Muninn

Árgangur

Muninn - 01.05.1945, Blaðsíða 2

Muninn - 01.05.1945, Blaðsíða 2
34 MUNINN Frá suðurförinni. Viðtal við inspector scholae. Eins og lesendum mun kunnugt, eru fimm af höfuðpaurum nemenda, ásamt Sigurði Guðmundssyni, skóla- meistara, komnir úr för sinni til höf- uðstaðarins. Oss þykir hlýða að minn- ast þess að nokkru, og höfum vér því verið á snöpum að ná tali af inspedtor scholae, sem mun að sjálfsögðu hafa borið hæst af nemöndum í för þessari a. m. k. líkamlega. Náðum við loks tali af honum eftir ítrekaðar tilraunir á Hótel K. E. A. (uppi), þar sem hann neytti kaffis og kakna. Vér fórum í fyrstu hjá oss framrni fyrir hinni „háu“ persónu og komurn oss ekki að því að vaða beinít að inspectornum með erindið, en byrjuin í þess stað að tala um veðrið. „Veðrið," segir inspectorinn og er hinn lítillátasti, en heldur þó embætt- isvirðuleik sínum, „virðist mér fara heldur versnandi, og verður ekki ann- að séð en hann sé að komast á norðan eða öllu heldur norð-vestan og e. t. v. með einhverja úrkomu." „Þá eruð þið mátulega komnir að sunnan," segjum vér, hróðugir yfir því, hversu sniðuglega vér höfum komist að aðalefninu. „Að vissu leyti er það satt,“ segir inspectorinn. „Hvað segið þér annars gott úr suð- urgöngunni?" „Af henni er allit gott að segja,“ og inspectorinn horfir dreymandi út í bláinn. „Ferðin hefir gengið vel?“ „Með ágætum," segir inspectorinn. „Flugveður var gott, og vorum við að- Grundvöllur allrar samvinnu er vinarhugur, og meðan málin eru rædd með vinarhug, eru líkurnar fyrir góðum árangri miklar. Þessi heimsókn Sunnanmanna er nýtt og stórt spor, sem miðar að því að glæða vinarhug þessara tveggja skóla. Ég vona, að í framtíðinni fari þess- ir skólar efltir heilræðum Hávamála, og fari oft að finna vin sinn, og ég vona, að vegur þes’sara vinakynna þurfi aldrei á ókomnum árum að vaxa hrísi og háu grasi fyrir þá sök, að hann verði ekki af neinum troðinn. eins klukkutíma og korter á leiðinni suður. Útsýni var hið ákjósanlegasta og allir við góða heilsu.“ „Hversu fórst þeim móttakan úr hendi þar syðra?“ „Með hinni mestu prýði. Þegar við komum að Menntaskólanum stóðu nemendur úti, og skókum við þar liendur kennara og nokkurra nem- enda, en að því loknu var hrópað mjög kröftugt húrra fyrir okkur af mannskapnum. Síðan var farið upp í hátíðasal skólans og haldnar ræður. Töluðu þar Einar Pálsson, inspector scholae, Pálmi Hannesson rektor og Sigurður Guðmundsson, skólameist- ari. Þar voru og iteknar myndir af sendinefndinni.“ „Með hverju var ykkur skemmt að- allega, á meðan þið dvölduð þarna syðra?“ ,,Það yrði of langt mál, ef ætti að lýsa því öllu, og verð ég því að láta mér nægja upptalningu eina, en sleppa að lýsa því í smáatriðum. Að móttökunni lokinni vorum við boðin til Pálma Hannessonar, rekors, ásamit kennurum og nokkrum nemendum. Seinna um daginn ókum við um bæ- inn og skoðuðum merkustu staði jrar, svo sem Háskólann og kaþólsku kirkj- una. Auk þess ókum við út á Seltjarn- arnes.“ „Þið ku hafa farið í ferðalög um ná- grennið?“ „Já, satt er það. T. d. fórum við austur að Þingvöllum í boði Mennta- skólans. Morgunblaðið bauð okkur að Reykjum í Mosfellssveit, og skoðuð- um við þar mannvirki hitaveitunnar.í Reykjavík sátum við boð Húsmæðra- skólans og nutum þar frábærrar gest- risni Huldu Stefánsdóttur, forstöðu- konu hans. Þá bauð Menntaskólinn okkur á leikinn „Kaupmaðurinn í Feneyjum" eftir Shakespeare. Líkaði okkur leikurinn prýðilega," segir in- spectorinn, skáldlegur á svip. „Hefir skilningur minn á þessu sitórskáldi dýpkað mjög við sýningu þessa, og les ég nú Shakespeare nætur og daga. Auk þessa hélt skólinn okkur allmarga dansleiki. T. d. vorum við á dansleik í skólaselinu, og fannst okkur sérstak- lega til urn það. Sel þetta er afar- myndarleg bygging, sem skólinn hefir látið reisa. Er það timburhús í norsk- um stíl og allmiklu sitærra en Útgarð- ur. Niðri eru 2 stofur og eldhús, en uppi allmargir svefnskálar, ýmist fyrir 2 eða 4 menn. í selið fara nemendur til að skemmta sér og létta sér upp frá náminu, eins og við förum upp í Út- garð, en sá er aðeins munurinn.'að í kririgum selið er ekkert skíðafæri, og harma þeir það mjög.“ „Hvernig er skemmtana- og félags- líf Jrar syðra?" „Skemmitanalífið er að mörgu leyti frábrugðið því, sem hér tíðkast. Þar þekkjast t. d. ekki kaffikvöld eins og hér. í þeirra stað koma hin svonefndu kynningarkvöld, og sátum við eitt þeirra. Á samkomum þessum skemmtu nemendur með ýmsu, svo sem upplestri, ræðuhöldum, píanó- leik o. fl. Svo var auðviltað stiginn dans. Af félagslífi fannst mér athyglis- verðastur félagsskapur sá, sem nefnist Tónlistarklúbburinn. Hefir hann m. a. gengist fyrir kaupurn á radio- grammofón handa skólanum. Er hann m. a. notaður til að leika á hann klass- isk tónverk, og skýrir söngkennarinn þau fyrir nemendum. Á kynningar- kvöldi því, sem við sátum var leikin 7. symfonian efitir Beethoven." „Er kennsla að nokkru verulegu leyti frábrugðin Jrví, sem hér tíðkast?" „Svo er víst. T. d. koma allir bekkir í skólann kl. 8 á morgnana og eru í skólanum til kl. 1 án þess að taka nokkurt hlé til miðdegisverðar. Fimm mínútna hlé er milli kennslustunda, nema nrilli 3. og 4. kennslusitundar, en þá er 20 mín. hlé. Þá fara nemend- ur út í Iþöku, en Jrað er hús það, sem skólabókasafnið er geymt í. Hafa 5.- bekkingar þar búð og selja mjólk, vín- arbrauð og annað lostæti. Ágóðanum ætla þeir að verja til utanferðar næsta vör að loknu stúdentsprófi. Er þeitta mjög merkilegt og athyglisvert fyrir- tæki.“ „En við vorum að tala um kennsl- una,“ skjótum vér inn í. „Ó já, það var alveg rétt,“ segir inspedtorinn. „Það má geta þess, að máladeildin þar syðra lærir efnafræði og stærðfræðideildin aftur dálítið í latínu."

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.