Muninn

Árgangur

Muninn - 10.05.1944, Blaðsíða 2

Muninn - 10.05.1944, Blaðsíða 2
2 MUNINN \ Dimittendaþáttur. (Fluttur á kveðjukvöldi dimittenda 20. apríl 1944). í þann mund, er Sveinn á Bessa- stöðum réð yfir íslandi, var mikið sundurlyndi. Ríkastir höfðingsmenn, aðrir en Bessastaðabóndi, voru þeir Þórarinn Björnsson og dr. Trausti Einarsson. erli í fögrum draumum hinna frið- sælu nátta þinna. Bentu svartsýnis- mönnunum á, að enn er lífstakmark þeirra komið undan fönn og klaka og að enn getur lífið brosað við þeim töfrandi og fagurt. Bjóðum sumarið velkomið, sýnum að við kunnum að meta þann tíma, sem í hönd fer, og að það sé velkom- inn gestur. Sameinumst í að hjálpa sumrinu við endurbótastarf sitt. Hefjum huggunar- og hjúkrunarstarf vort. Verkefnin bíða alls staðar, og alls staðar er þörf fyrir græðandi lyf, huggandi orð og hlý handtök, því að víða getur fórnardýr þjáninga og sorga, hvarvetna berjast þreyttir og þjakaðir og „það er alltaf einhver að gráta“. Mín innilegasta ósk — á þessu ný- byrjaða sumri er sú, að á komandi hausti, þegar dagarnir taka að stytt- ast og næturnar að lengjast, þegar sólin fer að lækka á lofti, skuggunum fjölgar og gróður fellur, að þegar við komum úr sumarvíking vorri, gætum við talið sem flest tárin, sem við höf- um þerrað, sem flestar undirnar, er vér höfum grætt, sem flesta geislana, sem vér hefðum veitt inn í myrk hug- arfylgsni, og sem flestar lamaðar von- ir, sem vér höfðum lífgað og lyft til flugs. Með því sýnum við bezt, að vér höfum gengið í bandalag við sumarið, sem alltaf hefir verið — frá því að ég lék mér á hólnum heima, og er enn í dag — í mínum augum, hugtak alls hins bjarta og blíða, alls hins græð- andi og huggandi og alls hins endur- lífgandi í mannlegu lífi. Ef vér gerum það, sýnum vér, að sumarvinna vor hefir verið góð og muni bera tvöfald- an ávöxt meðal annarra og okkar sjálfra. CLEÐILEGT SUMAR! Sverrir Haraldsson. . Þórarinn réð máladeild Menntaskól- ans á Akureyri, en Trausti stærð- fræðideild. Löngum voru fáleikar með þeim, og glettust þeir hvor við annan, því að báðir voru f jölkunnug- ir. Þórarni veitti oftast betur, þá er göldrum var beitt, enda var hann lærður í Svartaskóla, en hnefar stærðfræðinga þóttu harðari. Dag nokkurn kemur Trausti að máli við Þórarin og segir honum og allri máladeild stríð á hendur í nafni stærðfræðideildar. — Þórarin setur hljóðan við þessi tíðindi, en vill þó eigi undan skorast. Er orrustan ákveðin að þremur dögum liðnum á Gleráreyrum. Síðan skilja þeir, og er fátt um kveðjur. Þórarinn hraðar sér, sem mest hann má, og kemur að máli við Runólf fóstra sinn og segir hon- um hvernig háttum sé komið. „111 tíð- indi eru þetta fóstri,“ segir Runólfur. „Er sá maður í liði þeirra, er ek hræð- umk meir en xii aðra“. „Hver er sá?“ segir Þórarinn. „Arnkell heitir hann og er Benediktsson. Hann er hinn mesti berserkur og eirir engu, og eng- in bíta hann vopn.“ „Sér þú nokkurt ráð við mannfýlu þeirri?“ segir Þór- arinn. „Eigi geri ek þat, en þó hygg ek, at þat muni sjá Gunnar Finnboga- son, því at hann leysir hvers manns vandræði.