Good-Templar - 01.09.1900, Blaðsíða 5
109
Bálkur Stór-Ritará.
eoeg-Þob jÓseessoti-, s.-e.. —
„Kristiania, 10. Ágúst 1000.
„Agitaioren", danskt bindindisblað, skýrir nýlega. frá því,
að Wilhelmina Hollandsdrotning hafi gengið undir mei’ki bind-
indisins og taki nú ásamt vinkonu sinni, krónprinssessu Pau-
linu af Wúrtenberg, þátt í bindindisstarfseminni með miklum
áhuga.
Systir Gharlotte fírey iiélt hér fyrirlestur um útbreiðslu-
starf sítt í Miðevrópu á föstudaginn var. Fyrir hér um bil
10 árum þektist bindindi næsturn því ekki í Miðevrópu.
Mjög slæmt að útbreiða Regluna i þeim löndum; alls konar
tilraunir gerðar til að varna henni írmgöngu; en samt sem
áður hefir hún fengið framgang og hann ekki svo lítinn. Stór-
stúkan i Þýzkalandi nr. 2 hefir nú full 10,000 meðlimi og þar
af eru 23 læknar. Bráðlega verður stofnuð stórstúka í Sax-
landi. Sviss hefir nú yfir 70 stúkur með 3000. Nú á systir
Grey að byrja á Ítalíu. Siðbækur og lög eru þýdd á ítölsku.
Br. Johan Bergmann lektor við þjóðháskólann í Nörrköping í
Svíþjóð á að þýða siðbækurnar og lögin á nýgrísku, svo reglu-
boðar verði sendir til Grikkiands.
Af þessu, sem hér að framan er skráð, sést það, að bind-
indi er í framför hér í gamla heiminum. Gott fyrir bindind-
ismálið að krýnd drotniug liefir gefið sig við því. Það er aug-
lýsing og hún góð. Ið síðara um systur Grey ber vott um
dugnað og framtaksemi Good-Templarreglunnar. Það er áreið-
anlega víst að reglan á góða og mikla framtíð fyrir höndum í
Evrópu.
Þessir stóru fundir, sem haldnfr vóru hér í þessum mán-
uði, hafa áreiðanlega mikil og góð áhrif á bindindiss.tarfsemi
hér í Noregi og á Norðuriöndum. Þessir góðu og sannfærandi
fyrirlestrar sem haldnir voru af mörgum af betri vísindamönn-
um á Norðuriöndum, hafa áreiðanlega mikil og góð áhrif á
álitið á bindindismálinu hér. Tað eru margir aí iieidri mönn-
um, sem með sjálfum sér viðurkenna þess róttmæti, en viija
ekki stöðu sinnar vegna iáta af sínum gamla vana. Þossir
fundir hafa varpað nýju Ijósi yfir bindindismálið i mínum aug-
um og mikilvægi þess. Að sjá þær verkanir og áhrif sem