jóh. 10.). Þeir kusu Ba,rrabas lausan og þar með líka lausn sinnar eigin eymdar og neyðar. Gyðing- arnir hafa allt til þessa tíma fengið að líða bæði andlega og líkamlega, af því að þeir báðu um Barrabas, en útskúfuðu Kristi, »Og þeir færa Hann í purpuraskikkju og flétta þyrnikórónu og setja á Hann. Og þeir tóku að heilsa 19

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.