Afturelding - 01.11.1939, Page 8

Afturelding - 01.11.1939, Page 8
A F T UBELDINIr, Bretakonungur og barnid. Bretakonu.ngur kom eitt sinn, með konungleg-ri Tjðhöfn á vissan stað. Þegar hann hafði sezt í við- hafnarsæti, kom lítið barn og skreið upp á hnc hans, enda meinaði konungurinn barninu ekki að gera þetta.. Strax og barnið var búið að koma sér vel fyrir á hné konungsins, lítur það í augu hans ©g spyr: »Hefir þú gaman að gátum?« »Já«, svar- aði konungur. Þá hélt barnið áfram: »Get,ur þú sagt mér, hvað það er, sem er hvítara en snjór?« Konungur hugsaði sig um nokkra stund, en sagði svo, að hann gæti ekki vitað um neitt, sem væri hvítara en snjor. »Þá skal ég segja þér það«, sagði barnið: »Mannssálin, sem er orðin hrein í 'blóði Krists, fyrir trúna á hann, er hvítari en snjór í augum GuðSi«. Þess er ekki getið, hvað konungi hafi ®rðið við. Guðs fingur á alvarlegri tíð! Heródes konungur, sem vildi fyrirkoma lífi Krists strax við fæðingu, hefir orðið táknræn mynd þess, hve konungar og mektarmenn þjóðanna yfir- leitt hafa verið seinheppnir gæfusmiðir í því að votta Kristi viðeigandi hollustu. Þegar Sísak heims- andans hefir rænt, þá gullskjöldum trúarinnar, hef- hinn, ástríki Faðir þeirra á himnum hefir komið þeim tiL hjálpar, og við það hefir trú þeirra orð- ið sterkari. Sú, ,sem þýðir þessa litlu sögu, getur sjálf sagt frá atviki, sem er mjög avipað þessu. Það var á aðfangadag jóla milli kl. 4 og 5 e. h., að ég var að fara niður í bæ. Þar stendur þá kona við jóla- pott hersins. Hún spyr, hvort ég vildi ekki leggja eitthvað í jólapottinn. »Jú, ég' á hér 10 aura, það skal ég gefa«. Það var al.lt, sem til var í eigu minni, og jólirx voru að fara í hönd, og heima voru tvö fóstur- börn, sem ég sá fyrir. Ég var að skila af mér þvotti, og ætlaði að kaupa mat íyrir peningana til jól- anna, en konan. hafði ekki peninga fyrir hendi, svo ég gat ekki fengið neitt, og leit ekki út fyrir, að ég hefði neitt til jólanna. En Guð, sem sér og veit allt, vissi einnig um þarfir mínar. Og' er ég kom heim. þá var þar þegar kominn. matur á borð. Og seinna um kvöldið kom maður og gaf mér 50 kr. til nauðsynlegrar þarfar. J. B. ir þeim farið eins og Rehabeam konungi Salómóns- syni — þeir hafa gert sér mismunandi vel fægðar eftirlíkingar úr eiri (I. Kon. 14, 25—28). Hvers- konar menntun og siðfágun, er kemur ekki sem bein afleiðing af lífrænu sambandi mannsins við Krist, sem Frelsara sinn, er slíkur eir, sem brestur hið sanna gullgildi. Af eirmálmi þessarar lífvana siðmenningar hafa konungar og ráðamenn þjóð- anna slegið sér og þegnum sínum hlífðarskjöldu, og borið þá sem gull væri. 1 4. Mós. 20, er sagt frá því, að Móse hafi beðiö konunginn í Edóm að leyfa Israelsmönnum að fa.ra konungsgöturnar um Edóm-land. Þetta. bannaði Edómkonungur honum, og kom á móti þeim með sverðseggjar, »... miklu liði og sterkri hendi?« Móse er fyrirmynd Krists. Edóm konungur, sem var afkomandi Esaú — frumgetins sonar Isaks, er fyrirmynd þeirra konunga, sem eru fallnir frá trúnni. Eins og Móse óskaði þess að mega fara eft- ir konungsgötunum um Edómland, svo hefir Krist- ur óskað þess. aítur og aftur að mega fara eftir konungsgötunum um þetta sama land — þ. e. land hinnar dauðu trúar. Móse bað um þetta, vegna þess, að sú leið var styttri og greiðfærari. Hugsum okkur, hvað það hefði verið styttra og greiðfær- ara fyrir Guð, ef konungarnir hefðu opnað veginn fyrir hann, og hann hefði getað sent vitnisburðinn um frelsið gegnum konungana til þegna. ríkisins. En þeir hafa; lokað konungsgötunum íyrir Guði, eins og Edómkonungur, og sagan geymir 'blóð sverðseggjanna á spjöldum sínum í flest skipti, er Kristur hefir gert shka tilraun. 1 næsta kapitula er sagt frá því, að Móse hafi þurft að fara í kringum Edómland, til þess að leiða sái'þyrstan lýðinn til hinna svellandi brunna. (4. Mós. 21, 16—18). Með öðrum orðum — hann. þurfti að fara krókaleiðina. Þannig er með Guð, hann hefir þurft að fara krókaleiðirnar með hina þyrstu, til brunna. hins lifandi vatns,, af því að konungsgöturnar voru lokaðar. Eitt slíkt dæmi og einkar glöggt hofum við í II. Kon. 5. 1 gegnum þau mörgu málaviðskipti, sem Sýrlendihgar höfðu haft við Israels konung, hafði Naaman hershöfðingi aldrei fengið vitnisburðinn um hjálpræði Drott- ins. En Guð sá neyð hans og þorsta og varð þvi að fara, krókaleiðina — af því að konungsgatan var lokuð. Hann varð því að leyfa það, að eitt aí: börnum fyrirheitisins yrði gert að ófrjálsri ambátt í Sýrlandi, til, þess að Naaman, fyndi leiðina til hins vellandi brunns hjálpræðisins. 6S

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.