Afturelding - 01.11.1938, Qupperneq 2

Afturelding - 01.11.1938, Qupperneq 2
AFTURELDING. Siúlkan og greskarið Þetta voru cnnur jólin hennar Maríu litlu. Mamma hennar dó og fór heimi til Jesú, þegar hún fæddist. Ég hafði ákveðið að gefa henni ú- gleymanleg jól, sumpart til þess að gleðja hana, en sumpart til þess að sefa hryggð míns eigin hjarta. Nokkrum vikum fyrir jól, fór ég að spara saman aura af mínu litla kaupi, dálítiö hér og dálítið þar, til þess að geta keypt fallegar gjaíir handa henni til lólanna. Næstum allur aðfanga- dagurinn fór í að kaupa jólatré og skraut, brúðu og ýms leikföng fyrir börn-. Seint um kvöldið, áður en ég fór að hátta, var tréð skreytt og sett á sinn stað. Undir trénu hafði ég raðað brúðunni, leikfóngunum og sælgætinu. Ég var mjög hamingjusamur þetta kvöld, er ég hugsaði til gleöi litlu telpunnar mdnnar næsta morgun, og um það, að mamma hennar, sem nú var hjá Jesú, mundi vera ánægð með þessa ráð- stöfup mína. Við vöknuðum bæoi snemma næsta morgun og gengum saman til dagstofunnar. Ég lét hana gægj- asít um dyragættina inn í stofuna. kforgunsólin var einmitt þá farin að lýsa inn gegnum glugg- ana og varpaði. geislum sínum. á tréð. Mér fannst ég hefði aldrei ssð svo fagra sjón. Jólatrés- skrautið glitraði með ótal litbrigðum> í sólarbirt- unni. Litla stúlkan haíði aldrei séð neitt þessu líkt áður. Hún horfði agndofa á allt og þorði varla að ganga nær. Loksins, þegar ég var búinn að tala kjark í hana, þá fekk hún nóga djörfung til þess að snerta hina undursamlegu hluti, sem láu þarna á gólfinu. Þetta var mjög dýrleg gleðistund fyrir okkur bæði. Seinna um daginn sendu meðlimir þessi safn- aóar, sem ég veitti forstöðu, til okkar stóra körfu fyllta: með ýmsum matvælum. Á botninum lá stórt greskar. — Stór ávöxtur á stærð við fótbolta. — Og hvort sem þið trúið mór eða ekki, þegar barn- ið sá þetta stóra greskar, þá gleymdi hún undir eins trénu og dýrð þess ásamt öllum þessum hlut- um, sem ég af fórnfærandi kærleika hafði lagt svo mikið á mig til þess að geta gefið henni. Frá þeirri stundu var ekkert annað en greskar- ið, sem veitti henni gleði. Hún velti því gegnum herbergin með miklum fagnaðarlátum. Hún set-t- ist á það, hún sló það og reið á því. Hún fór með það í rúmið á kvóldin, cg jafnvel í kirkju haíði hún það meðferðis. Hvenær, sem ekið var með hana út, í barnavagni, mátti hún til með að hafa það með sér, á meöan lét hún brúðuna, alveg afskipta- lausa, Hún var ekki ánægð með neitt annað en greskerið. Er ég athugaði dóttur mína og dálæti hennar á greskarinu,, en að hún um leið fyrirleit gjafir mínar, þá talaði Guð til míns hrygga hjarta á þessa leið: »Sonur minn, hún hagar sér einmitt einsi og inín eigin börn. Ég hefi gefið heiminum hina beztu jólagjöf — minn einkason. En eins oe: barnið þitt fyrirleit gjafir þínar, þá fyrirlíta þeir Hann cg leika sér í staðinn með »greskör« sín. Þegar ég var að hugsa um þessa áminningu Guðs, þá var eins og ég sæi fyrir mér mennina með s.ínum mörgu áhugamálum. Einn eyðir öll- um tíma sínum við verzlun, konan hugsar ein- göngu um heimilið, ungi maðurinn hugsar um framtíðina og unga stúlkan um að ná sér í góða stöðu í lífinu. En hin óumræðilega gjöf Guðs er fyrirlitin. VisBiulega er greskar góður hlutur á sínum stað — vel matreitt. En ef það er ekki notað réttilega, heldur fyrir leikfang, þá enciar það með einhverrí heimsku. Þannig verður einnig með þá. hluti, sem við tökum í staöinn fyrir beztu gjöfina: Jesúm Krist. Allar gjafir Guðs eru góðar, en eiga að koma í öðru lagi. Kristur á að vera fyrstur í lífi okkar. Að lokum var dóttir mín búin að sitja einu sinni of oft á greskarir.u. Það var orðið mjúkt af elli og af mikium leik. 1 þetta skipti brotnaði greskarið undir henni, og þarna sat hún nú fljótandi í tár- um mitt í hinu rotna greskari, óhrein og óhugg- andi af harmi. Endir þessa, leiks, varð, að gres- karið lenti í skólpíötunni og stúlkan var þvegin í baðkerinu. Þannig verður það einnig með þser gjafir, sem við tökum fram yíir kærleiksgjöf Guðs. Þær líða allar undir lok, er við höfum notið þeirra stutta stund. En Kristur verður okkur dýrmætari fyrir hvert ár, sein liður. R. H. Moon í Pentecostal Evangel. E. E. íslenzkaði. 62

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.