Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 8

Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 8
68 e8a máðurinn þinn, eða pabbi þinn kemur ekki í land framar. In hve margir sýna hluttekningu vandamönnum aumingja mannanna, sem gefa mestalt kaupið sitt, vit og sómatilflnn- : ingu fyrir áfonga drvkki? Það er ös á öllhm svínastíum bæjarins, því að margir sjómannanna eru þyrstir, og svo fara margir aðrir á kreik, sem þykir óskaráð að drekka í blóra við sjómennina, og halda að þá taki enginn eftir, þótt þeir sóu ölvaðir, meðal þessara siðastnefndu er Jón frá Seli. Jón hafði raunar drukkið talsvert síðan hann var rekinn úr Reglunni, en þó kastaði nú tólfunum, þegar skúturnar voru að koma að. Hann hafði verið dauðadrukkinn á hverju kvöldi í viku, svo að Anna átti æði erfitt. Hún hlakkaði til sunnudagsins, því að þá var þó flestum knæpunum lokað, þótt sumir héldu að þær verstu væru opnar, þrátt fyrir öll yflrvöld- in og lögregluna i bænum. Jón svaf þangað til klukkan 11 á sunnudagsmorguninn, váknaði með talsverðum timburmönnhm og samvizkubiti, og fór i kirkju með konu æinni, þótt þau væru þar ekki tíðir gestir. Anna fann að henni veitti ekki af huggun og hjálp, óg Jón fór fyrir konu sína. í’egar úti var, mundi Anna hvorki ræðutextann né efnis- skiftinguna, en hún mundi samt kafla úr ræðunni, sem hljóð- aði ..hér um bil á þessa leið: „Hver, sem syndina drýgir, er þræll syndarinnar. Það er óttalegur sannleiki fyrir synduga menn. Vér þurfurn ekki annað en að hugsa um . drykkjumanninn til að sjá þetta greinilega. En það eru íleiri syndaþrælar en þrælar Bakkusar. En ef þú ert hér inni, sem finnur til þess og flnnur sárt til þess að þú ert þræll fýsna þinna'og þráir að losast úr fjötr- um syndarinnar, þá gæt þess að enginn, hvorki þú sjálfur né aðrir menn, hvorki englar né illir andar, himin, jörð né helvíti geta brotið af þér hlekkina — enginn nema Jesús Kristur einn. Syndin getur launar tekið myndbreytingu og heiminum kann að sýnast að þú sért orðinn frjáls, en haflr þú ekki komið í einlægri iðrun og trú að barmi Krists, þá ert þú samt þræll syndarinnar. En drottinn býður þér náð og freisi — ó, að þú í dag vildir heyra hans raust. Ef nokkur drykkjumannskona er hér inni, sem grætur

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.