Afturelding - 01.07.1943, Síða 8

Afturelding - 01.07.1943, Síða 8
44 AFTURELDING rn hefir verið seinheppin í því, að gera dyrnar inn að henni svo víðar, að allir geta þar kom- ið, án nokkurs tillits til þess, hvort menn eru endurfæddir, hvað þá meira. Það er, ef til vill, liumpart vegna síendurtekinnar misbeitingar á þessum lielgu lilutum, sem mörgum, er taka þetta mál alvarlega, finnst það sama og að fara út á gatnamótin með brotningh brauðsins, ef hinir frjálsu söfnuðir leyfðu óskírðum að vera þar með. Það skal þó tekið skýrt fram, að það er ekki vegna hinna hreinlífu, óskírðu Guðs barna, heldur vegna hinna mörgu kærulausu, sem á eftir kæmu og enginn gæti ráðið við. Aftur á móti virðist það ekki leiða neina hættu að söfnuðunum, þótt Guðs börnum, sem skírn hafa tekið, og standa annarsstaðar, sé leyfð þátt- taka í brotningu brauðsins innan hvítasunnusafn- aðanna. Ástæðan fyrir því, að bróðir eða systir hefir ekki sama ljós og við getur einungis verið sú, að þau liafa verið þar, sem öllu Guðs Orði hefir ekki verið haldið fram í kenningunni. Vant- andi upplýsing getur ekki útilokað neinn frá brotningu brauðsins, þegar hjartað er rétt gagn- vart Guði og viðkomandi hefir viðurkennt trú sína opinberlega með skírninni. Annað mál er það, þegar menn, sem annars eru skírðir, hafa mikinn mótanda á hvítasunnustarfinu, eða það eru menn, sem fara með ranga kenningu. (Róm. 16, 17; II. Jóh. 10—11). Það er auðvitað úti- lokað að þeir geti verið þátttakendur, enda er ótrúlegt að þeir sækist eftir því. Framh. LEIÐRÉTTING. í framhaldagrcin minni „Frá sumarfcrðalagi“, i síðasta blaði, segir, að Ásinundur Eiriksson hafi verið farkennari, þegar hann hóf Irúboðsstarf í sveit sinni. Einhver hafði 6agt mér þctta og byggði ég á því sein réttu. Nú hefir Ásmundur vak- ið athygli niína á því, að þetta sé ekki rétt, heldur liafi hann verið starfsmaður lijá Sainvinnufélagi Fljótamanna. Þykir mér lciðinlegt að þarna hafa blandast mál, en það stafar, ef til vill, af því að veturinn áður var Ásinundur við kennslu. Um leið og þetta leiðréttist bið ég afsökunar á missöguinni. I sömu grein, á hls. 33, í fyrra dálki, hefir orðið meinleg prentvilla. Þar stendur: „Guðlaugur Frímann“, en á að vera: Guðlaug Frímann. Krístín Scemunds. SKÖGARFÖRIN. Einn þáttur sumarmóteins, er Hvítasunnusöfnnð- irnir héldu á Akureyri dagana frá 19.—27. júní 8 1. var för okkar í Vaglaskóg. Laugardaginn hinn 26., er klukkuna vantaði 15 mínútur í eitt Bafnaðist fólk- ið, er ætlaði í skógarförina, gainan á Bílatorginu á Ak- ureyri. Veður var hið bezta, glaða sólskin og blíð- veður. Allir voru glaðir, og eftir stutta stund var búið að fylla 3 fólksbíla, 18—22 manna bíla, eða í kringum 60 manns. Létt var yfir öllum að vanda, en nú átti maður í vændum að ejá íslenzkan ekóg, eem margt af okkur höfðum aldrei séð, aðeins heyrt óm- inn af, í gegnum frásögn þeirra, er séð höfðu ekóg- arfegurðina. Af stað héldu bílarnir hægt og hátíðlega suður í gegnum bæinn, en er út úr honum kom, hertu þeir á ferðinni; því ekki veitti af að nota tímann vel, því að bílarnir voru leigðir fyrir ákveðið gjald yfir ákveðna tímalengd. Frá bílunum ómaði söngurinn og aftur söngur, lofsöngur um Konung konunganna, sem hefir veitt okkur svo dýrðlega blessun, og þenn- an dag gefið unaðslegt veður í þessa fyrirhuguðu för. Áfram héldum við yfir Eyjafjörðinn og út með firð- inum að austan, sem leið liggur og upp á Vaðlaheið- arbrún. Þar blaeti við sjónum okkar, eyðiflákar, heiða- lönd. Lítill gróður var kominn þar, enda mjög fátt af búpeningi byggðarmanna komið á sumarstöðvar háfjallafrelsis. Þar sem beygjur voru á veginum, var veifað til næsta bíls, og evo koll af kolli, var auð- séð að ósýnileg keðja tengdi saman þessi nútíma farartæki, eða öllu heldur þær manneálir, er þau fluttu. Loks blasti við sjónnm okkar Fnjóskadalur og Ljósavatnsskarð. Er að Fnjóská kom, valt hún fram í foráttu vorleysinganna, því af miklu var að taka, og flytja hinn brædda snjó ag færa liann sjávardís- inni eyfirzku. Á Fnjóská var brú, steinbogi, mikið mannvirki. Á bakka árinnar að austan stöðvuðust bíl- arnir. Vaglaskógur blasti við, í sinni tign og sumar- dýrð, þótt hann væri ekki búinn að ná fullu blóm- skrúði sumarfegurðar sinnar. Allir þustu út, úr bíl- unum og fararstjóri, Ásmundur Eiríksson, gekk með fylktu liði hvítasunnumanna og kvenna inn yfir vé- bönd skógarins. Voru viðtökur skógarins hinar há- tíðlegustu, þar allt ljómaði í geisladýrð miðsumars- sólar, er hellti ylgeislum sínum yfir þessa velboðnu gesti, og söngur skógarþrastarins ómaði hátt yfir höfð- um gestanna, sem fagnaðaróður yfir komu hinnar stærstu fylkingar hvítasunnuflokks, er nokkru sinni hafði stigið inn fyrir mcrkjalínu þessa fagra friðhelga staðar. Dreifðist flokkurinn nokkuð út um skóginn, því margt var að skoða og mikið er um dýrðir hér, en aðalflokkurinn hélt áfram langt inn í skógarþykkn- ið, eftir götuslóða, en loks var staðnæmst í skógar-

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.