Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 9

Good-Templar - 01.06.1902, Blaðsíða 9
69 beisklega yflr synd mannsins síns, þá spyr eg þig: Heflr þfl nokkurn tíma grátið yflr synd sjálfrar þín? Far þfl fyrst ineð syndina þína til Golgata, krjflp við krossinn og lístu ekki á fætur, fyr en þfl finnur blóðdropana flr benjum frelsarans drjflpa á, þig. Þá getur þfl farið að biðja örugg fyiir manninum þínum. Drottinn er fær um og fús á að hjálpa öllum.þeim, ^em ákalla hans nafn einlæglega. Mundu eftir að skrifað stendur: Kröftug bæn hins réttláta megnar mikið". Skyidi þetta vera satt? hugsaði Anna um kvöidið, þeg- ar hfln var að bíða eftir manni sínum að gömlum vanda.. Hann hafði „skroppið flt’'seinni partinn, liklega til að vita, hvort það væri ekki lygi, að sumir brauðsalarnir hérna í Yík- inni létu svo mikið brennivin i „sunnudagabrauðin", að m«nn yrðu augafullir af að þefa af þeim. Anna hafði ekki skilið ræðuna fylhlega og var að óska að hfln gæti talað um hana við einhvern, en henui var vel kunn- ugt um að öllum hennar kunningjum var tamara að tala um annað en andleg efni. Hún var einnig að velta fyrir sér fleiru, sem henni var torskilið. i Hfln bjóst sem sé við að maðurinn sinn mundi fá áfengi hjá einhverjum „sunnudaga-kaupmanninum", og var því að hugsa um, hvað það væri undariegt að flestir teldu það synd og svívirðingu, ef nokkur „notaði sér greiðvikni“ pukurssalans og færi að kæra hann eítir vínkaupin, sem yrði svo til þess, að þótt það gengi staflaust um mestallan bæinn að nafn-, greindir menn seldu vín ólöglega, þá væri ómögulegt að sanna neitt þ. hendur þeirra, því að enginn hefði „brjóst í sér i.il að koma upp um greyin". En aftur væru tiltölulega fáiii, sem . teldu það synd og svivirðingu að nota sér ógæfu og ósjálfstæði ). annara og gera sér áfengisfýsn þeirra að féþflfu. ;■ Hfln var ýmist að hugsa um þetta eða ræðuna. ■ Börnin voru sofnuð fyrir löngu, og 1 að var rétt komið miðnætti, þeg-. ar hún heyrði loks umgang niðri og þrusk i stiganum. Hfln fór framfyrir með ijósið og sá þá, að ókunni maðurinn, sem hafði komið áður heim með mann hennar, var að hjálpa hon- um ölvuðum, blóðugum og illa til reika upp stigann. Jón hafði smogið inn um bakdyrnar á einni loyniknæp- unni og farið þaðan svo vel nestaður, að vitið og stiliingin

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.