“ Síðan kalla þeir Gunnar á sinn fund, og Þórarinn spyr hann, hvort hann sjái ráð, sem að gagni megi koma. „Sé ek tvö,“ segir Gunn- ar. „Hver eru þau,“ segir Þórarinn. „Annat er þat, at ek skrifi svo kynd- uga grein í „Munin“, at stærðfræðing- ar verði allir vitfirrtir“. „Ult er þetta og ómannúðlegt, ok tröll hafi skrif þín,“ segir Þórarinn. „Hitt ráðið er,“ segir Gunnar, „at ek fari á fund Héð- ins frænda, en hann er fyrir liði 5. bekkjar. Mun ek biðja hann at lýsa yfir hlutleysi bekkjarins, en þat hafa nú allir aðrir bekkir gjört. Skal hann aftur styðja oss á laun. Hann skal láta stela Arnkatli og halda honum í böndum, meðan orrustan geisar.“ „Hvat skal þar í móti koma af okkar hálfu?“ segir Þórarinn. „Þú skalt heita þeim háum einkunnum í vor, því að ekki mun þeim af veita, er þeir skulu látnir þreyta próf í öllum greinum.“ „Ult er það,“ segir Þórar- inn, „en ekki mun ek þó undan skor- ast, er þú telur svo mikið við liggja.“ Gengur Gunnar síðan á fund Héðins, og semst þetta með þeim. Nóttina áður en bardaginn skyldi háður, bregður Sigfús Gunnlaugsson sér í konulíki, fer á fund Arnkels og lætur að honum blíðlega. Tælir hann Arnkel niður í jarðhús þat, er 5. bekkingum er kennt í, en þeir grípa hann þar og binda. Þar gætir Fjalar Austmaður hans. Aður en orrustan skuli hefjast, fylkja þeir Þórarinn og Trausti lið- um sínum. Þeir skipa í 3 fylkingar hvor. í broddi fylkingar stærðfræð- inga eru þeir Jón skákkóngur, Egg- ert hinn skautfimi og Árni Halldórs- son. Jón er vopnlaus, en hyggst að leggja fjendur sína á drottningar- bragði. Eggert hefir uxaleggi á fótum og skíðastaf í hönd. Hann er í skíða- brókum íþróttafélagsins og því hinn fáranlegasti ásýndum. Árni ber Þjóð- viljann í bak, en Verkamanninn í fyrir. Næstur honum kemur Sigurð- ur Jónsson. Hann er í heklu, gerðri úr saurblöðum Réttar. Merkismaður stærðfræðinga er Einar Bragi. — Fremstir málamanna eru þeir Magn- ús Torfi, Finnbogi rammi og Páll hinn draumspaki. Þeir eru allir gráir fyrir járnum. Finnbogi kyrjar í sí- fellu söngva hjálpræðishersins. Magn- ús unir því illa og vill hindra það. Fer þó svo, að Finnbogi verður að ráða, en Páll slær undir á gígju. Skömmu áður en blásið skuli til atlögu, mælir dr. Trausti við Ólaf Júlíusson: „Hvat hyggur þú, at muni dvelja Arnkel fóstra vorn?“ „Eigi veit ek gjörla, herra,“ segir Ólafur, „en annaðhvort er hann brott num- inn með göldrum eða konur hafa tælt hann.“ „Eigi hefi ek þat heyrt, at mér þætti verra,“ segir Trausti, „en þó munum vér berjast hraustlega.“ Geir Björnsson blæs til atlögu með horninu Feginslúðri. Þat horn hefir hann fengið frá feðrum sínum ok er hinn bezti gripur. Fylkingarnar renna saman, og eggja báðir lið sín. Þeir Trausti ok Þórarinn kasta vopnum og takast fangbrögðum. Vaða þeir jörð- ina upp að hnjám, og er sá atgangur bæði langur og harður, og má eigi á milli sjá, hvor sigra muni. Ingvar hinn digri hleypur fram í mót Bjarna Benediktssyni, fóstbróð- ur sínum, hefur upp „Morgunblaðið“ og beinir því að höfði honum. Bjami kastar þá vopnum að dæmi Kjartans Ólafssonar og segir: „Við þig berst ég eigi, fóstbróðir minn.“ Keyrir Ing- 4 4 ?

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.