Geislar af lifandi ljósi - 01.02.1911, Page 2

Geislar af lifandi ljósi - 01.02.1911, Page 2
2 Hvað Jesús kendi nm sinn himneska föður. Jesús Kristur var hinn stærsti trúarbragða læriraeistari meðaí mannanna og hann var Guð, opinberaður í holdinu. Hann sýndi að Guð í sannleikans virkileika, er vor andans faðir, því hann sagði, að hann var í byrjun hjá guði, að hann útgekk frá honum og færi til hans aftur, að hann væri mannkynsins bróðir og að vér erum skap- aðir eftir Guðs mynd og tilheyrum hinni himnesku famelíu. Pettað sannar, er hann segir: »Faðir vor, þú sem ert á himnum«. Þettað af- hjúpar allar hinar fölsku, óeðlilegu kenningar um guðdóminn, sem hafa gert hann mönnum öldungis óskiljanlegan, (jafnvel óttalegan). Jesús kennir, að hans og vors faðir sé ein og sama persóna, að mennirnir séu skapaðir eftir hans mynd, eins og hann sjálfur. Hann kendi sömuleiðis að hann væri sendur at Guði, til þess að frelsa menn- ina og leiða þá aftur til Guðs, og að enginn gæti komist til Guðs án hans. Sönn trú, Kristin trú, er þess vegna trúin á soninn Jesús Krist og trúin á Guð hinn eilífa föður. Hann kendi ennfremur um tilveru hins guðdómlega anda, sem útgengur frá Guði til að upplýsa mennina. Pað er sá heilagi andi, sem opinberar oss hans vilja og sem hinir heilögu menn á ýmsum tímum hafa verið innblásnir af til þess að opinbera hans orð. I'rjár persónur í gnðdómimim. Pessar þrjár, faðir, sonur og heilagur andi, er hinn eiliíi guð- dómur. Pað er ekki ein persóna, eins og nú á tímum er kent af sumum hinum kristnu kirkjum, heldur hver sérstök persóna, í sameiningu samverkandi kraftur og stjórn. Jesús af Nazaret guðssonur var eins persónulega aðskilinn frá sínum föður sem aðrir menn, frá sínum jarð- nesku foreldrum. Hinn heilagi andi sem útgengur frá föðurnum og syninum, hefir sína persónulegu eiginlegleika. Pað er satt er Jesús sagði: »Ég og faðirinn erum eitt«, (Jóh. 10: 30). En hann sagði líka: »Faðirinn er stærri en ég«, (Jóh. 14: 28). Ritningarstaðir er sanna Gnðs persónniegleika. Að guðdómurinn er persónulegur, sannaðist greinilega með skirn- inni á Jesús. Við það tækifæri steig sonurinn upp úr ánni Jórdan og heilagur andi kom yfir hann í dúfu líki og raust föðursins tilkynti: »Pessi er sonur minn elskulegur, á hverjum ég hefi velþóknan«, (Matth. 3: 16, 17). Jesús sagði: »Ég útgekk frá föðurnum til jarðarinnar, ég fer frá henni aftur og til föðursins«. Og í bæninni sem skrifuð er hjá Jóhannesi útskýrir hann greinilega, hvað hann meinti, þá hann sagði: »Ég og faðirinn erum eitt«, (Jóh. 10: 30). Eftir að hafa beðið fyrir sinum lærisveinum, segir liann nefnilega: »En ég bið ekki ein- ungis fyrir þessum, heldur líka fyrir þeim, sem á mig trúa fyrir þeirra orð, svo að allir megi vera eitt, eins og þú faðir ert í mér og ég i þér, skulu allir vera eitt í oss, svo heimurinn trúi að þú hafir sent mig«, (Jóh 17: 20, 21). Um heilagan anda segir hann: »Eg segi yður i sannleika, það er nauðsynlegt að ég fari frá yður, því ef ég ekki fer kemur ekki talsmaðurinn til yðar, en ef ég fer skal ég senda hann til • *

x

Geislar af lifandi ljósi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Geislar af lifandi ljósi
https://timarit.is/publication/421

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.