Good-Templar - 01.06.1902, Qupperneq 5
65
1. febr. 1901 voru í Unglingareglunni 481 drengur, 445
stúlkur og 152 fullorðnir, alls 10Í8; en 1. febr. 1902 479
drengir, 464 stulkur og 170 fullorðnir, alls 1113. Fjölgað um
35 félag«. 1. febr. 1901 voru 18 stúkur starfandi, 4 hafa
lagst niður, en 3 st.ofnaðar, og voru því 17 unglingastúkur
starfandi 1. íebr. 1902. Frátt fyrir fækkun unglingastúknanna,
má þó segja, með tilliti til meðlimafjöldans, að Unglingareglan
standi á fastari fótum en 1. febr. 1901. —
Umsókn Muus-verzlunar í Reykjavík
um áfengissöluleyfi.
Frá tildrögum þess máls og tillögum bæjarstjórnarinnar
um það var stuttlega skýrt í síðasta tölublaði „Good-Templars“.
Siðan það tölubl. kom út, hafa þau tíðindi orðið, sem
ýmsum munu hafa komið nokkuð á óvart, að amtmaður (J.
Havsteen) vrskurðaði að veita verzlun Jiessari áfengissöluleyfið,
þrátt fyrir tillögur bæjarstjórnarinnar, og þrátt fyrir það, þótt
mikill meiri hluti atkvæðisbærra manna hér i bæ hefði tjáð
sig leyfl þessu mótfallinn.
Yér skulum eigi um það dæma, hvort þessar tiltekjur
amtmanns eru fyllilega í samræmi við gildandi lög eða eigi.
Að sjálfsögðu álítur hann þessa aðferð löglega, og má vel vera,
að ýmsir séu á sömu skoðun. En kunnugt er oss um það,
að margir draga það mjög í efa, og að minsta kosti sumir
þeirra manna, sem fjölluðu um vínverzlunarlögin á þingi 1899,
vilja skilja þau á annan hátt en hér hefir gert verið. Um það
atriði má sjálfsagt lengi þi átta fram og aftur, án þess að komast
að áreiðanlegri niðurstöðu, enda er það dómstólanna, að skera
úr þvi, hvað lög eru. Skulum vér þvi eigi að sinni fjölyrða
um það, en að eins til fróðleiks og athugunar setja hér það
ákvæði úr lögum um verzlun og veitingar áfengra drykkja á
íslandi frá 11. nóv. 1899, sem um er að ræða. Þar segir svo
í niðurlagi 2. gr.:
„Amtmaður úrskurðar, hvort veita skuli leyfisbréf að
fengnu áliti hreppsnefndar eða bæjarstjórnar. Á stöðum,
þar sem önnur verzlun með áfengi er fyrir, ber að veita