Muninn

Årgang

Muninn - 01.05.1945, Side 4

Muninn - 01.05.1945, Side 4
36 MUNINN — Og enn segir svo: En ór gljá skalla Guðmundi brann bjartur hyrr. Lýðir né þurftu ljós annað, er máðist hin mæra sól. En varla höfðu augu manna vanizt birtu þeirri, er sitafaði af þeim Jóhann- esi og Guðmundi, er þungar dunur heyrðust í lofti, og barst undur fögur konurödd að eyrum manna. Sáu menn brátt hilla undir flokk mikinn, og var Móses í broddi fylkingar og barði bumbu, en Lilja stillti hörpu og söng undurblítt við, en Jón Árni blés í básúnu. En fyrir flokknum rann dvergur nokkur, er frægur var að en- demum. Það var Fjalarr. En á eftir kom sveinstauli nokkur, er Páll nefnd- ist Jónsson. Steighannbúkskjálfta, svo að unun var á að horfa. Enn voru all- margir ókomnir, og gerðist Heðinn ákaflega órór, er áður hafði hann haft svo mikil gífuryrði um undirbúning fararinnar. Sendi hann nú ármenn sína í allar áttir, og voru það smá- sveinar úr höllinni, er eigi treysitust að reisa rönd við ofurvaldi hans. Frá hann brátt af ármönnum, að þrír sveinar myndu eigi fara, en það voru þeir Sigurður Helgason, Sverrir ber- fætti og Benedikt bartskeggur. Mátti Sigurður eigi standa í slíkurn sitórræð- ur fyrir æsku sakar. Var hann þá lítt kominn til vits. En Sverrir kvaðst eigi hafa fótabúnað svo mikinn, að hann gæti bæði farið dagfari og náttfari, og mun ég hvergi fara. „Sæmir mér beL ur að iðka íþróttir eða ráða rúnar þeirra Vestfirðinga." Settist hann að drykkju í skála sínum, og gaus út úr honum reykur svo rammur, að enginn þorði nærri að koma. En Benedikt kvaðst heima sitja mundu, og þarf ég, mællti hann, að gæta hjarðar minnar og leika við sveinstaula þann, er Bald- ur er nefndur hinn skammi. Enn voru fjórar meyjanna ókomn- ar, og þótti Heðni þetta eigi einleikið. Leitaði ltann ráða hjá þeim Gunnari Ólasyni, Jóni Árna og Ingimar af Suð- urnesjum, en þeir gripu vopn sín og hófu þegar að leita meyjanna. Brátt sáu þeir þúst nokkra í hallardyrum, og voru þar þá fyrir ungsveinar nokkr- ir, er enn á'ttu eftir að dvelja tvo vetur í höllinni. Vörnuðu þeir meyjunum útgöngu og létu dátt að þeim. Rann þá berserksgangur á sendimenn Heð- ins, og námu þeir meyjarnar á brott með sér, en ungsveinar fengu með naumindum borgið lífi sínu á flótta. Voru nú allir komnir nema þeir Sig- urður rauði og Guðmundur málgi úr Húsavík. Gekk Heðinn frá skipan liðsins og lét Aðalstein hinn forna reka smiðs- höggið á verkið. En nú sem hann sá, að eigi máltti við svo búið standa, kvaddi hann til þrjá sveina að leita þeirra Sigurðar og Guðmundar, og voru það þeir Guðmundur Árnason, Baldur Glerárkappi og Jóhann Ind- riðason. Skipaði hann hinum að vera kyrrum í fylkingunni og bíða endur- komu þeirra. En er menn höfðu skamma stund beðið, heyrðist dynkur mikill og gnötraði jörðin. Þá mælti Ólafur hinn digri: „Hverju sætir þessi undirgangur, eða hvort féll þar nokk- ur, sveinar?" En er menn gættu að, sásit, að Valgarður Haraldsson hafði til jarðar fallið, og lá hann sem dauð- ur væri. Hafði sigið á hann svefnhöfgi svo þungur, að hann mátti sér eigi uppi halda. Gekk