Good-Templar - 01.09.1900, Blaðsíða 7

Good-Templar - 01.09.1900, Blaðsíða 7
ín þeirra og bróðurlega heilla- ósk um framgang og farsæld mál. efnisins og leyfl. ég mér hér með að boði hans, að færa öllum Good-Templurum á íslandi þessa bróðurlegu kveðju ins mik- iisvirfca, ötula og sístarfandi HávirðulegaStór-Templars, br. Joseph Malins. Þegar ég minnist br. J. Á., sem einna mest af þeim sem ég þelcki ber velferð Good-Templar Eeglunnar í heild sinni fyr- ir brjósti og aldrei lætur neitt tækifæri ónotað til að gjöra sjálfan sig æ hæfari starfsmann í hennar þjónustu, þá get ég ekki bundist þess, að bera hann saman við suma aðra sem meira þykjast geta, og sem líklegri hafa sýnst til að gjöra gagn og afla Reglunni hér áiits. Og við þann samanburð kemst ég að raun um, að þnð er ekki mælskan eða ritsnildin, — jafn nauðsynlegt og það þó hvorutveggja er — sem ein- göngu nægir eða einhlítt er til að vekja eftirtekt og afla álits, heldur er ið sterkasta aílið viljinn ásamt grandvöru eftir- dæmi. I’að ber daglega við að félagar Reglunnar fara hér úr einu héraði i annað og oft nokkuð títt að þeir fara frá einu landi til annars þ. e. héðan til útlanda. Og aldrei er það eins áriðandi að menn séu það sem þeir segjast vera, eins og þeg- ar þeir korna á ókunna staði, þvi þar er þeim veitt meiri eft- irtekt en eha, að jafnaði. Og eins víst og það er, að enginn mótstöðumaður utan Reglunnar heflr gjört lienni eins mikið mein og linekt oins á- lifc.i félaga hennar eins og þeir menn hafa gjört, sem hafa tal- ið sig að vera félaga hennar, en verið henni ótrúir þ. e. neytt víns samt sem aður, eins víst er og það, að engin styður hana betur en sá sem sýnir trúnaí verkinu, þ. e. breytir sam- kvæmt því sem hann býður; heflr einlægan vilja, sýnir brenn- andi áhuga og sfcaðfestir það með breytni sinni og eftirdæmi, — og það gjörir br. .T. Á. Kappkostum kæru félagar, hver um sig, að gjöra það líka.

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.