Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.06.1956, Blaðsíða 1
Umbótafólk!
Kornið til starfa
cí kjördag.
ALÞYÐ UBLAÐ
Hafnfirðingar!
Vinnum samtaka að
swri Emils.
IHIAJFÍ^AJRt IF JJ AIRHD) J%M
X\. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 23. JÚNÍ 1956 13. TÖLUBLAÐ
Frjálshuga Hafnfirðingar sameinast um hagsmunamál
Hafnarfjarðar og umbðtastefnu aiþyðunnar, og fylkja
sér því einhuga um Emil Jonsson með storum sigri
Þegar gengið er til kosninga, er
kjósendum nauðsynlegt að virða ör-
lítið fyrir sér störf manns þess, Emils
Jónssonar, sem kjósendur í Hafnarfirði
gefst nú kostur á að velja sér, sem full-
trúa á Alþingi íslendinga.
Þáttur Emils í framfara- og menning-
arbaráttu Hafnfirðinga, og raunar
þjóðarinnar allrar, er svo stór, að hér
er ekki hægt að gera því nægileg skil.
Auk þess er Emil Jónsson líka svo þjóð-
kunnur maður og vel þekktur af Hafn-
firðingum, bæði persónulega og fyrir
störf sín, að þess ætti ekki að gerast
þörf.
Á síðustu 30 árum hefur Hafnar-
fjörður vaxið úr litlu og fátæku fiski-
og verkamannaþorpi, með óvissa og
stopula atvinnu, í bæ með um 6000 í-
búa, þar sem ríkir blómlegt og mikið
athafna- og menningarlíf og atvinna
og afkoma almennings er góð. Bezta
sönnun þessa er hinn mikli fólks-
straumur víðsvegar að af landinu til
bæjarins. Er fólksstraumur þessi svo
að slíks munu fá dæmi. Sýnir þetta
bezt að fólkið sækir þangað, sem höf-
uðáherzlan er lögð á að tryggja af-
afkomu fólksins á öruggan hátt.
Engum einum manni er þetta meira
að þakka en Emil Jónssyni, mannin-
um, sem lengst allra hefur verið þing-
maður bæjarins, bæjarfulltrúi, bæjarstjóri og bæjarverkfræð-
ingur um árabil.
Hin síðari ár hefur Emil Jónsson gegnt mjög þýðingarmiklu
starfi í þágu íslenzka ríkisins, hafnar- og vitamálastjórastarfinu
og sýnt í því dugnað, árvekni og framsýni.
Fáir eða engir núlifandi þingmanna munu njóta meira trausts
bæði meðal samstarfsmanna og andstæðinga á þingi en Emil
Jónsson.
Kemur þetta bezt í ljós ,þegar til verkfalla og annarra vand-
ræða kemur. í fjöldamörg undanfarin ár hefur Emil alltaf verið
kvaddur á vettvang, þegar allt var komið í eindaga og málin
virtust óleysanleg.
Allt til þessa hefur Emil Jónssyni
heppnast að leysa þessi vandamál og
það á þann veg, sem allir hafa geta
sætt sig við. Þó hefur Emil, í öllum þess-
um átökum, aldrei gleymt því, að hann
var fyrst og fremst fulltrúi launþeg-
anna, verkamanna og sjómanna, og
mundi bezt þá, sem erfiðasta áttu að-
stöðuna í þjóðfélaginu. Órækasta
sönnun þess eru atvinnuleysistrygg-
ingarnar, sem hann fékk samþykktar
í síðasta verkfalli.
Að nefna einstök verk eða framfar-
ir, sem Emil Jónsson hefur beitt sér fyr-
ir, bæjarbúum og raunar þjóðinni allri
til góðs, er ógerningur, svo mörg eru
þau og margþætt. En bæjarbúum til
minnis skal aðeins nefnd höfnin og
það mikla verk, sem nú er verið að
vinna að: Fiskiðjuver Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar.
Þegar fulltrúar annarra flokka í
bæjarstjórninni annað hvort gátu eða
vildu ekkert gera í því máli, svo að
það var komið í algera sjálfheldu,
heppnaðist Emil Jónssyni að losa svo
vel um hnútana, þrátt fyrir allar þær
snörur og laungryfjur, sem fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, hér í bæ og í rík-
isstjórn, hafa búið því máli, Fiskiðju-
versbyggingunni, að hafizt var handa
á síðastliðnu sumri og er þetta mikla
mannvirki nú komið svo langt, að vonir standa til, að hægt verði
að taka það í notkun á þessu ári.
Engum hér í bæ er eins ljós nauðsyn þess, að mannvirki þetta
komizt sem fyrst í fullt starf, og Emil Jónssyni. Það mun skapa at-
vinnuvegum bæjarbúa trausta undirstöðu og bæjarbúum og
bæjarfélaginu í heild milljónir í auknum tekjum.
Hafnfirðingar eru því staðráðnir í því að kjósa Emil Jónsson,
sem fulltrúa sinn á þing, sunnudaginn 24. þ. m., því að með sigri
Emils er tryggður sigur í framfaramálum Hafnfirðinga.
Á sunnudaginn vinna Hafnfirðingar samstilltir að því, að Em-
il Jónsson, hinn ágæti og víðsýni framfaramaður, verði kosinn
fulltrúi þeirra á Alþingi íslendinga fyrir næsta kjörtímabil.
Sigur umbótaflokkanna tryggir samhenta umbótastjórn
Kositiitg Entíls cr sigur bnfitfirxkrur nljtýdu