Afturelding - 01.11.1939, Blaðsíða 6

Afturelding - 01.11.1939, Blaðsíða 6
AFTUBELDINS Biblíuskólinn í Reykjavík. Vegna margra örðug- leika, er samfara voru striðinu, var horfið frá því ráði, að biblíuskól- inn yrði lengur en viku í þetta skipti, og þessu var lýigt yfir í »Aftur- elding« — sept.—okt. En þótt tíminn væri styttur þetta, fengum við að sjá flest af þeim systkinum koma til Reykjavíkur, sem höfðu hugsað sér það. Aðkom- in systkini utan af landi og' Vestmannaeyjum, voru nær 20. Þetta er ao vísu ekki stór hópur, en það var þó til mikillar gleði og blessunar að njóta þessa samveru- tíma. Uppbygging Orðs- ins og' fögnuöur Andans var »ilmur daganna«, og við fundum það, sem brúðurin í Ljóðalj. hafði áður fundið, að nafn Jesú er hinum endurleystu eins og' úthelt olía. Viö fund- um það öll, að yndislegan ilm lagði af smyrslum hans —- fyrsta sem síðasta daginn. Þegar dagarnir sjö voru liðnir, fannst okkur sem við værum komin upp á hæðirnar, sem -Jesaja spámaður talar um: »Augu þín skulu sjá konung- inn í ljóma sínum, þau skulu horfa á víðáttumikio land« (Jes. 33, 17.). - Hvílíkt víðáttuland eigum við ekki í endurlausnarverki Krists! - Við gátum ekki slitið hópinn strax á þessum yndislegu hæð- um, svo við gerðum sjö daga vikuna að tólf daga viku. En einnig- að kvöldi tólfta dagsins var breidd- in, lengdin, hæðin og dýptin í Kristi lítt numin og ótæmd, hallelúja! Með sönnu er hægt að segja, að verulegur árang- ur sást eftir þennan tíma. Þrjár ungar konur tóku skírn og' gengu inn í söfnuðinn. Fráfallnir endur- lifnuðu og komu aftur til safnaðarins. Auk þess var beðið með nokkrum sálum öðrum, sem vænta má að haldi áfram til meiri vaxtar og þroska í sam- félaginu við hann, sem kallaði þær. Bræðurnir höfðu samræðufundi innbyrðis, þar 66 Þátttakend'wr Biblmskólans. sem þeir ræddu hinar ýmsu greinar starfsins. Var það mikið gleöiefni fy.rir eldri bræðurna, sem fáir einir hafa boi'ið hita og þunga starfsins undanfar- in ár, að sjá |iann áhuga og skilning, sem yngri bræðurnir hafa, á útbreiðslu Guðsríkis. Þeir sýna það, að þeir eru fæddir af hreyfingunni og' loga af glóð kostgæfninnar að vinna sálir fyrir Drott- in. sinn og Frelsara. Þeir eru um leið synir þjóð- ar sinnar, sem þekkja kringumstæður og þjóð- hætti betur en útlendingarnir. 1 þessum ungu bræðrum sjáum við þá men.n, sem Drottinn er að hertygja fyrir framtíðarstarfið á Islandi. I sambandi við hina vaxandi möguleika til þess að ganga inn um þær opnu dyr, sem Guð hefir opnað hér og þar fyrir starfinu, var um þaðrætt, að heppilegt væri að söfnuðurnir, hver fyrir sig, hjálpuðu ísienzku trúboðunum eftir því, sem efni leyfa. Á þann hátt gæti það orðið mögulegt fyrir hvern söfnuð að styrkja eitthvert vitni Drottins, sem starfaði hjá söfnuðinum, annað hvort á staðn- um eða ef söfnuðurinn vildi senda einhvern út um landið með fagnaðarerindið. Þetta skyldi þó aðeins miðast við þau vitni, sem hefðu ekki styrk annars- staðar frá — eða svo lítinn, að ekki væri nægilegt.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.