Afturelding - 01.07.1943, Blaðsíða 7

Afturelding - 01.07.1943, Blaðsíða 7
AFTURELDING 43 hættan og hjá levítanum, að verða þátttakendur í þjónustu, sem gerð er að vísu í nafni Guðs, en er afbökun af hinni réttu guðsdýrkun. Brotning brauösins. Á það var bent hér að framan, að í frum- kristninni liefði samfélag Guðs barna, á lxverj- um stað, verið eins og lieimili í þjóðfélaginu, og að skírnin liafi verið eins og sýnilegar dyr, sem liver einstaklingur varð að ganga gegnum, til að komast inn til fjölskyldunnar. Innan þess- ara dyra var brotning brauðsins, sem andleg fjöl- skyldumáltíð, um leið og hún var minningarmál- tíð um pínu og dauða Drottins Jesú Krists. Kvöld- máltíðin var upphaflega innsett af Kristi, að- eins með skírðum mönnum, þ. e. lærisveinunum. í vakningunni sem hófst á hvítasunnudag er ekk- ert talað um brotningu brauðsins fyrr en eftir það, að búið var að skíra þá, .sem veitt liöfðu Orðinu viðtöku. (Post, 2, 41—42). Hvar, sem minnst er á brotningu brauðsins í Nýjatestament- inu, er livergi gefin liin minnsta smuga fyrir þá hugsun, að aðrir hafi verið þar þátttakendur, en þeir sem skírðir voru. Eðli málsins leggst á sömu sveif. Brotning brauðsins er hlutdeild í minningu um dauða Drottins. Skilyrðið fyrir hlutdeild í táknunum er að hafa dáið sjálfum sér en lifa Kristi. Hin opinbera viðurkenning á þessu, var einmitt skírnin. Sá var talinn — og er tal- inn — neyta kvöldmáltíðar Drottins á óverðug- an hátt, sem leyndi einhverju í lijarta sínu, er Drottinn með dauða sínum, var búinn að leysa liann frá. Undir það fellur ekki aðeins gróf synd, en líka hverskonar tregða við Guðs fyrirskip- uðu ákvæði, sem leynzt getur innra með mann- inum. Þótt Hvítasunnumenn leyfi ekki trúuðu fólki, sem er óskírt, að vera við brotningu brauðsins hjá sér, er það ekki sama og dómur þeirra á trú- alífi hinna óskírðu. Langt frá því. Þeir eru að- eins að gæta síns eigin víngarðs, en ekki að skima eftir því, hvernig aðrir gæta sinna víngarða, til þess að dæma það (Ljóðal. 1, 6). Hvítasunnu- menn hafa ástundað það, að gera Orð Guðs að lögum sínmn. Fyrir þetta hafa þeir verið reiðu- búnir að taka á sig liverskonar erfiðleika, óvild og aðkast annarra. Þar eð þeir geta ekki JTundið eitt einasta dæmi þess í Nýja Testamentinu, sem leiðir hinn minnsta grun að öðru, en að endur- fæðing og skírn hafi ávallt gengið á undan þátt- töku í brotningu brauðsins, þá þykir þeim jafn sjálfsagt, að barn Guðsríkis breyti samkvæmt því sem íslenzkur þegn eftir lögum íslenzka rík- isins. Þó er þeim vel ljóst, að það er ekki fyrst og fremst undir forminu komið, hvort einn eða annar er verðugur. Kvöldmáltíðin er meira en* það, að brjóta brauðið og bergja af bikarnum. Hún er dýptirnar í ráðsályktun Guðs, en þó tun leið gárinn á yfirborði djúpsins. Nýendurfædd- ur og óskírður maður getur skynjað þýðingu hennar og haft rétt lijarta gagnvart Guði til þess að neyta hennar, á sama tíma, sem öldungurinn, skírður fyrir tugiun ára, skilur ekki dýptirnar í þeim heilögu táknum. Samt sem áður brýtur það ekki niður nauðsyn þess, að taka tillit til nið- urröðunar Guðs Orðs, heldur en óska einstakra manna. Svo er og það, að ein undantekning fæð- ir allt af af sér margar. Óskírt Guðs barn, sem veit að söfnuður gerir það aðeins af hollustu við Guðs Orð, að leyfa því ekki þátttöku, af því að það hefir ekki opinberað trú sína í skírninni, fyrtist livorki né hneykslast af því. Ef það gerir það, þá er það aðeins sönnun þess, að það hefir ekki rétt lijarta gagnvart Guði. Hinn aftur á móti, sem hefir rétt hjarta, en er liindraður af framangreindum ástæðiun, liann kemst aðeins lengra áleiðis með því, heldur en ef liann liefði fengið að vera með, athugasemdalaust. Það verð- ur á þann liátt, að sá sem hefir rétt hjarta, hann er dáinn sjálfum sér, er orðinn liljóður og kyrr fyrir augliti Guðs. Hann mun því hugleiða mál- ið með kyrrlátri yfirvegun frammi fyrir Drottni, en einmitt þannig fær Andi Guðs opna leið til að sannfæra hjarta hans um nauðsyn biblíulegr- ar skírnar. Fráfall safnaðanna hefir ávallt byrjað á því, að vegurinn hefir verið gerður breiðari en liann er í Guðs Orði. Menn hafa viljað setja dyrustafi sína hjá dyrustöfum Guðs, eins og Guð segir fyr- ir munn Esekíels spámanns (Esek. 43, 8). Það gera þeir með því, að setja sinn vilja jafnliátt Guðs vilja. Viðvíkjandi kvöldmáltíðinni ætti Guðs börnum að vera því eðlilegra að hafa ugg og ótta, sem það er deginum ljósara, hvað kirkj-

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.