Afturelding - 01.11.1938, Síða 6
4FTURELDING,
Trúadramótid á Akureyri
Það var með mikilli eftirvæntingu, að við lögð-
um af stað til Akureyrar. Við urðum heldur ekki
fyrir vonbrigðum. Ferðin gekk mjög vel. Við
stönzuðum fyrst á Isafirði heilan dag, sem við
notuðum til að koma blöðum og bókum út. Isfirö-
ingar eru alltaf .svo kurteisir, að það er mesta
skemmtún að koma til fólksins þar. Seinni part
dagsins komu nokkrir vinir saman til bænar, og
var það undursamleg stund. Einnig heimsóttum
við Siglufjörð og hittum okkar kæru vini þar.
Að kveldi dags hinn 9. nóv. komum við til Ak-
ureyrar í svarta myrkri, því rafmagnsstöðin hafði
bilað. Urðu Akureyringar og aðkomumenn að láta
sér nægja kertaljós nokkurn tíma kveldsins. En
svo þegar rafmagnsljósið komi, þá, urðu þessi 20
kerti, sem við reyndum að lýsa samkomusalinn
með, lítils virði samanborið við hin skæru rafljós,
Maður hefir þar glöggt dæmi., hvernig það er í
trúarlífi margra rnanna, Mörgum, finnst, að hann
hafi nóg ljós, en svo þegar ljós Heilags Anda varp-
ar birtu yfir trúarlífið og sálarástand mannsins,
þá kemur margt fram í ljósbirtuna, sem maður
hafði ekki hugmynd um áður.
Eitthvað af þessu fengum við ,að reyna á biblíu-
lestrartímunum og samræðufundunum. Guðs Andi
varpaði skærri birtu yfir ýmislegt, sem hingað til
hafði verið hulið.
Það, sem við sói'staklega tókum til umræðu var:
Söfnuður Guðs. Var mjög fróðlegt að hlusta á hina
ýmsu ræðumenn, semi höfðu margt að bera á borð
í þessu efni. Þá var ta.lað um trúboðana og störf
þeirra, og fengum við úr orði Drottins margar leio-
beiningar og upphvatningar þar að lútandi. Trú-
boðsstarfið fer stöðugt’ vaxandi, og enn fleiri
starfsmenn bætast við í hópinn. Guð gefi öllum
náð til að starfa trúlega allt til enda, svo að marg-
ir menn mættu vinnast fyrir ríki Guðs. Ramseiius
hafði síðustu dagana nokkra fróðlega fyrirlestra
um hið spámannlega orð og áreiðanleik þess.
Drottinn starfaði fyrir sinn Heilaga Anda, og
Orðið þrengdi sér djúpt niður í hjörtu allra.
Einn daginn var farið inn á Kristneshæli. Tóku
sjúklingarnir vel á móti okkur. Samkoman var
mjög indæi, og trúum við, að vinir okkar á hæl-
inu hafi haft mikla blessun af henni. Einn dag-
inn í vikunni þar á eftir var farið til Dalvíkur.
Kl. 11 f. h. fór fram skírnarathöfn í sundlaug uppi
í dalnum þar, og þrír ungir nýfrelsaðir menn stigu
66
þetta mikilsverða ,spor í hlýðni við Guðs orð. Það
leyndi sér heldur ekki, hve mikla gleði og trúar-
styrk þeir öðluðust við það. »Þannig ber okkur aö
fullnægja öllu réttlæti«. Matt. 3, 15.
Dagarnir á Akureyri voru hinir ánægjulegustu,
og sa:m(vera syst’kinanna yndisleg, enda höfðu vin-
irnir á Akureyri gert allt, semi hugsast gat, t'l þess
að veita aðkomumönnum gistingu og annað. Erum
við vinum okkur mjög þakklát fyrir það allt, sér-
staklega þeim Sigrnund Jakobsen og Nils Ramse-
lius, sem stóðu fyrir móttökunum. Við erum þess
fullvissir, að Guð muni launa söfnuðunum á Ak-
ureyri með ríkulegri blessun. Sálir leituðu Drott-
ins á síðustu samkomunni. Er það von okkar, að
Guð muni framvegis frelsa marga, sem vilja ganga
Guðs veg.
Það væri margt að skrifa um mótið og allt, sem
þar kom fram, en vegna rúmleysis í blaðinu, er
ekki hægt að skrifa meira nú.
Með þessum línum viljum við aðeins senda
kveðju til allra þeirra, sem við höfðum, þá gleði,
að hitta á Akureyri. Svo eru samræðurnar og fyr-
irlestrarnir geymdir í hjörtum okkar, sem sóttum
mótið, og munu vissulega koma okkur að góðum
notum í okkar daglega. lífi og starfi.
Orðsending til lesendanna
Þegar nú þetta ár er að líða undir lok, viljum við
senda beztu þakkir til allra vinai, sem á einn eða
annan hátt hafa stuðlað að því, að blaðið hefir
getað komið út og breiðst svo víða út. um landið,
Blaðið hefir fengið um 400 nýja áskrifendur á
þessu ári. Við höfum enn ekki náð markmiði okk-
ar fyrir árið, en erum Guði þakklátir fyrir þá,
sem hafa bæzt viö hingað til.
Öskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls
nýárs í Jesú nafni.
Baruablaðið
Nýlega er farið að gefa út Barnablaö. Það eru
vinirnir á Akureyri sem hafa ráðist í það. Ritstjór-
ar eru Nils Ramselius og Sigmund Jakobsen. Viö
höfum lesið fyrsta blaðið og getum með sanni sagt,
að það er mjög' fróðlegt og' ,skemmtilegt. Erum viö
viss um, að börnin, já jafnvel fullorðnir hafi gam-
an af að lesa það. Kaupið það sem fyrst. Það kost-
ar 15 aura eintakið eða 75 aura fyrir árið. Af-
greiðsla er í Þingholtsstræti 4, Akureyri. — Út-
sala í 'Reykjavík er á, Hverfisgötu 44.
E. E.