Alþýðublað Hafnarfjarðar - 05.05.1966, Page 5
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
5
■?
Haukur Helgason, skólastjóri:
Um skóla- og uppeldismál
Alþýðublað Hafnarfjarðar fór þess á leit við Hauk
Helgason, skólastjóra, að hann segði frá því í stuttu
máli, hvað hefði verið að gerast undanfarið í skóla-
málum bæjarins og hvað hann teldi vera framund-
an. Alþýðuflokkurinn hefur alltaf látið sig skólamál-
in miklu skipta og nægir að minna á það, að Hafn-
arfjörður undir forystu Alþýðuflokksins var fyrsti
bærinn á landinu til að færa skólaaldurinn niður í
7 ára aldur.
Peningar eru afl þeirra hluta,
sem gera skal,, heyrist oft sagt.
Þetta eru samt orð, sem hafa
verið dregin í efa, og í dag segja
hagfræðingar okkur, að það,
sem ráði einna mestu um hag-
vöxt þjóðfélagsins sé menntun,
kunnátta og leikni einstaklings-
ins til að vinna þau verk, sem
honum eru falin.
Þannig er skólinn ekki aðeins
tæki til að gera einstaklinginn
hæfari til að njóta lífsins og
heyja sína lífsbaráttu, heldur
líka til að gera hagsæld þjóðar-
innar miklu meiri. Til þess að
skólarnir fái gegnt þessu hlut-
verki þarf aðstaða þeirra að
vera eins og bezt verður á kosið.
SKOLABYGGINGAR.
| Að undanförnu hefur verið
. unnið að byggingu tveggja skóla
hér í bænum. Byrjað hefur ver-
ið á byggingu nýs iðnskóla og
lokið við byggingu Öldutúns-
skóla. Einnig hefur verið unnið
að teikninum fyrir aukið hús-
næði fyrir Flensborgarskóla.
Öldutúnsskóli tók til starfa
haustið 1961. Hafði hann þá 4
alm. kennslustofur. Varð þetta
húsnæði fljótt of lítið. Á miðju
sumri 1963 var hafizt handa um
smíði viðbótar húsnæðis fyrir
skólann. Haustið 1964 var hluti
af viðbótinni tekinn í notkun,
og núna sl. haust var svo til allt
húsnæðið tekið í notkun. Við
Breytt viðhorf, ní/jar aSferðir. Hér eru nemendur i 'einum bekk í barnaskóla. Þau eru að Ijúka við að merkja
inn á upphleypt landakort, sem er hluti af hópverkefni, sem þau fengu að leysa.
Skólarnir liafa eignast mörg tæki er gera námið skemmtilegra.
þetta jókst húsakostur skólans
um 8 almennar kennslustofur og
3 sérkennslustofur auk ýmissa
sérherbergja, svo sem fyrir yfir-
kennara, lækni o. fl.
Ekki er liægt að segja annað
en framkvæmdir þessar hafi
gengið vel og ber það að þakka
góðum undirbúningi af hálfu
bæjarins og dugnaði byggingar-
meistara.
Iðnskólinn. Bygging nýja iðn-
skólans hér markar á vissan hátt
tímamót í iðnfræðslusögu lands-
ins. Hann er byggður með það
fyrir augum að geta veitt við-
töku nemendum af stærra svæði
en frá þessu bæjarfélagi og um
leið miðaður við að geta full-
nægt iðnfræðslulögunum nýju,
er Alþingi var að samþykkja.
Það mun verða til ómetan-
legra hagsbóta, að þessi skóli
rísi sem allra fyrst.
liðnum. Ríkið borgar 1/2 af
kostnaði við leiksvæði skólanna.
Með því að skipuleggja svæð-
in vel og vanda allan frágang
fást ágæt leiksvæði, sem koma
að fullum notum ekki síður á
þeim tíma, sem skólinn starfar
ekki. Stundum vill það verða svo
á leikvöllunum, sem ætlaðir eru
litlu börnunum, að þeim er ýtt
til hliðar af þeim stærri. Ef þau
stóru hefðu athafnasvæði á
skólaleikvöllunum einnig á sumr
in, fengju þau litlu miklu frek-
ar að hafa sína velli í friði.
LEIKVELLIR.
Á sl. sumri var leiksvæðið fyr-
ir framan Lækjarskólann lagt
olíumöl. Hefur það komið í ljós,
að í vetur hefur ræstingarkostn-
aður orðið tugþúsundum minni
fyrir bragðið. Þetta þýðir, að
lægri ræstingarkostnaður og
minna slit á dúkum borgar upp
á skömmum tíma kostnaðinn við
olíumölina.
Leiksvæðið kringum Öldu-
túnsskólann hefur verið teikn-
að og skipulagt, og standa vonir
til þess, að það verði unnið í
þrem áföngum þannig, að verk-
inu verði lokið að þremur árum
ÆSKULÝÐSMÁL.
Ekki er hægt að líta fram hjá
því að í vaxandi þéttbýli eiga
unglingar verr með að finna holl
viðfangsefni í frístundum sínum.
Þótt mörg félög vinni ágætt
starf í þágu æskunnar verður
það opinbera að vinna að þess-
um málum líka. Ef hægt er að fá
góðan mann til að helga sig
þessum málum eingöngu, er
áreiðanlega orðið tímabært að
ráða æskulýðsfulltrúa á vegum
bæjarins, sem þá um leið yrði
barnaverndarfulltrúi. Með sam-
eiginlegu átaki æskulýðsfélaga,
(Framhald á bls. 3)
- Starfs- og stefnuskró Alþýðuflokksins Framhald af blaðsíðu 1
Félagsmál:
% Hrundið verði í íramkvæmd uppbyggingu Sólvangssvæðisins
samkvæmt núverandi skipulagningu þess:
1. bygging dvalarheimilis fyrir aldrað fólk
2. heilsuverndarstöð
3. bygging íbúða fyrir aldrað fólk.
Kannaðir verði möguleikar á samvinnu við forráðamenn St.
Jósefsspítala um æskilega stækkun hans og framtíðarrekstur.
Komið verði á annarri lyfjaverzlun í bænum og stuðlað verði
þannig að samkeppni um bætta þjónustu, þar á meðal nætur-
vörzlu. Reynt verði að fá hingað fleiri unga og sérfróða lækna
til starfa.
Menntamál:
# Byggingarframkvæmdum við Flensborgarskólann og iðnskól-
ann verði hraðað. Jafnframt verði samin áætlun um byggingu
skólahúsnæðis í Hafnarfirði fyrir næstu 8—10 ár og verði þar
m.a. gert ráð fyrir að menntaskóli hafi þá tekið til starfa. Kapp-
kostað verði, að framkvæmdum miði það vel, að skólarnir
þurfi ekki að vera margsettir. Þá verði og skólabíll starfrækt-
ur í bænum hið fyrsta. Aðstaða menningar og lista í þágu
bæjarbúa verði aukin og efld.
Strœtisvagnaferðir:
0 Strætisvagnaþjónusta við bæjarbúa verði bætt og aukin.