Heimilisblaðið - 04.08.1894, Side 5
HEIMILISBLAÐIÐ.
61
»Jeg gerði það«, anzaði Ólafur litli; það skildist samt varla,
hval) hann saghi, fyrir ekka.
«Því gerðurðu það?<
Ólafur litli leit upp. Honum heyrðist faðir sinn ekki eins reið-
ur eins og hann 4tti von á. Það var satt. Honum rann til rifja
að sjá, hve aumingjalegur veslings Ólarur litli var útlits og rauna-
legur á svip, magur og illa til fara, þar sem hann sat og laut of-
an yíir flöskuhrotin.
»Jeg var að gœta að skóm«, sagði hann; »mig langaði svo til
að hafa nýja skó á fótunum á sunnudaginn; hin börnin öllhafa skó«.
•Hvernig datt þjer í hug, að þú mundir íinna skó niðri í flösk-
unni?« spurði faðir hans.
»Hún mamma sagði það« anzaði Ólafur litli; »jeg bað hana.um
skó, en hún sagði, að þeir væru farnir í svörtu flöskuna, og margt
annað væri lika farið í hana, treyjur og hattar og brauð og kjöt
og föt, og svo hjelt jeg, að jeg mundi íinna það þar allt saman, ef
jeg bryti hana, og svo var ekkert í henni«. Ólafur litli tók til að
gráta aptur enn beiskara en áður. Faðir hans settist á kassa inn-
an um ruslið á hlaðinu og sat þar hljóður og hugsi langa stund,
þangað til Ólafur litli leit upp hálfhikandi og mælti:
«Mjer þykir svo slæmt, að jeg braut flöskuna þína, pabbi; jeg
skal aldrei gjöra það framar«.
»Jeg trúi þjer til þess, Óli minn«, anzaði faðir hans, og strauk
hendinni um kollinn hans, úfinn og ógreiddan, gekk síðan á brott,
en Ólafur sat eptir steinhlessa á því, að faðir sinn skyldi ekki
hafa orðið bálvondur við sig. Tveim dögum síðar, laugardagskveld-
ið, fekk hann Ólaíi litla dálítinn böggul og sagöi, að hann skyldi
skoða, hvað í honum væri.
»Nýir skór! nýir skór!« hrópaði Ólafur litli upp yíir sig. »Hefirðu
fengið þjer nýja flösku pabbi? Voru skórnir í henni?«
»Nei, barnið mitt. Jeg kem aldrei með neina nýja flösku fram-
ar. Mamma þín hafði rjett fyrir sjer. Það fór allt í hana, flösku-
hitina; en það er ekki svo hægt að ná upp úr lienni aptur, og ætla
jeg því með guðs hjálp að varast að láta neitt lenda í henni hjeð-
an af«. (Juv. Templ.).
Mannfjöldi
í good-templarreglunni á íslandi 1. febrúar 1894.
ísafold................nr. 1 á Akureyri ... 20
Bára . ..................— 2 í Vestmannaeyjum 18
Vorblómið ...............— 3 á Akranesi ... 47