Muninn

Árgangur

Muninn - 17.04.1931, Síða 2

Muninn - 17.04.1931, Síða 2
2 MUNINN engan vegin flúrmyndalistin, sem hefir áhrif á sköpun stílsins. Flúr- myndalistin er aðeins einn þeirra liða, sem stílkendin kemur greini- legast fram í. — Stíllinn er langtum umfangsmeiri, og er hans jafn vart í myndlist sem byggingalist, og útflúri sem öllum skrautgripum, og ekki hvað sízt í Iínumyndunum allra hluta. Hér vinst ekki tími til þess að ræða nánar einstakar stílgerðir enda yrði það alltof viðtækt, en nákvæm athugun á flúrlistinni er ein örugg- asta leiðin til skilnings á sögu stils- ins, því að í henni fær maður oft bezta fótfestu um upprunalegar myndanir. Sömuleiðis er auðveld- ara að fara þar út í smámunina, þar sem aftur mundi reynast öllu torveldara að fylgja blæbrigðum stílsins í t. d. myndlistinni. Að lokum vildi eg hreyfa við einu atriði, sem fróðlegt mun að kryfja til mergjar. Pegar rætt er um listir, kemur ekki ósjaldan fyrir að menn slíta samræðum með þessu kunna mál- tæki íHver hefir sinn srnekk*, og því ekki hægt að ræða málið nánar. Yfirlit yfir sögu stílsins virðist í fyrstu staðfesta þessa skoðun, því að þegar þess verður vart, að án afláts skiftir um smekk, komastmenn fljótt að raun um að eiginlega er ekkert það til sem með sanni má kalla »góðan« eða »vondan« smekk í þeim efnum. — Hinsvegar gæti þetta verið að nokkru leyti röng skoðun. — Saga stílsins sýnir oss í rauninni að hinn svokallaði »góði smekkurc kemur fram á margvíslegan hátt, en þó hefir hann altaf eina tiltekna lyndiseinkun, það er tilfinning sam- ræmis, heildarsvips og stíls. Par sem einhver sérstök stílkend ræður, eru allar myndanir sem lið- ur í einni neild. Par ríkir »góður smekkur.t Fátt er eins fagurt, sem t. d. það að sjá byggingu sem ber heildarsvip eins sérstaks stíls, en að samræma miðaldastil nútímabyggingu mundi vera smekkleysa. Stlll er samræmi, og góður smekk- ur er sama og stílkend. H. B. Um styrjaldir.* (Qeorge Santayana.) Hernaðarhvötin á sér djúpstæðar rætur. Orð, hugarburðir og konur verða mönnum að deiluefni, ef ekki vill betur til, — og menn berjast jafnvel, ef þeim geðj- ast ekki hverjum að öðrum. Mönn- um er ósegjanleg nautn að koll- varpa hlutum, einkum ef þeim er hreykt hátt. Sannur bardagamaður fyrirlítur af hjarta þá hildi, sem háð er af skynsemi og hugsun; jafnvel hinir óherskáustu menn myndu fyr leggja slíkri baráttu liðsinni sitt. Fögnuður og sigurgleði hermanns- ins er fólgin i vígfýsi hans og færi því, er honum gefst á að sýna göfuglyndi. Menn berjast ekki fyrir gróða sakir heldur bardagans vegna og sigursins. Sigurvegarinn nýtur eflaust góðs af sigrinum. Ef styrj- öld gæti ekki skapað lífsskilyrði, myndi stríðshvötin aldrei hafa fest rætur í nokkrum langlífum kynstofni. Nokkrir menn geta lifað á ránum, rétt eins og nokkur rándýr geta lif- að í heiminum, aðrir verða að afla sér brauðs með iðni og atorku, al- veg eins og býflugur, maurar og grasbítir, en sigurinn flytur ekki allt af heill og hamingju þeirri þjóð, sem á sigursælan her. Pótt stöku sinnum vilji svo vel til er það varla að telja. Ýmsir dást að lífsunaðsemdum frumþjóðanna. Vegsemendur styrj- alda boða, að sú þjóð glati mann- dómi sínum, er eigi færi annað veifið blóðfórnir í ófriði. Reynsfan brýtur hvarvetna í bága við þenna blygðunarlausa boðskap. Styrjaldir eyða auðæfum þjóða, steypa atvinnu- vegum þeírra í glötun, draga úr þroska, eyða samúð og skipa blind- um tilviljunum í valdasess i stað mannlegrar hugsunar. * Ritgerð þessi var birt fyrst 1905. Unga kynslóðin verður á styrjalda tímum fyrir andlegri kyrkingu og líkamlegri, sem jafnframt nær til næstu kynslóða. Mannskæðar styrj- aldir, erlendar og innlendar (civil), hafa valdið hinni mestu hnignun, sem mannkynið hefir beðið. Pær eyddu gríska aðlinum og rómverska; Nútímaþjóðir eru því runnar frá þrælum, en ekki köppum. Ekki ein- ungis líkamir þeirra bera þess vitni. Þegar lífið hefir leikið við þjóðir um stund og friður ríkt, brýtur orka (anergies) þeirra af sér öll bönd. Peir kraftar, sem þaer hafa safnað á friðartimum, gera þær víg- fúsar (aggressive). Pessir menn eru óbældir og þróttmiklir úr baráttunni við náttúruöflin. (Par halda venjulega hinir beztu velli, en í styrjöldum falla þeir jafnan). Peir ráðast á aðr- ar þjóðir og sigra vígbúna herja í einni svipan, gerast drottnendur um hríð, leggjast síðan í hóglífi og sogast burt í hringiðu gleymskunn- ar. En svo getur risið upp í öðru landi manndómsþjóð, sem skilur gildi sigursins, sakir þess að styrj- öld hefir ekki glapið henni sýn. Sama er að kalla styrjöld uppsprettu hugrekkis og dyggða, og að kalla saurlifnað uppsprettu ástarinnar. Hugrekki, sem ekkert skelfist, er dýrsleg dyggð, ómissandi í heimi fullum af mannhættum. Par er krafizt að menn gangi hiklaust út í dauðann, þegar svo býður við að horfa. Svo ugglaust hugrekki virð- ist því fremur fagurt en grimmilegt, en það er lægst og ósjálfráðast (instinctive) allra dyggða og hefir þess vegna hlotið mesta aðdáun og einlægasta. Sönn dyggð er hugrekki fólgið i staðfestu og óbilanlegu þolgæði i áhættum skynsamlega ráðnum; en svo er ekki þegar ævin- týraþrá (love óf danger) bakar mönn- um böl að óþörfu, þótt verið geti húngagnleg, þegarhættan verðurekki flúin. Ofiátungsháttur og ertni eru Iundareinkennj, sem fremur ætti að telja til lasta en dyggða. Svo er og um eðlishvöt áhættumannsins, sem

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.