Alþýðublað Hafnarfjarðar - 27.10.1962, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
Bókasafnið 40 ára
(Framliald af bls. 4)
skólinn þá fluttur í nýja liúsið
við Lækinn. Safnið var í gamla
barnaskólanum til ársins 1937.
Arið eftir fluttist það í rúmgott
húsnæði á efri hæð austurálmu
nýja Flensborgarskólans á
Hamrinum og opnaði þar 8. okt.
um haustið. I þessu húsnæði var
safnið um tuttugu ára skeið, eða
til ársins 1957.
A árunum 1956—58 var reist
nýtt bókasafnshús við Mjósund,
og á hálfrar aldar afmæli Hafn
arfjarðarkaupstaðar, 1. júm
1958, tók safnið til starfa í eigin
húsakynnum.
Meðan bókasafnið var til húsa
i gamla barnaskólanum, var það
aðeins opið til útlána. Fyrst var
það opið einu sinni í viku, síð-
ar tvisvar, og eftir 1928 þrisvar
í viku, 2 tíma í senn. En þegar
það fluttist í Flensborg var allri
starfsemi þess gjörbreytt, enda
húsrými nóg. Var það nú opið
að vetrinum allan síðari hluta
dags á virkum dögum og einnig
þrjú kvöld í viku, bæði til útlána
og eins lestrarsalur. Safnið var
lokað yfir sumarmánuðina. Þeg-
ar Flensborgarskólinn þurfti
oieð árunum meira húsnæði,
dróst starfsemi safnsins aftur
saman.
Safnið hafði lesstofu fyrir
börn í barnaskólanum í noklcur
ar eftir 1950. Bækur liafa oft
verið lánaðar til skipa. Útlána-
deild er nú starfrækt á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
bæjar. og
héraðsbókasafn
Ný lög um almenningsbóka-
söfn voru samþykkt á Alþingi
árið 1955. Reglugerð var sett
arið eftir. Samkvæmt lögum og
reglugerð skal bókasafnið í
Hafnarfirði heita Bæjar- og hér-
aðsbókasafnið í Hafnarfirði, og
skulu 2 hreppar í Gullbringu-
sýslu, Garðahreppur og Bessa-
staðahreppur,, vera aðilar að
safninu. Samkvæmt þessum lög-
Um hefur bókafulltrúi ríkisins
rimsjón með öllum bókasöfnum
landsins. Hefur hann frá upp-
hafi verið Guðmundur Gíslason
»c$e»c«c*cæíe*c»c»c<c«e»c«c«ctc«e»c«c*e»c«c*cíe*c*e«e*c«c<c»c«eæíc«c»c«e«e»e^cíe«c»c«c*cíc<c<e«e«e*c*c*c*e»c*c«c*e»c*c«e»e*c*c«e»c«c$c*cíe*c«c«i
Hagalín. Samvinna við hann
hefur verið með ágætum. I
bókasafnsstjórn skulu vera 5
menn, 4 kosnir af bæjarstjórn,
en 1 tilnefndur af sýslunefnd.
Bókasafnsstjórn var kosin á
fundi bæjarstjórnar vorið 1956,
og tók hún við af bókasafns-
nefnd.
VÖXTUR OG
VIÐGANGUR
Bókasafnið hefur verið í ör-
um vexti frá upphafi til þessa
dags. Mest hefur það þó vaxið
síðustu árin. Margt merkra bóka
er til í safninu, og eru margar
þeirra að sjálfsögðu ekki lán-
aðar út. Sérstakt geymslulier-
bergi er fullt af bókum, sem
teknar hafa verið frá.
Veglegar gjafir hafa safninu
borizt á síðustu árum. Vinabær
Hafnarfjarðar í Danmörku,
Frederiksberg, gaf safninu fyrir
nokkrum árum hátt á annað
hundrað bindi í prýðilegu
bindi. Er þetta merkt safn
danskra bókmennta. Vinabær
Hafnarfjarðar í Svíþjóð, Upp-
sala, hefur nýlega sent safninu
um 100 bindi, hina ágætustu
gjöf-
Hið merkasta í sögu safnsins
hin síðari ár er viðtaka gjafar
þeirra hjóna Guðlaugar Péturs-
dóttur og Friðriks Bjarnasonar
tónskálds. Árið 1960 arfleiddu
þau hjón Hafnarfjarðarbæ að
miklu af eignum sínum, og er í
arfleiðsluskránni mælt svo fyrir,
að bækur þeirra skuli geymdar
í bókasafninu. Þetta eru um
2000 bindi, mest bækur um tón-
list, nótur og músikblöð. Nokkr-
ir góðir munir fylgdu bókunum.
