Afturelding - 01.11.1939, Page 14

Afturelding - 01.11.1939, Page 14
A I- : ( K i i :> . v • »Ég helt,, að hann. væri allsstaðar«. »Já, það er aö vísu rétt, en ég á við heim Guðs, eg' hann er ekki inni i húsinu. Sérðu trén mín? Ég’ get séð Goliat frá þessum glugga, hann sýr,- ist vera svo grimmur í kvöld, hann heíir rnisst öll blöðin sín, og ég get næstum heyrt, hvernig hann talar við sjálfan. sig. Sérðu þessi mjóu tré, sem eins og fela sig hvert hjá öðru? Ég kalla þau Davíðog Jónatan; þau eru einmitt að kyssast núna., eins og þeir gerðu. Manstu ekki eftir sögunni í biblíunni? Og þarna er beykitréö mitt, þar sem ég sit, þegar ég þykist vera hinn týndi sonur. Pað er of dimmt. til að geta séð öll hin trén. Ég hefi nöfn, á næstum öllum trjánum. Mér þykir voða. gaman að ganga um meðal þeirra. Svo sé ég stjörn- urnar, sem eru að koma fram. Veiztu, hvað ég held um bær? Þær eru augun englanna, og þeii depla þeim hver móti öðrum. Á þetta horfi ég, þangað vil mig fer að syfja. Ég horfi líka á fugl- ana, þegar þeir fara að sofa. Þeir depla augun- um vingjarnlega til mín, og ég geri það .sarna á móti. En auk þess sé ég margt annað«. »Jæja, en farðu nú upp á herbergið þitt, þú ert búin. að vera hér nógu lengi«. Millí stökk fús niður úr gluggakistunni. Síðar. tók hún í hönd frænda síns, þegar hún var að fara, og sagði: »Það er aðeins eitt, sem mig lang- ar til að sýna þér, frændi, ég get séð langt út á þjóðveginn. Áður en myrkrið kemur, er ég' aö horfa eftir því, hvort, ég sjái ekki Tómas koma. Hann er týndi sonurinn þeirra Maxwellshjóna, eins og þú veizt. Ég mundi verða afskaplega glöð, ef ég fangi að sjá hann koma niðurlútan og í rifnum fatagörmum. líann. kemur sennilega einhvern dag- inn. Guð mun leiða hann heim aftur, og ef ég' verð fyrst til: að sjá hann, þá mun ég undir eins hlaupa og seg'ja Maxwell frá því. Og þá mun hann hlaupa á móti honum. Verður það ekki gaman«. Augu hennar ljómuðu af gleði og eftirvæntingu um leið og hún ieit á frænda sinn til að sjá, hvort hann samgleddist henni ekki. Hann, klapþ’áði á höfuð hennar og gekk frá henni, án þess að segja nokkurt orð. Nokkrum dögum seinna hitti hann. hana aftur á sama stað. Hann var að fara. í veizlu. Hún stóð í gluggann og veifaði með vasaklútnum. Augna- ráð hennar var svo alvarleg't og' kinnarnar rjóðar. »Hvað gerir þú?« spurði hann, þegar liann fór ríiður stigann. Millí sneri sér við, og sagði: »Ég veifaði tii Guðs í kveðjuskyni, frændi. Mér fannst ég ,sjá hann horfa niöur til mín frá himn- i,num. Herra Edvarð fór og sagði um leið við sjálf- an sig: - Ég held, að þetta barn, lifi í návist Guðs frá morgni til kvölds«. FIMMTI KAPITULI. Einn af hinum týndu. »Frændi, við fóstra ætlum að fara út aö verzla, á ég að kaupa eitthvað handa ])ér? Við förum á vagninum með Iíarry«. Millí iðaði af gleði, á meðan hún talaöi. Þetta var bjartur, en kaldur morgun. Herra Edvarð va.r einmitt búinn, aö sna'óa morgunverð og' var á leiö til herbergis píns með blaðabunka undir hendinni. Hann nam staða.r og horfði á litlu stúlkuna í loö- skinnskápunni, sem var mjög hrifin yfir að fá að fara til borgarinnar. Hugur hans hvarflaði aftur í tímann, þegar hann var lít-ill drengur og þótti me,st gaman að fa.ra til kaupstaðarins. »Já«, svaraði hann, á meðan hann leitaði að pen- ingum í vasanum, »þú mátt kaupa, þerripappír og' stálpenna handa mér í ritfangaverzluninni. Ég' skal skrifa, hvaða tegund ég vil fá, og' hér eru pen- ingar. Þú mátt eiga. það, sem afgangs verður«. Hann rétti henni tíukrónaseðil, sem hún tók á móti með ánæg'ju. »Ég hefi aldrei átt svo stóran pen- ing f.yrr. Nú er ég rík«. Þær komu ekki aftur frá borg'inni fyrr en um nónbilið. Edvarö lávarður mætti þeim úti í trjá-

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.