Muninn

Árgangur

Muninn - 01.05.1959, Blaðsíða 5

Muninn - 01.05.1959, Blaðsíða 5
og án nokkurrar ímyndaðrar „gentle- mennsku" báru þeir hugsjónir sínar og merki £ram til sigurs. Skólameistari hefur lýst því yfir á Sal, að íslenzkir sveitamenn hafi alltaf verið og séu enn kjarni skólans. Það er trú mín, að svo muni verða í framtíðinni. Það er ábyggilegt, að þó að einhverjir fálmandi og gljápússaðir víkurdrengir eða litlir strákar í stórum buxum reyni að kasta steinum í „utanbæjaræskuna" og kalli hana „ellimóða unglinga og afturhaldsdurga með nesjamennsku og afdalahátt“, þá mun hún alltaf verða. Reykjavíkuræskunni drýgri að dygðum og mun hér eftir sem hingað til eiga meiri og farsælli þátt í að hjálpa þjóð sinni lengra fram á leið. 27. apríl 1959. Jón Einarsson. Efnislegar leiðbeiningar við lestur greinar Jóns Einarssonar. Það er upphaf þessa máls, að í blaðinu Gambra, sem út kom í vetur, birtist grein undir nafninu „Siðvæðingarherdeildin". Var efni hennar gagnrýni á sjónarmið hátt- virts 6. bekkings, Jóns Einarssonar, ásamt ýmsum glósum í hans garð. Jón hefur nú svarað í sömu mynt af sinni alkunnu rögg- semi og skörungsskap og virðist ekki hallast á, hvað innihaldi greinanna af glósum og hártogunum viðvíkur. Ritnefnd Munins hefur nú gefið undir- rituðum, sem er höfundur greinarinnar i Gambra, tækifæri til að svara þessari grein Jóns, en benda má á, að ég og vinur minn Jón gætum haldið áfram að hnakkrífast og hártoga orð hvers annars, meðan aldur end- ist. Veldur þar um skoðanamunur okkar á flestum málum. Til þess að lesendur Munins skilji betur þessa ritdeilu, vil ég benda þeim á að lesa téða grein í Gambra og bera hana síðan saman við greinarnar í þessu blaði. Hlið- stæður þessa karps okkar sjást líka í mál- gögnum stjórnmálaflokkanna, sem túlka fyrst staðreyndirnar á mismunandi hátt og rífast síðan mánuðum saman án þess að komast að nokkurri niðurstöðu. Þá er komið að grein J. E. Enda þótt greinarhöfundi (þ. e. J. E.) hafi frá upphafi verið kunnugt um, hver höfundur Gambraspjallsins sé, enda tjáð það af sjálfum ábyrgðarmanni Gambra, þá fjallar meginhluti langlokunnar um dul- nefnismistökin, en þau munu skýrð á öðr- um stað hér í blaðinu af ritnefnd og ábyrgð- armanni Gambra. Þetta er Jóni vel kunn- ugt um, en samt slær hann hvert vindhögg- ið af fætur öðru og notar þetta atriði til að byggja upp meginhluta greinar sinnar, og eins og lesendur geta komizt að raun um við lestur hennar, þá er Jón fullur gremju út í undirritaðan, enda þótt hann þori aldrei að nefna mig á nafn. Hann hefur varnaraðgerðir sínar með því að saka mig „um andúð í garð íslenzkra sveita og sveitamenningar". í tilefni þessa hef ég nú tvisvar sinnum lesið yfir grein mína (auk þess skrifaði ég greinina í upp- hafi) og hvergi fundið sneitt einu einasta orði að íslenzkri sveitamenningu eða ís- lenzkum sveitum. Meira að segja minnist ég á hvorugt. Út frá þessari ímynduðu and- úð minni þykist Jón svo finna út, hver greinarhöfundur sé. Hvað þessi vitleysa á að þýða, veit ég ekki, en kannski átt hafi að sýna lesendum Munins fram á dæmafátt hugvit Jóns. Næst reynir hann að telja lesendum sín- um trú um, að greinin í Gambra sé tómur persónulegur skætingur. Þessu vísa ég beina leið til föðurhúsanna. Eins og sérhver læs maður getur séð, þá er Jón að vísu gagn- rýndur fyrir að vera nokkrum öldum á eftir samtíðarfólki sínu, hvað menningarlegan Jrroska áhrærir, en meginefni greinarinnar er samt málefnaleg gagnrýni á orð Jóns sjálfs og að mestu vitnað í Munin. Einnig MUNINN 81

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.