Er þetta hið merkasta safn, sumt
ófáanlegt annars staðar, og í
rauninni ómetanlegt. Þetta skal
samkvæmt gjafabréfi verða
grundvöllur að músikdeild inn-
an safnsins, en áður hafði kom-
ið fram hugmynd um slíka sér-
deild. Bókum þeirra lijóna,
myndum og munum, hefur nú
verið komið fyrir í námsstofu
safnsins, þar til betra húsnæði
verður fyrir hendi.
Hafnfirðingar!
Munum framvegis hafa til sölu
einangfrnnarplast
í öllum þykktum og
stcinnll
í pokum og plötum.
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Nýkomið
Tréte*, Darðtex og
Börpaplötar
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Erum að fá:
ÞAKJÁRN
og alls konar þilplötur
svo sem
ALPEX-hörpupIötur
TRÉTEX og
MASONIT
DVERGlJlt H.F.
•c*c*c»cae»e»cíe*c*cac*c»c#cae»e»cuc»e*e<e<c»c»c»cte»cue«e»c»e*e»c*c»cue«»c»c*e*c»c«e*e»c»e»c*c»c$cue<c»cuc*e»cte»c«c»e<e»eíeíc<cíc»e*e<e»cacue»e»
Merkilegt brautryðj-
endastarf í Tóulistar-
skóla Hafnarfjarðar
(Framhald af bls. 4)
tónlistarsmekkur og skilningur
örvast. Alþýðublað Hafnarfjarð-
ar óskar skólanum til hamingju
með þessa nýbreytni og væntir
þess, að margir ungir Hafn-
firðingar eigi eftir að njóta góðs
af henni.
Áður en Tónlistarskóli Hafn-
arfjarðar hóf starfsemi sína, lét
hann gera mjög smekklegan
bækling urn fyrirhugaða starf-
semi sína og bera út í öll hús
í bænum. Eru bæjarbúar skól-
anum þakklátir fyrir þá þjón-
ustu. Skólagjöldum er mjög í
hóf stillt, enda nýtur skólinn
nokkurs opinbers styrkjar, og er
líklegt að ríkið auki styrk sinn
til skólans verulega. Til þess
að auka möguleika barnmargra
heimila að gefa börnum sínum
kost á tónlistarnámi, hefur skól-
inn veit afslátt á skólagjöldum,
ef tveir nemendur eða fleiri frá
sama heimili stunda nám í skól-
anum. Þannig fá t. d. tveir nem-
endur frá sama heimili 20% af-
slátt.
Ráðgert er að formleg og há-
tíðleg skólasetning Tónlistar
skóla Hafnarfjarðar fari fram í
byrjun næsta mánaðar. Munu
þá m. a. kennarar skólans leika
ýmis tónverk, bæði einleik og
samleik.
Þá hefur einnig verið ráðgert,
að skólinn gangist fyrir nokkr
um almennum tónleikum í vet-
ur, þar sem kennarar skólans
ásamt öðrum tónlistarmönnum
kynna alþýðlega tónlist.
Alþýðnílokkisfélag:
HafnarfJ&rðar
heldur aðalfund þriðjudaginn 30. þ. m. kl. 8,30
í Alþýðuhúsinu.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosnir fulltrúar á flokksþing.
3. Onnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Höfum tekið að oss söluumboð fyrir Hafnarfjörð á
Nnper- Nilicone, Tatnsverjn
Eykur vatnsþol steinsteypu og tiés, undir málningu
og yfir húðaða veggi.
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Ávallt fyrirliggjandi fúavarnarefnin
Woodliff ogr Rentokil
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Harðplast
á borð og veggi í ýmsum litum.
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Sé ■íialiiiiiisriii framleidd
þá fæst hún í
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.