Afturelding - 01.11.1939, Page 11

Afturelding - 01.11.1939, Page 11
A 1' T U lí U L 1) I N (/ Jólin míii í Torneárdalnum. Torneárdalurinn er ein af hinum skemmtileg- ustu byggðum í Norður-Svíþjóð. Meðfram fljótinu, seni myndar landamæri Finnlands, búa meira en 30,000 Svíar, en er þó finnska móðurmál þeirra. Dalurinn er nokkuð þéttbýll með mörgum stórum kirkjusóknum. Stærstar þeirra eru Efri-Torneá og Pajala. I Pajala bjó á sínum tíma presturinn og eyðimerkurspámaðurinn Lars, Levi Lestadius, vei þekktur kirkjunnar maður í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Húslestrarbækur hans eru enn lesnar á hverjum sunnudegi þarna norður frá. Á dögum Lestadiusar var Pajala stærri. En seinna hefir þessari kirkjusókn verið skift í þrennt, Tárendö og Junosuando. Ef haldið er áfram meöfram fljót- in,u 6 sænskar mílur frá Pajala, þá er komið til kirkjustaðarins Junosuando. Þar búa um 400 íbú- ar, og tala þeir aðallega finnsku. Nokkrir af hin- um yngri kunna eitthvað í sænsku. Þar er messað tvisvaj- á mánuði, og þá á finnsku. Svo eru lx>rp hingað og þangað á hinu víðáttumikla landflæmi þarna, og þangað er farið í visitasíuferðir á vet- urna. Þá er ekið á sleðum yfir mýrlendi og vötn og gegnum skóga. Sleðinn er það stór, að hægt er að leggjast þar til svefns, ef menn vilja. Þegai presturinn kemur til þorpsins, er venjulega hald- in guðsþjónusta á einhverjum bóndabæ eða í skóla- húsinu, og allir fara að heiman, til að hlusta á Guðs orð. Slíkar ferðir eru skemmtilegar. Maður getur þá hitt einn eða annan mann með lifandi trú á Drottin. Til þessarar kirkjusóknar var ég sendur, nývígð- ur til prests, þó gat ég ekki talað finnsku. En eng- inn finnskumælandi prestur var í framboði. Ein- asta orðið, sem ég kunni í finnsku, var »páivá«, sem þýðir »góðan daginn«. Svo fáfróður, sem ungi. presturinn var.í finnsku, svo fáfróður var hann, að því er snerti lifandi trú á Krist. Einhver hefir sagt: »Guð býr í eyðimörki.nni«, Það er mikill sannleikur. Þegar hver maður þagn- ar,. þá talar Guð. Það var í eyðimörkinni, sem Guð talaði við Jóhannes skírara, Það var úr eyðimörk- inni, sem Jesús kom til Galileu í krafti Andans og prédikaði, svo að fólkið undraðist boðskap hans, Það var sennilega í Damaskuseyðimörkinni, sem Guð talaði viö Pál og birti honum leyndardóm frið- þægingarinnar. I þessari þöglu og kyrrlátu sókn fékk Guð það tækifæri að tala við mig, sem hann gat, ekki fengið í hávaða og ys skólanna. Það er endurminning frá. prestsárum mínum, sem ég gleymi aldrei. Það var við messuna á jóladags- morguninn í Junosuando 1930. Guð hafði um það leyti farið að sýna mér tóm- leikann í hinum almenna kristindómi, þrátt fyrir fágaðan ytri búning. Ég hafði fengið andstyggð á skemmtunum meö guðhræðslublæ. Hversu mikla lifandi löngun eftir Jesú og trú á hann var að finna í öllu þessu hátíðarhaldi? Það er ei,ns og' kald- hæðni örlaganna,, að einmitt jólin, sem við höld- um heilög til minningar um fæðingu Krists í fá- tækt og niðurlægingu, skuli vera hátíð til að full- nægja skemmtanafýsn holdsins í stórum stíl. Þá er borðað, drukkið og dansað, sem aldrei fyrr. Menn hafa tekið upp siðvenju eldgamla heiðindómsins hér á Norðurlöndum og sett hátíð Frelsarans, þa.nn dag, er við höldum hátíðlegan til minningar um fæðingu Frelsarans, í samband við þá heiðnu venju. Svo er þessi hátíð sveipuö skikkju guðhræðslunn- ar. En fyrir hinn, sanna, Jesúm er enn ekkert rúm. Nú voru þá jólin komin. Það var venja að halda hátíðarmessuna á sænsku. Þá kemur margt fólk sama.n úr allri sókninni. Um hvað á ég að tala? Á ég að hrófla við fölskum friði þeirra eða á ég fara að venju fyrirrennara minna og koma með fallegt orðagjálfur um Maríu og barnið í jötunni, jólakerti og klukknahringar? En þá kom orð frá 71

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.