þá fram Karl Laug- vetningur og hóf upp Valgarð og kvað slíkum -mönnum engi staður í fylking þessi. En Valgarður sá sljóum sjónum í ásýnd Karli og geispaði miklum. Setti Karl hann hið næsta sér í fylkingunni og lét hann halda í skykkju sína. Sást nú koma Sigurður hinn rauði, og fór sá allntikinn. Hafði hann mtdtt sendimönnum, en þeir haldið áfrarn að leita Guðmundar. Sigurður var í litklæðum rauðum og blám, og rann íyrir lionurn knöttur mikill. En er hann var nær kominn, sparn liann við knettinum svo fast, að hann þaut í loft upp og þar kom, að knötJtinn bar við höfuð Ingva Árnes- ings, og þótti þetta hið mesta afreks- verk, og varð Sigurður af allfrægur. Nú er að segja frá sendimönnum, að þeir leituðu víða Guðmundar og fundu hann að lokum í hofi Hriflu- Jónasar. Sat hann þar með Ófeig í hægri hendi, en Samvinnuna í þeirri vinstri og gól galdra sína ákaflega. Tóku þeir hann með sér til fylkingar- innar og yggldist Heðinn á hann, og hlaut hann ámæli stór fyrir hegðan sína. En er allt var til reiðu búið, bauð Heðinn, að Jón Árni skyldi gefa brott- fararmerki úr básúnu sinni, og var ÞÓRIR DANÍELSSON frá Borgum: Halldór Snorrason (Niðurlag). Mjög eftirtektarverður er skilnaður þeirra Haralds konungs og Halldórs. Þegar Halldór vildi ekki una á kon- ungsskipinu í ferð þeirri, er áður er getið, fékk.konungur honum til eign- ar og umráða skip það, er Sveinn úr Lyrgju stýrði. (Sveinn þessi er víst að öðru leyti óþekkt persóna skv. íslenzk fornrit V., bls. 272). Sveinn vildi ekki una því, að íslenzkur maður fengi af honum, lendum manni, skip og skips- stjórn og neytir færis og tekur skipið, 'er Halldór sat að drykkju með kon- ungi. Með atfylgi konungs nær þó Halldór þegar skipinu aftur á sitt vald. Sveinn sendir þá konungi þau orð, að hann Vilji leggja mál þeirra Hall- dórs í gerð konungs, en lét það fylgja með, að hann vilji helzt kaupa skipið. því næst ferðin hafin. Segir nú ekki af ferð þeirra um sinn, en eigi höfðu menn lengi farið, er Árni nokkur Stefánsson, er eigi hefur áður komið við þessa sögu, gerðist ýmist blár sem Hel eða bleikur sem nár, og spurði Heðinn hverju þeitta sætti. Þá mælti Árni: „Aldrei hef ég kvellsjúkur ver- ið, en nú er svo komið, að eg má eigi lengra halda, og hefur slíkt aldrei fyrir mig borið áður.“ Þótti þetta öllum illt, sem von var, en þó Heðni vers't. Mælti hann til Ólafs digra: „Þess vildi ég biðja, að þú leystir oss úr þess- um vanda, því að þú ert vor vitrastur og úrræðabeztur." Ölafur svarar: „Aldrei mun mig skorta úrræði, og sé ég það eitlt í þessu máli, að vér færum Árna til hælis þess, er reist hefur verið á landnámssetri Helga hins magra. Þótti öllum þetta hið mesta ráð, og lof- uðu menn snarræði Ólafs. Var síðan 4rni færður til hælisins, og sýndist mönnum, sem honum létti þegar. — Héldu menn síðan glaðir og reifir til klaustursins. En nú sem heimildir vorar eru mjög á þrotum, kunnum vér engar sögur að segja af atferli sveina í fagnaðinum né endurkomu þeirra til hallarinnar. Lúku vér því sögu þessi. Br Bz & Co.

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.