Alþýðublað Hafnarfjarðar - 27.10.1962, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
\ Útgefandi: (
) ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI )
) Ritstjóri og ábyrgðarmaður: )
/ HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON >
( Afgreiðsla t Alþýðuhúsinu, sími 50499 }
/ PRENTSMIDJA HAFNARFJARÐAR H.F. /
Dæmi,
§em talar isíiiii máli
Árið 1955 var háð ein af hörðustu kaupdeilum hér
á landi. Verkfall stóð þá í rúmar 6 vikur hjá þeim, sem
lengst voru í verkfalli, og varð æ víðtækara með hverj-
um degi sem leið. Allir sáu, að í hreint óefni var komið.
Skipaðir höfðu verið þrír menn í sáttanefnd, en hnút-
urinn virtist vera torleystur, ef ekki óleysanlegur. Það
var því ekki lítill vandi lagður á herðar þessara þriggja
manna, sem skipaðir voru í sáttanefndina. Einn þess-
ara manna var Emil Jónsson. Og það var ekki í fyrsta
skipti, sem Emil Jónsson var kallaður, þegar sérstakan
vanda bar að höndum íslenzku þjóðarinnar, og ekki
síðasta skiptið heldur. Og Emil reyndist vandanum vax-
inn. Hann kom fram með hugmyndina að atvinnuleys-
istryggingunum sem hugsanlega lausn í þessari kjara-
deilu. Á hana gátu báðir aðilar fallizt, og átti hún stærsta
þáttinn í lausninni á þessari langvinnu og hörðu kjara-
deilu.
Nú eru liðin 7 ár frá þessum atburðum, og hvert ár
hefur staðfest, hve vel og viturlega var ráðið, þegar
atvinnuleysistryggingar voru gerðar að veruleika. Á
þessu tímabili hefur að vísu aldrei komið til atvinnu-
leysis. En um sl. áramót voru sjóðir atvinnuleysistrygg-
inganna orðnir yfir 300 milljónir króna. Emil Jónsson
viðhafði þau orð um atvinnuleysistryggingasjóðinn í upp-
hafi, að heitasta ósk sín væri sú, að úr honum þyrfti ekki
að greiða bætur til atvinnulausra manna, heldur kæmi
hann í veg fyrir atvinnuleysi með því að efla uppbygg-
ingu atvinnuveganna. Og það er einmitt það, sem hefur
gerzt. Mikill hluti þessara 300 milljóna hefur verið lán-
aður til ýmissa þýðingarmikilla framkvæmda fyrir þjóð-
arheildina. Stór hluti hefur verið lánaður til sjávarút-
vegsins til uppbyggingar frystihúsa og fiskvinnslustöðva.
Einn hlutinn hefur verið lánaður til hafnargerða víðs
vegar á landinu. Einn hlutinn hefur verið lánaður til
uppbyggingar og eflingar iðnaðarins. Og einn hlutinn
hefur verið lánaður beint og óbeint til lánakerfis Hús-
næðismálastjórnar. Nú á þessu ári munu verða lánaðar
rúmar 20 milljónir króna til Húsnæðismálastjórnar og
munu þess vegna ýmsir húsbyggjendur hafa fengið eða
fá úrlausn bráðlega, sem þeir hefðu ekki getað fengið,
ef atvinnuleysistryggingasjóðurinn hefði ekki verið til.
Þannig hafa atvinnuleysistryggingarnar greitt götu hús-
byggjenda, stuðlað að uppbyggingu sjávarútvegsins, eflt
iðnaðinn, flýtt fyrir hafnarbótum, stuðlað að aukinni
atvinnu til sjós og lands, orðið þjóðinni til hamingju
og heilla. Þetta er einungis eitt dæmi, sem talar sínu
máli. Og þannig eru verk Emils Jónssonar. Þess vegna
hyllum við Emil Jónsson í dag, þökkum honum unnin
störf til*hagsbóta fyrir land og lýð, óskum honum og
fjölskyldu hans gæfu og gengis og væntum þess, að
Alþýðuflokkurinn og þjóðin öll fái að njóta starfskrafta
hans um langa framtíð.
Bílskúrihnrðarjárn
nýkomin
Skipasmíðastöðin Dröín h.f.
il Jónison sextugur
til lestrar. Hann hefur fijlgzt vel með í verk-
fræðilegum efnum. Hann hefur lesið mjög mik-
ið um þjóðfélagsmál hér á landi og erlendis,
bæði um fræðikenningar og framkvæmdir.
Hann er einnig vel að sér í íslenzkum bók-
menntum og íslenzkri sögu. Þegar svo bætist
við hin mikla retjrísla, sem hann hefur aflað )
sér með störfum sínum, mikil umgengnislipurð
og lifandi greind úsamt sterkum persónuleika,
lætur það að líkum, að ekki getur skemmtilegri
mann í viðræðum en Emil Jónsson, Hefur hann
og eignazt marga góða kunningja og persónu-
lega vini víða um land, en hann er hverjum
manni trygghjndari, þar sem liann tekur því,
hvort sem er við menn eða málefni.
Emil Jórisson kvæntist 7. október 1925 Guð-
finnu Sigurðardóttur frá Kolsholti í Flóa. Hún
er mæt kona og mtjndarleg lmsmóðir, sem jafn-
an hefur látið sér mjög umhugað um heimili
þeirra, eirís og þeir vita bezt, sem þar eru
kunnugir. Þau hafa eignazt sex börn, sem öll
eru uppkotnin, fjögur búsett í Hafnarfirði, eitt
í Ret/kjavík og eitt erlendis. Eru þau öll nýtir
borgarar í sínu bæjarfélagi.
Hér hefur verið stiklað mjög á stóru um störf
Emils Jónssonar og fám orðum einum farið
um hann sjálfan persónulega. Nægir jbað þeim
til upprifjunar, sem 'sjálfir hafa starfað með
Emil eða kynnzt honum og störfum hans á
annan hátt. Þess er jafnframt vænzt, að liinum,
'sem ókunnugri eru, megi verða það Ijóst af
lestri þessarar greinar, að það er ekkert undr-
unarefni, að í dag hugsar mikill fjöldi manna
til Emils Jónssonar með hlýju, þakklæti og virð-
ingu, ekki einungis í Hafnarfirði, heldur og
hvarvetna á landinu, og bera einnig fram þær
árnaðaróskir honum til handa, en það eru jafn-
framt árnaðaróskir til þeirra sjálfra og þjóðar-
innar í lieild: að starfskraftar Emils Jónssonar
megi endast sem bezt og lengst.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
ARÐIIR 50% VIB ENDIIRHÝJIIN
■yyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy^yy^ 7//////////////7>m iiúit tfýf.WJmM yyyyyítfZyyyyfyyyé^yyyyyy^^yyyyyyyy. y///////////////A w/f////////////////y Wú'Wk^^tiiiifuuímíi n
BRUNATRYGGING TRYGGING GEGN ÁBYRGDARTRYGGING SLYSATRYGGING TRYGGING GEGN PJÓF-
JNNANSTOKKSMUNA VATNSTJÓNI HÚSMÓÐUR NADI OG INNBROTI
HEIMILISTRYGGINGAR
•jjj|| BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Nýir skilmálar - Óbreytt iðgjöld
Nkrifsfofan í Ilafnarliröi
Ntrandgöta — Sínii 51103
(Framhald af bls. 1)
ræðumaður. Það hefur verið á orði haft, hve
skýrt og greinilega hann liefur stundum gert
grein ftjrir ísl. ástæðum og viðhorfum á fund-
um, sem hann hefur setið hér eða erlendis með
margra þjóða mönnum, og mætti þar til nefna
verkfræðingaþing og norræna þingmannafundi.
Það veldur, að skilningur hans er óvenjulega
skarpur og hugsunarferillinn rökréttur, auk þess
sem hann ræðir aldrei mál, nema hann hafi áð-
ur aflað sér á þeim staðgóðrar þekkingar. Hefur
sá, er þessar línur ritar, engum manni kynnzt,
sem hefur verið jafnfljótur og Emil Jónsson að
átta sig til hlítar á viðfangsefnum, sem fyrir
hann hafa verið lögð, og draga álijktanir af
þeim.
Það orð hefur komizt á Emil Jónsson, að hann
sé laginn og lipur samningamaður, þegar hann
vill það við hafa. Hann hefur reynzt mjög
ýtinn fyrir sinn málstað við samningaborðið,
en þó skilningsgóður á sjónarmið annarra, og
fjarri er það hugsunarhætti lians að láta smá-
muni standa í vegi ftjrir sktjnsamlegum heildar-
niðurstöðum. Einnig hefur hann stundum leijst
rammhertan deiluhnút með einföldu snjallræði.
Mun mörgum vera ríkt í minni verkfallið mikla
1955, er tillaga lians um stofnun atvinnuleysis-
tn/ggingasjóðs varð til þess að greiða úr miklu
þjóðfélagslegu vandamáli, en sjóðurinn er nú
orðinn um 300 milljón krónur að stærð og er
ávaxtaður í lánum til hafnargerða og annarra
framkvæmda til atvinnutryggingar, og einmitt
þessa dagana er Emil Jónsson að ganga frá
stóru láni úr þessum sjóði til þess að efla og
auðvelda byggingu verkamannabústaða.
Emil Jónsson reyndist afkastamikill við nám
á yngri árum, og hann hefur verið afkastamikill
starfsmaður alla tíð. Fer þar saman eljusemi,
hvass skilningur og liagnýt vinnubrögð. Er það
undrunarefni, hve miklu hann liefur stundum
komið í verk. Þó hefur hann ætíð gefið sér tíma